Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls Njáll Trausti Friðbertsson skrifar 17. september 2026 07:30 Á morgunverðarfundi Kristrúnar Frostadóttir forsætisætisráðherra í flugstöðinni á Akureyrarflugvelli 22. maí 2025 svaraði ráðherra með eftirfarandi hætti þegar spurt var að því hvort það stæði til að staðsetja eina af þyrlum Landhelgisgæslunnar á Akureyrarflugvelli: „Það stendur til að gera þetta. Ég styð þetta heilshugar.“ Þetta góða svar vakti upp miklar vonir hjá okkur sem höfum barist fyrir því að þetta verði að veruleika. Flugstöðvarfundurinn Forsætisráðherra sagði jafnframt á flugstöðvarfundinum að samþykkt hefði verið varanleg viðbótarfjárveiting til Landhelgisgæslunnar sem gæti meðal annars fjármagnað viðveru áhafna á Akureyri. Forsætisráðherra lýsti málinu sem „risastóru öryggismáli“ og sagði staðsetningu þyrlu fyrir norðan falla vel að því markmiði að styrkja núverandi viðbragðsgetu, leit og björgun og mikilvæga innviði landsins. Akureyri.net fjallaði um málið á sínum tíma. Það var ekki að sjá nein merki um að þyrla væri á leið norður í þeim fjárlögum sem voru lögð fram tæpum fjórum mánuðum síðar haustið 2025 í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2026. Í fjármálaáætluninni fyrir árin 2027-2031 sem var lögð fram í apríl síðastliðnum og samþykkt júní voru heldur engin merki að fjármagni yrði varið í verkefnið. Í byrjun síðustu viku var fjárlagafrumvarpið kynnt og umræða um frumvarpið hófst í þingsal undir lok síðustu viku. Í þeirri umræðu spurði bréfritari dómsmálaráðherra að því hver staða málsins væri á þessum tímapunkti. Það kom fram í máli ráðherrans að í framlögðu fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 væri ekki gert ráð fjárveitingum til verkefnisins. Þingsályktunin Í þessari viku mun þingsályktunartillaga mín um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri koma fram í fimmta skiptið á Alþingi. Tillagan gengur út á að Alþingi álykti að fela dómsmálaráðherra að beita sér fyrir því að Landhelgisgæslan komi upp fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum sínum á Akureyri í samstarfi við hagaðila á Akureyri. Í greinargerð þingsályktunar kemur m.a fram: ,,Það sjónarmið að hafa þyrlu á Akureyri hefur einnig komið fram í ýmsum skýrslum. Vinnuhópur um skipulag sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan spítala á Norðurlandi benti árið 2009 á þann veikleika sem felst í því að allar björgunarþyrlur þjóðarinnar séu staðsettar í Reykjavík. Annar verkefnahópur um endurskipulagningu sjúkraflutninga taldi árið 2012 að stefna ætti að því að sjúkraflug með þyrlum og flugvélum yrði bæði á Akureyri og í Reykjavík. Þegar byggja átti upp þyrluflota Landhelgisgæslunnar við brottför varnarliðsins ályktuðu ýmis samtök og stofnanir um að skynsamlegt væri að hafa fleiri en eina starfsstöð á landinu fyrir björgunarþyrlur til að stytta björgunartíma. Landspítali í Reykjavík benti á að í ljósi mikilvægis jöfnunar á heilbrigðisþjónustu landsmanna skyldi þyrla vera staðsett á Akureyri. Félag skipstjórnarmanna og Sjómannasamband Íslands tóku meðal annars undir það. Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar hvatti einnig til þess að tryggð yrði staðsetning björgunarþyrlu annars staðar en á suðvesturhorninu. Samtök útgerðarmanna vildu þyrlu á landsbyggðinni til að auka öryggi og margfalda þjónustugetu“. Skuldbindingar Íslands við Atlantshafsbandalagið Á vettvangi Atlantshafsbandalagsins hefur Ísland skuldbundið sig til að verja 1,5% af vergri landsframleiðslu til uppbyggingar öryggistengdra innviða, viðnámsþróttar og áfallaþols. Fjármunina eigum við meðal annars að nýta til að styrkja getu Íslands til að sinna samstarfi við vina- og bandalagsþjóðir okkar í NATO. Föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri fellur vel að þessum markmiðum. Hún myndi styrkja björgunargetu á landi og sjó, bæta viðbragðstíma á Norður- og Austurlandi og efla sjúkraflug, löggæslu og almannavarnir. Jafnframt myndi þyrlan bæta getu Íslands til að taka þátt í sameiginlegum verkefnum, æfingum og viðbrögðum með vinaþjóðum okkar á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Ný starfsstöð Landhelgisgæslunnar Akureyri væri mikilvægur þáttur í að efla þjóðaröryggi Íslands, styrkja áfallaþol og efla samstarf okkar innan Atlantshafsbandalagsins. Það er ljóst að í þeirri fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031 sem samþykkt var í júní og ummælum dómsmálaráðherra að ekki er gert ráð fyrir að fara í verkefnið að koma upp starfsstöð á vegum Gæslunnar á þessu kjörtímabili og eftirláta næstu ríkisstjórn að uppfylla skuldbindingar Íslands fyrir 2035 gagnvart NATO á næstu kjörtímabili. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Njáll Trausti Friðbertsson Landhelgisgæslan Akureyrarflugvöllur Akureyri Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar