„Ég ýtti bara aðeins við honum“ Valur Páll Eiríksson skrifar 19. september 2026 09:03 Oliver Ekroth segir hlut af ríg í fótbolta að það verði smá hiti og handalögmál. Hann fór heldur harkalega utan í Aron Sigurðarson í síðasta leik. Vísir/Einar/Hulda Oliver Ekroth, fyrirliði Víkings, segir atvik líkt og það sem varð milli hans og Arons Sigurðarsonar, fyrirliða KR, í síðasta leik liðanna vera hluti af leiknum. Liðin mætast aftur í dag og Víkingur verður meistari með sigri.
KR og Víkingur skildu jöfn í síðasta leik liðanna fyrir örfáum vikum, 1-1. Þar komst Víkingur yfir í uppbótartíma en KR jafnaði enn síðar. Klippa: „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Fyrir þann leik var talað um stærsta leik tímabilsins. Er það aftur svoleiðis núna?„Já, á vissan hátt. Kannski stærri. Ég meina, við vitum öll hvað sigur myndi þýða. Þannig að fyrir okkur er hann auðvitað stór. Allir leikir eru stórir. En já, þetta verður sérstakt,“ segir Oliver Ekroth, fyrirliði Víkings. Hvernig líður þér fyrir leikinn? „Ég er spenntur, eins og alltaf. Ég meina, þetta eru leikirnir sem maður hlakkar alltaf til að spila. Og eins og ég sagði, við vitum hvað þetta þýðir. Og auðvitað væri ótrúlegt að tryggja titilinn á morgun. Og já, það hefur verið markmiðið allt tímabilið. Þannig að ég hlakka til,“ segir Oliver. Rígurinn frábær Margt hefur verið rætt og ritað um ríginn bæði innan vallar og utan. Hvernig er hann fyrir þér? Hvert er þitt mat á rígnum milli leikmanna og liða? „Ég meina, KR er gott lið. Þeir eru með góða leikmenn og hafa staðið sig virkilega vel á þessu tímabili. Þannig að auðvitað eru þeir keppinautar okkar. Við einbeitum okkur aðallega að okkar hlut, hvað við getum gert til að fara inn í þessa leiki, í alla leiki, og það er það sem við tölum um, þú veist, þannig að auðvitað er alltaf gaman að eiga stóran andstæðing,“ segir Oliver og bætir við: „Það er alltaf gott fyrir fótboltann á Íslandi og deildina sjálfa að stór lið spili og keppi á toppnum. Þannig að, ég meina, ég held að KR-ingar séu, auðvitað, þeir eru ekki ánægðir með sitt tímabil því þeir vildu líklega vera í okkar stöðu þar sem við erum núna. En, ég meina, þeir hafa staðið sig virkilega vel.“ Fór heldur ruddalega í Aron Ekroth hljóp heldur harkalega utan í Aron Sigurðarson, fyrirliða KR, þegar Víkingur komst yfir í uppbótartíma í síðasta leik og virtist vera að tryggja sér sigurinn. Það var atvik í síðasta leik eftir að Víkingur skoraði fyrsta markið. Myndband fór á flug þar sem þú hleypur á Aron Sigurðarson á leiðinni í fagnið. Fólk ræddi um hvort þetta hafi verið viljandi. Geturðu tjáð þig um þetta atvik? „Já, auðvitað get ég það. Ég veit ekki hvort það var viljandi. Ég meina, það leit líklega verr út en það var. Ég meina, ég ýtti bara aðeins við honum og þetta er bara hluti af leiknum, þú veist, það er. Það er gaman að hafa svona augnablik í leikjum og utan þeirra, og hann (Aron) er svolítið eins. Þannig að, já, þetta er allt í góðu,“ segir Oliver. Þannig að þetta er hluti af þessu. Smá pot hér og þar þegar boltinn er ekki nálægt? „Já. Ég meina, ef þú skoðar mörg atvik í leikjum geturðu fundið ýmislegt, þú veist, og, ég meina, kannski var þetta augljósara en annað, en þetta er bara eins og það er.“ Það hlýtur að vera aðeins eitt sem þú vonast eftir á morgun, það er að vinna leikinn, vinna deildina? „Já, auðvitað. Ég meina, eins og ég sagði, það hefur verið markmiðið allt tímabilið fyrir okkur að vinna. Og, já, það er markmiðið.“ Viðtalið við Ekroth má sjá í spilaranum. KR og Víkingur mætast klukkan 14:00 í dag. Leikurinn verður í beinni á Sýn Sport Ísland.
Víkingur Reykjavík KR Besta deild karla Íslenski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira