Sport

Seahawks lenti í á­falli en endur­tók samt sigurinn úr Ofurskálinni

Andri Broddason skrifar
Leikmenn Seattle Seahawks byrja nýtt tímabil eins og þeir enduðu það gamla. Að vinna New England Patriots.
Leikmenn Seattle Seahawks byrja nýtt tímabil eins og þeir enduðu það gamla. Að vinna New England Patriots. (Photo by Kathryn Riley/Getty Images)

Biðin er loks á enda og hófst NFL tímabilið í nótt með leik Seattle Seahawks og New England Patriots. Þetta voru sömu lið og spiluðu síðast í Ofurskálinni og náði Seahawks að vinna báða leikina. Leikinn í nótt unnu þeir 13-10.

Seattle Seahawks lentu í áfalli snemma í leiknum þegar Sam Darnold, aðalleikstjórnandi liðsins, þurfti að fara af velli eftir að hafa meiðst í mjöðminni. Varaleikstjórnandinn Drew Lock kom þá í staðinn og hann nýtti tækifærið sitt vel.

New England Patriots náði forystunni með snertimarki í öðrum leikhluta og leiddi stöðuna 7-0. Snemma í þriðja leikhluta skoruðu Patriots úr vallarmarki og staðan var orðin 10-0 fyrir Patriots og ljóst að Seahawks þurfti að spýta í lófana.

Seahawks svaraði með sínu eigin vallarmarki og í næstu sókn náði Nehemiah Pritchett að grípa inn í sendingu frá Drake Maye, liðsstjórnanda Patriots. Seahawks nýtti sóknina og náði Jaxon Smith-Njigba snertimarki og allt í einu var leikurinn jafn 10-10.

Í næstu sókn kastaði Drake Maye aftur frá sér og komust Seahawks því aftur í sókn. Sú sókn endaði með vallarmarki og reyndust það vera síðustu stig leiksins.

Drake Maye kastaði 10 stiga forystu New Englands Patriots í burtu og náði Seattle Seahawks að endurtaka sigurinn frá Ofurskálinni í febrúar. Þrátt fyrir það var mikið áfall fyrir Seahawks að missa Sam Darnold úr liðinu en hann fór í læknisskoðun eftir leik sem leit vel út. Hann ætti því ekki að vera frá vellinum lengi.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×