Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Andri Broddason skrifar 17. ágúst 2026 20:30 Ægir er formlega fallið úr Lengjudeild karla. Knattspyrnufélagið Ægir Ægir er fallið eftir stórt tap gegn Leikni og Völsungur sigraði þreytt lið Vestra eftir Evrópubaráttu í Lengjudeild karla í kvöld.
Mikið er um að vera í Lengjudeild karla þar sem deildin er óvenju jöfn og getur enn farið á allan veg. Gengi Ægis á botni deildarinnar heldur þó áfram að vera slæmt. Ægir fór í heimsókn í Breiðholtið þar sem Leiknir tók á móti þeim. Þar sá Ægir hreinlega aldrei til sólar og kom fyrsta mark Leiknis á tíundu mínútu leiksins. Leiknir hamraði á járnið á meðan það var heitt og bætti við þrem mörkum til viðbótar með tiltölulega stuttu millibili. Ægir náði þó að setja sárabótamark undir lok hálfleiksins og var staðan 4-1 fyrir Leikni í hálfleik. Staðan átti ekki eftir að batna fyrir Ægi þegar Axel Freyr Harðarson skoraði sitt þriðja mark í leiknum og á 70. mínútu innsiglaði Axel Örn Kjartansson 6-1 sigur á Ægi. Ægir er þá formlega fallið þar sem liðið er aðeins með átta stig þegar aðeins þrír leikir eru eftir af tímabilinu. Ægir hefur ekki unnið leik í síðustu þrettán leikjum eða síðan liðið vann Völsung 3-2 í lok maí. Nær því að losna við fallsætið Völsungur tók á móti Vestra í frekar rólegum leik. Allt var jafnt þegar flautað var til hálfleiks en ísinn brotnaði ekki fyrr en á 80. mínútu þegar Inigo Arruti skallaði boltann inn eftir frábæra hornspyrnu frá Sergio Garcia. Aðeins þrem mínútum seinna fékk Völsungur vítaspyrnu eftir að Elfar Árni Aðalsteinsson var tekinn niður í vítateig andstæðingsins. Elfar Árni steig sjálfur á punktinn og skoraði af miklu öryggi og tryggði mikilvægan 2-0 sigur fyrir Völsung. Með sigrinum er Völsungur aðeins einu stigi frá því að sleppa við fallsætið en það er hörð barátta milli liðanna neðarlega í deildinni. Mikilvægur sigur ÍR-inga ÍR tók á móti Njarðvík í Breiðholtinu og náði forystunni strax á 20. mínútu leiksins. Í fyrstu sókn seinni hálfleiks náði Njarðvík að jafna metin og ljóst að hálfleiksskipulag ÍR farið í vaskinn. ÍR náði þó forystunni aftur eftir 60 mínútna leik og sextán mínútum síðar bætti ÍR við sínu þriðja marki og gulltryggði 3-1 sigur á Njarðvík. Eftir sigurinn er ÍR aðeins tveimur stigum frá fallsæti sem gerir þessi þrjú stig sem liðið fékk í kvöld mikilvæg. Njarðvík missti hins vegar af mikilvægum stigum í toppslagnum en liðið er í harðri baráttu um umspilssæti í Bestu deildina. Einnig fór Grótta í heimsókn til Grindavíkur en þar var markalaust jafntefli í frekar bragðdaufum leik. Grindavík er aðeins einu stigi frá fallsæti og því mikilvægt fyrir liðið að fá fleiri stig til að halda sætinu í Lengjudeildinni. Allar upplýsingar um markaskorara og tímasetningar voru fengnar af fótbolti.net.
Lengjudeild karla Íslenski boltinn Mest lesið Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Fótbolti Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Enski boltinn „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fótbolti Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Fótbolti Fleiri fréttir Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Uppgjörið: Stjarnan – ÍBV 2-2 | Eyjamenn á botninn Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Uppgjör: FH - Þór/KA 2-1| FH tyllir sér á toppinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Sjá meira