Innlent

Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Þessi mynd var tekin um klukkan tuttugu mínútur í níu.
Þessi mynd var tekin um klukkan tuttugu mínútur í níu. Aðsend

Þriðja daginn í röð er afar löng röð í öryggisleitina á Keflavíkurflugvelli. Um tíma náði röðin út á langtímabílastæðin sem eru heldur langt frá innganginum að flugvellinum.

Fréttastofu barst ábending frá einum flugvallarstarfsmanni um að röðin væri orðin heldur löng núna í morgunsárið. Þetta væri þriðji morguninn í röð þar sem röðin í öryggisleitina væri svo löng.

Áttu mynd af vettvangi? Veistu meira? Sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is.


Fjallað var um það á Vísi að löng röð hefði myndast á flugvellinum á fimmtudag. Talið var að fjöldi ferðalanga sem komu hingað til lands til að sjá almyrkvann hefði verið á leið úr landi. 

„Við vissum að gærdagurinn og í fyrradag yrðu þungir,“ segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, í samtali við fréttastofu.

„Við vissum að það gæti orðið mögulega eitthvað svipað í dag og á morgun. Þetta snýr að þeim fjölda sem er að fara af landinu, það er óvenju mikill fjöldi vegna þeirra sem komu að fylgjast með almyrkvanum.“

Þrjú prósent bíði lengur en í korter

Margir eigi flug á svipuðum tíma og séu því margir sem mæti á sama tíma. Dreifingin hafi verið aðeins betri í gær heldur en í dag. Samt sem áður gangi vel í dag og er öryggisleitin fullmönnuð. Hámarksbiðtíminn sé um 35 til 45 mínútur.

„Það eru vissulega langar raðir en eftir það sem ég fékk að vita frá okkar fólki sem ég var að tala við gengur þetta smurt og er ekkert stopp.“

Guðjón setur sumarið í samhengi og segir að 92 prósent farþega sem hafi farið um flugvöllinn í sumar hafi ekki þurft að bíða í meira en tíu mínútur. Þá hafi 97 prósent beðið í innan við fimmtán mínútur.

„Þrjú prósent hafa þurft að bíða lengur en í korter sem sýnir að þessir dagar eru sérlega þungir,“ segir Guðjón.

Á sama tíma og margir komu til landsins til að sjá almyrkvann er einnig háannatími á flugvellinum. Röðin í dag náði um tíma að langtímabílastæðunum en er hún orðin eitthvað styttri. Gera má ráð fyrir því að röðin muni styttast þegar líður á daginn.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×