Fagnað á götum Kabúl Sigurgeir Þorkelsson skrifar 15. ágúst 2026 20:39 Karlmenn fögnuðu á götum Kabúl í dag. AP/Nava Jamshidi Ríkisstjórn Talíbana í Afganistan fagnaði því í dag að fimm ár eru liðin frá því að höfuðborg landsins, Kabúl, var hertekin. Brynvarðir bílar skreyttir fánum keyrðu um stræti og fulltrúar ríkisstjórnarinnar tjáðu sig fjálglega um árangur hennar.
Stjórn Talíbana hefur frá valdtöku verið harðlega gagnrýnd af mannréttinda- og hjálparsamtökum. Þá nýtur ríkisstjórnin ekki viðurkenningar Sameinuðu þjóðanna, og raunar er Rússland eina aðildarríki Sameinuðu þjóðanna sem hefur opinberlega viðurkennt hana. Ýmis nágrannaríki hafa þó átt í formlegum samskiptum við ríkisstjórnina og hefur til að mynda verið komið upp sendiráði hennar í Peking, höfuðborg Kína. Ríkisstjórninni hefur heilt yfir reynst erfitt að halda uppi góðum samskiptum við nágranna sína. Þessa dagana andar köldu milli hennar og ríkisstjórnar Pakistan vegna meints stuðnings Talíbana við pakistanska uppreisnarmenn. Það var einmitt af svipuðum ástæðum sem Talíbönum var upprunalega komið frá völdum en Bandaríkjastjórn hafði þá grunaða um að veita al-Qaeda hryðjuverkasamtökunum og Osama Bin Laden skjól eftir árásina á Tvíburaturna New York-borgar 11. september 2001. Óstöðugleiki innanlands Sótt hefur verið að Talíbönum innanlands síðustu vikur, sérstaklega í landinu norðaustanverðu. Í Badakhshan-héraði var samskiptastjóri Talíbana myrtur í árás í lok júlí og borgarstjóri héraðshöfuðborgarinnar var myrtur í árás nú í vikunni. Lofuðu bót og betrun Talíbanar sögðust í upphafi núverandi valdatíðar sinnar ætla að gerast frjálslyndari í stjórnunarháttum en síðast þegar þeir voru við völd en það hefur ekki raungerst. UNESCO metur að tveimur og hálfri milljón stúlkna hafi verið vísað úr skólum frá valdatöku þeirra. Talíbanar settu í upphafi valdatíðar sinnar upp sparibrosin. Getty/Paula Bronstein Samkvæmt nýútgefinni tölfræði UN Women yfirgefur helmingur afganskra kvenna nú heimili sitt aðeins einu sinni til tvisvar í mánuði. Samkvæmt samtökunum meta sjö af hverjum tíu konum andlega heilsu sína slæma eða mjög slæma. Samtökin segja afgönsk stjórnvöld þau einu í heiminum sem banna stúlkum og konum að sækja sér framhaldsmenntun. Aðeins sjö prósent afganskra kvenna eru á vinnumarkaði. Flóttamannakrísan búbót Þó svo að flest hinna gömlu sendiráða í Kabúl séu nú yfirgefnar byggingar hefur aukinn vilji ríkisstjórna Evrópu til að fá afganska flóttamenn brottflutta unnið með stjórn Talibana og þeir hafa að auknu leyti nýtt sér þetta til að öðlast meiri áhrif og koma á formlegri samskiptum. Þá hefur strategísk lega landsins, milli Suður-Asíu, Austur-Asíu og Mið-Asíu, nýst Talíbönum til að mynda aukin efnahagsleg tengsl. Bókstafstrúaðir uppreisnarseggir Talíbanar voru við völd í Afganistan milli áranna 1996 og 2001 þegar þeim var steypt af stóli af innrásarliði Bandaríkjanna. Við tók tuttugu ára herseta landsins þar sem reynt var að byggja upp innviði og koma á lýðræði í landinu. Á sama tíma hélt hreyfing talíbana uppi skæruhernaði og náðu þeir að lokum tökum á landinu á einungis þremur mánuðum eftir að erlent herlið hóf að taka sig upp og yfirgefa landið. Þar náðu þeir stjórn á um helmingi héraðshöfuðborga á aðeins níu dögum í ágúst 2021 uns þeir náðu höfuðborginni sjálfri, Kabúl, á sitt vald þann 15. ágúst. Hreyfing Talíbana byggir að stóru leyti á bókstafstrú og bannar meðal annars aðrar stjórnmálahreyfingar á þeim grundvelli, auk þess að skerða stórkostlega frelsi kvenna, svo eitthvað sé nefnt.
Afganistan Jafnréttismál Hryðjuverkastarfsemi Pakistan Bandaríkin Sameinuðu þjóðirnar Mannréttindi Skóla- og menntamál Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Sjá meira