Handbolti

Haukar á flugi

Valur Páll Eiríksson skrifar
Haukar hafa unnið fyrstu tvo þægilega.
Haukar hafa unnið fyrstu tvo þægilega.

Haukar unnu þægilegan sex marka sigur, 37-31, á Stjörnunni í annarri umferð Olís-deildar karla í handbolta í Mýrinni í Garðabæ í kvöld.

Haukar mættu til leiks eftir sigur í fyrsta leik en Stjarnan hafði tapað í fyrstu umferðinni. Fastlega var búist við sigri Hauka og það varð snemma ljóst að sú yrði raunin.

Haukar voru komnir fimm mörkum yfir, 9-4, um miðjan fyrri hálfleik og munurinn þegar hálfleiksflautið gall var átta mörk, 19-11.

Sigurinn var aldrei í hættu eftir hléið og munurinn varð að endingu sex mörk, 37-31 fyrir Hauka sem eru því með fullt hús stiga á toppi deildarinnar ásamt Fram og KA.

Stjarnan leitar áfram sinna fyrstu stiga í deildinni.

Markaskor Hauka var dreift þar sem ellefi leikmenn komust á blað. Birkir Snær Steinsson og Andri Fannar Elísson skoruðu flest, sex hvor.

Hjá Stjörnunni var Ísak Logi Einarsson með 14 mörk og fimm stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×