Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar 22. september 2026 14:01 Áfengis- og fíknimeðferðir á vegum SÁÁ eru í uppnámi eftir að sviptingar urðu nýlega í stjórnendahópi fagfólks samtakanna í kjölfar uppsagnar forstjóra SÁÁ. Fréttir hafa verið sagðar af óánægju með þróun mála eftir að lykilfólk heilbrigðisþjónustu SÁÁ hætti störfum. Fleiri starfsmenn hafa hætt og aðrir eru í mikilli óvissu. Ástandið hefur leitt til þess að afkastagetan hefur dregist mjög saman en töluvert færri njóta nú þjónustu á sjúkrastofnuninni Vogi en pláss er fyrir. Hverju sinni geta 45 einstaklingar fengið þar meðferð en þessa dagana eru þeir einungis 25. Það er grafalvarlegt mál. Fyrst og fremst fyrir þá sem þurfa á aðstoð að halda en undanfarin ár hafa um 3200 manns notið þjónustu SÁÁ árlega, þar af 1200-1400 einstaklingar sem leggjast inn á Vog á hverju ári og 600 á Vík. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi starfsemi samtakanna og hversu dýrmæt hún hefur verið. Undanfarna áratugi hafa tugþúsundir manna fengið aðstoð í veikindum sínum í gegnum SÁÁ og mörgum lífum verið bjargað. Biðlistar eru langir, að jafnaði bíða um 500 manns eftir meðferð, en hver dagur í bið getur reynst sjúklingum mjög þungbær. Einnig er mjög mikilvægt að uppfylla ákvæði þjónustusamnings milli Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ, eins og forstjóri SÍ hefur bent á. Miklir opinberir fjármunir eru þar í húfi en samningurinn hljóðar upp á um 2 milljarða króna á ári. Hvet heilbrigðisráðherra til dáða Ágreiningurinn, eins og komið hefur fram í umræðunni, snýst um afskipti stjórnar samtakanna af faglegu heilbrigðis- og meðferðarstarfi en ljóst er að viðkvæm starfsemi SÁÁ og líf og heilsa fólks er þarna undir. Embætti Landlæknis er með það verkefni í fanginu að tryggja öryggi sjúklinga í kjölfar þessara skyndilegu breytinga í störfum SÁÁ og segja þeir sem til þekkja að það gæti gerst að innan nokkurra daga þyrfti að loka Vogi. Það má ekki gerast og því hvet ég hæstvirtan heilbrigðisráðherra Ölmu Möller til að stíga inn í deilurnar og gera allt hvað í hennar valdi stendur til að tryggja áframhaldandi heilbrigðisþjónustu SÁÁ. Látum ekki loka Vogi! Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í Velferðarnefnd Alþingis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rósa Guðbjartsdóttir SÁÁ Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Áfengis- og fíknimeðferðir á vegum SÁÁ eru í uppnámi eftir að sviptingar urðu nýlega í stjórnendahópi fagfólks samtakanna í kjölfar uppsagnar forstjóra SÁÁ. Fréttir hafa verið sagðar af óánægju með þróun mála eftir að lykilfólk heilbrigðisþjónustu SÁÁ hætti störfum. Fleiri starfsmenn hafa hætt og aðrir eru í mikilli óvissu. Ástandið hefur leitt til þess að afkastagetan hefur dregist mjög saman en töluvert færri njóta nú þjónustu á sjúkrastofnuninni Vogi en pláss er fyrir. Hverju sinni geta 45 einstaklingar fengið þar meðferð en þessa dagana eru þeir einungis 25. Það er grafalvarlegt mál. Fyrst og fremst fyrir þá sem þurfa á aðstoð að halda en undanfarin ár hafa um 3200 manns notið þjónustu SÁÁ árlega, þar af 1200-1400 einstaklingar sem leggjast inn á Vog á hverju ári og 600 á Vík. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi starfsemi samtakanna og hversu dýrmæt hún hefur verið. Undanfarna áratugi hafa tugþúsundir manna fengið aðstoð í veikindum sínum í gegnum SÁÁ og mörgum lífum verið bjargað. Biðlistar eru langir, að jafnaði bíða um 500 manns eftir meðferð, en hver dagur í bið getur reynst sjúklingum mjög þungbær. Einnig er mjög mikilvægt að uppfylla ákvæði þjónustusamnings milli Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ, eins og forstjóri SÍ hefur bent á. Miklir opinberir fjármunir eru þar í húfi en samningurinn hljóðar upp á um 2 milljarða króna á ári. Hvet heilbrigðisráðherra til dáða Ágreiningurinn, eins og komið hefur fram í umræðunni, snýst um afskipti stjórnar samtakanna af faglegu heilbrigðis- og meðferðarstarfi en ljóst er að viðkvæm starfsemi SÁÁ og líf og heilsa fólks er þarna undir. Embætti Landlæknis er með það verkefni í fanginu að tryggja öryggi sjúklinga í kjölfar þessara skyndilegu breytinga í störfum SÁÁ og segja þeir sem til þekkja að það gæti gerst að innan nokkurra daga þyrfti að loka Vogi. Það má ekki gerast og því hvet ég hæstvirtan heilbrigðisráðherra Ölmu Möller til að stíga inn í deilurnar og gera allt hvað í hennar valdi stendur til að tryggja áframhaldandi heilbrigðisþjónustu SÁÁ. Látum ekki loka Vogi! Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í Velferðarnefnd Alþingis.
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun