Logi á skotskónum þrátt fyrir tap Andri Broddason skrifar 12. september 2026 16:26 Logi Tómasson skoraði eina mark Samsunspor í 5-1 tapi á Corum í tyrknesku úrvalsdeildinni í fótbolta. Ahmad Mora/Getty Images Logi Tómasson var á skotskónum þegar lið hans Samsunspor tók á móti Corum í tyrknesku úrvalsdeildinni í fótbolta. Mikið gekk á og voru skoruð fjögur mörk á fyrstu fimmtán mínútum leiksins.
Gestirnir í Corum voru ekki lengi að ná forystu leiksins en það gerðist strax á fyrstu mínútu þegar Jesús Ramírez skoraði úr þröngu færi. Sú forysta entist ekki lengi þar sem fjórum mínútum síðar fékk Samsunspor horn og datt boltinn út í teiginn. Þar bar Logi að bíða eftir boltanum og skaut í gegnum pakkann og í netið. Gestirnir í Corum voru langt frá því að gefast upp og á tíundu mínútu komst liðið aftur í forystuna. Þar barst boltinn á Gengiz Under sem skaut frábæru skoti sem var óverjandi fyrir Okan Kocuk í marki Samsunspor. Á fimmtándu mínútu skoraði Under annað draumamark fyrir Corum fyrir utan teiginn og skoraði fjórða mark leiksins. Heimamenn í Samsunspor voru því tveimur mörkum undir og byrjuðu að sækja í sig veðrið. Þrátt fyrir að vera sterkara liðið var Samsunspor í erfiðleikum með að skapa sér færi og var staðan enn 3-1 í hálfleik. Í seinni hálfleik varð leikurinn jafnari og bæði lið gerðu sig líkleg til að skora. Það gerðist þó ekki fyrr en á 69. mínútu þegar Alexandros Kyziridis skoraði fyrir Corum eftir góða skyndisókn. Við það hrundi einbeiting heimamanna og tveim mínútum síðar gulltryggði Jesús Ramírez 5-1 sigur Corum í virkilega fjörugum leik. Með sigrinum kom Corum sér í sjötta sæti tyrknesku úrvalsdeildarinnar með sjö stig á meðan Logi Tómasson og félagar í Samsunspor sitja í fjórtánda sæti með fjögur stig.
Tyrkneski boltinn Íslendingar erlendis Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Bruno settur á bekkinn Enski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Íslenski boltinn Fleiri fréttir Real Sociedad - Levante | Heldur Orri áfram að skora? Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Sjá meira