Handbolti

Fólsku­brot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli

Sindri Sverrisson skrifar
Frederik Simak og Mathias Gidsel reyna að hemja Gísla í leiknum í kvöld. Simak var svo rekinn af velli fyrir ljótt brot á Gísla.
Frederik Simak og Mathias Gidsel reyna að hemja Gísla í leiknum í kvöld. Simak var svo rekinn af velli fyrir ljótt brot á Gísla. Getty/Ronny Hartmann

Gísli Þorgeir Kristjánsson var að vanda í aðalhlutverki hjá Magdeburg í kvöld en þó ekki aðeins á jákvæðan hátt, þegar liðið vann Füchse Berlín 36-32 í stórleik í þýsku 1. deildinni í handbolta. Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, var á meðal áhorfenda.

Gísli varð fyrir ljótu broti Þjóðverjans Frederik Simak rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Simak missti Gísla framhjá sér, greip þá utan um hann að aftan og kippti í skothöndina. Dómararnir skoðuðu atvikið vel á skjá og ráku svo Simak af velli en hann fór fyrst til Gísla og bað hann afsökunar.

Magdeburg minnkaði svo muninn í eitt mark úr vítakastinu sem dæmt var, 14-13, og þannig var staðan í hálfleik.

Alfreð Gíslason var spurður út í rauða spjaldið á Simak, í sjónvarpsútsendingu í hálfleik, og sagðist telja um réttan dóm að ræða.

Án Gísla í lokin og án Ómars allan leikinn

Gísli var svo búinn að skora fimm mörk og gefa heilar sjö stoðsendingar þegar hann var sjálfur rekinn af velli, tæpum átta mínútum fyrir leikslok, fyrir að fara utan í hornamann Füchse sem var að stökkva inn úr horninu til að skjóta. Aftur skoðuðu dómararnir atvikið vel á skjá áður en þeir lyftu rauða spjaldinu, við litla hrifningu Gísla sem varð að horfa á lok leiksins af áhorfendapöllunum

Staðan var orðin 31-26 þegar þarna var komið við sögu og Magdeburg náði að halda forystunni til enda gegn Mathias Gidsel og félögum, og vinna fjögurra marka sigur.

Albin Lagergren og Magnus Saugstrup enduðu markahæstir hjá Magdeburg með sjö mörk hvor en Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark. Ómar Ingi Magnússon var ekki með liðinu en hann mun hafa verið veikur heima.

Gidsel skoraði sjö mörk og átti átta stoðsendingar fyrir Füchse.

Magdeburg hefur nú unnið fyrstu tvo deildarleiki sína á tímabilinu en Füchse unnið einn og tapað einum.

Fyrr í kvöld urðu lærisveinar Rúnars Sigtryggssonar í Wetzlar að sætta sig við 31-27 tap gegn Lemgo á útivelli. 

Í dönsku úrvalsdeildinni gerðu lærisveinar Arnórs Atlasonar, aðstoðarlandsliðsþjálfara, í liði TTH Holstebro 29-29 jafntefli við GOG á útivelli. Jóhannes Berg Andrason skoraði tvö mörk fyrir gestina sem bíða þess enn að geta nýtt krafta Benedikts Gunnars Óskarssonar sem lenti í alvarlegu slysi á golfvelli í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×