Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Samúel Karl Ólason skrifar 19. ágúst 2026 13:24 Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu. AP/Alex Brandon Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur rekið aðstoðarskrifstofustjóra sinn eftir að tilkynnt var að hún væri til rannsóknar í nýju spillingarmáli. Einn fyrrverandi þingmaður og yfirmaður hjá úkraínskum ríkisbanka eru einnig til rannsóknar vegna gruns um spillingu.
Fólkið er sakað um að hafa þvættað 150 milljónir hrinja, eða um 3,4 milljónir dala, gegnum banka í ríkiseigu. Peningana ætluðu þau að nota til að greiða tryggingu fyrir Herman Halushchenko, fyrrverandi orkumálaráðherra, sem er í gæsluvarðhaldi eftir að hann var í fyrr ákærður fyrir umfangsmikla spillingu og fjársvik. Það mál leiddi til brottreksturs tveggja ráðherra í ríkisstjórn Selenskís. Sjá einnig: Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls Starfsmenn tveggja andspillingarrannsóknastofnanna Úkraínu sem kallast NABU og SAPO, gerðu í dag húsleit hjá þremenningunum. Skömmu síðar birtist stutt yfirlýsing á vef forsetaembættis Úkraínu um að Iryna Mudra, áðurnefndur aðstoðarskrifstofustjóri, hefði verið rekin úr starfi sínu. Hún hefur meðal annars verið með umbætur í dómskerfi Úkraínu á sínu borði. Að öðru leyti hefur forsetinn ekki tjáð sig um málið að svo stöddu. Þetta nýja spillingarmál fylgir á hæla þess að Mykhailo Fedóróv, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, gagnrýndi forsetann harðlega og kallaði eftir forsetakosningum. Sjá einnig: Fedóróv kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Kosningar eru bannaðar á meðan herlög eru í gildi, samkvæmt stjórnarskrá Úkraínu. Þá yrði erfitt að framkvæma kosningar þar sem stór hluti þjóðarinnar hefur flúið land, annar hluti býr á hernumdum svæðum og fjölmargir hermenn ættu erfitt með að greiða atkvæði, svo eitthvað sé nefnt.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira