Kvíðir vetrinum framundan Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. ágúst 2026 22:00 Runólfur kveðst vera hugsi yfir ástandi vega í landinu nú þegar stutt er í vetur. Vísir/Bjarni Djúpar rákir í malbiki vega víða á landinu eru stórhættulegar, að mati framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Hann segist kvíða vetrinum sem framundan er og skorar á stjórnmálamenn að bregðast við vandanum.
Fræsing og malbikun vega hefur staðið yfir víða líkt og hefð er fyrir á sumrin en þrátt fyrir það eru á höfuðborgarsvæðinu víða djúpar rákir í malbiki, líkt og á Miklubraut við Ártúnsbrekku. Samkvæmt svörum frá Vegagerðinni er malbikun þar lokið í bili, vilji hafi verið fyrir hendi til að gera meira en þörf hafi verið á að forgangsraða miðað við fjármagn sem fæst til viðhalds. Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segist hugsi yfir stöðunni. Klippa: Stórhætta á vegum „Og auðvitað er þetta ekkert einangrað við höfuðborgarsvæðið, þetta er víða um land sem við sjáum þetta. Að okkar mati er þetta svolítið séríslenskt fyrirbrigði, það er spurning hvort menn hafi ekki vandað nóg til undirlagsins í byrjun.“ Þungir bílar myndi hjólför í undirlagið og nagladekk á veturna geri illt verra. „Og eins og núna við þessar aðstæður getur þetta orðið stórhættulegt. Viðvörunarbúnaður bíla í seinni tíð, eins og skrikvörn og svona, það grípur jafnvel inn í því bílar eru að missa hjólfestu við þessar aðstæður.“ Sem verði svo enn hættulegri þegar það frystir. Runólfur segir það því sæta furðu að ekki eigi að klára að malbika djúpar rásir, meðal annars á Miklubraut. „Ég bara eiginlega skil ekki slík vinnubrögð því við vitum það og upplifum það hvernig ástandið er og þetta á bara eftir að versna, þannig ég er mjög hissa á þessu verklagi.“ Þetta veldur hættu, að hafa þetta svona? „Algjörlega og síðan verður pólitíkin að taka við sér. Vegagerðin er bara að framkvæma fyrir þá peninga sem þeir fá til að framkvæma. Pólitíkin skammtar. Pólitíkusar tala með fagurgala um að þeir vilji verja innviðina og bæta umhverfi veganna, þetta er bara lýsandi dæmi um eitthvað sem er ekki verið að vinna við sem skyldi.“
Umferð Vegagerð Reykjavík Umferðaröryggi Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fleiri fréttir Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Sjá meira