Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. september 2026 21:42 Emmanuel Macron og Alexander Stubb hittust fyrir nokkrum dögum. EPA Finnar hafa gengið til liðs við Frakka í verkefni sem varðar fælingarmátt kjarnorkuvopna. Þeir eru tíunda ríkið sem tekur þátt en Svíar og Norðmenn hafa þegar gengið í hópinn.
Þróun verkefnisins er enn á byrjunarstigi samkvæmt finnska ríkisútvarpinu en markmiðið er að styðja við öryggi Evrópu. Frakkar eru eina ríkið innan Evrópusambandsins sem eiga kjarnorkuvopn. Með þessu vilja Frakkar og hin ríkin taka þátt í því að stjórna stigmögnun á þann máta að trúverðugt svar við hótun um kjarnorkuvopn sé kjarnorkuvopn. Allt verði hins vegar gert til þess að tryggja að fælingarmátturinn sé nægilegur og að vopnin verði aldrei notuð. Ákvörðunarvaldið um kjarnorkuvopnin muni alltaf vera hjá forseta Frakklands. Samkvæmt umfjöllun Le Monde ákvað Macron að hefja verkefnið eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti talaði ítrekað um vantraust sitt á Atlantshafsbandalaginu. Finnar breyttu einnig finnskum lögum í júní á þann hátt að nú má flytja kjarnorkuvopn bandamanna til Finnlands. Það geta bæði verið kjarnorkuvopn frá Frakklandi og Bandaríkjunum í gegnum Atlantshafsbandalagið. Fyrir um hálfu ári gengu Svíar til liðs við verkefnið og var Finnum þá boðið í forkönnunarviðræður um verkefnið en á þeim tíma neituðu þeir. Ástæðan var áhyggjur af því hvaða áhrif samstarfið kynni að hafa á samstarf Finna við Bandaríkjamenn. Hins vegar hafi Frakkar og fulltrúar Atlantshafsbandalagsins fullvissað fulltrúa Bandaríkjanna um að þetta verkefni sem varðar franskan fælingarmátt ætti ekki að koma í stað fælingarmáttar Atlantshafsbandalagsins sem byggir á bandarískum vopnum. Löndin sem hafa samþykkt að taka þátt eru Bretland, Þýskaland, Pólland, Svíþjóð, Holland, Belgía, Grikkland, Noregur og Danmörk.
Finnland Kjarnorka Kjarnorkuvopn Frakkland Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira