Fótbolti

Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur

Andri Broddason skrifar
Barcelona þarf að spila fyrri helming næsta tímabils á öðrum velli en Nou Camp.
Barcelona þarf að spila fyrri helming næsta tímabils á öðrum velli en Nou Camp. Gongora/NurPhoto via Getty Images

Barcelona þarf að yfirgefa Nývang svo hægt sé að klára að gera upp völlinn. Samkvæmt varaforseta félagsins, Ferran Olive, mun liðið spila á Nývangi allt þetta tímabil en svo yfirgefa völlinn og spila annars staðar fyrri helming af næsta tímabili.

Félag Barcelona er í mikilli skuld og samkvæmt The Atletic er skuld félagsins að fara að hækka með áframhaldandi betrumbótum á heimavelli félagsins. Félagið fór fyrst frá Nývangi í maí árið 2023 og spilaði á öðrum völlum til nóvember árið 2025, ári lengur en búist var við.

Þegar Barcelona snéri aftur á Nývang í nóvember í fyrra var aðeins pláss fyrir 45 þúsund áhorfendur þar sem aðrir pallar voru ekki tilbúnir. Nú hefur vinna haldið áfram á pöllum og er nú pláss fyrir 62 þúsund áhorfendur og búist er við að sú tala stækki enn frekar snemma á næsta ári.

Þrátt fyrir að það sé hægt að spila á vellinum á meðan það er verið að gera við pallana þá á eftir að setja þakið á leikvanginn og það er ekki hægt að spila á vellinum á meðan. Þess vegna þarf Barcelona aftur að finna annan leikvang til að spila á.

Á meðan liðið getur ekki spilað á Nývangi mun félagið leika á Ólympíuleikvanginum í Barcelona þar sem Ólympíuleikarnir árið 1992 voru haldnir. Samkvæmt Olive verður pláss fyrir 95 þúsund manns þegar liðið mun snúa aftur á völlinn þegar þakið er tilbúið. Samkvæmt því munu allir pallar ekki enn vera reistir þar sem áætlaður sætafjöldi við bætingu vallarins er 105 þúsund manns.


Tengdar fréttir

Nýr Camp Nou míglekur

Það var ekki aðeins á vellinum sem mikil úrkoma vakti athygli þegar Barcelona tók á móti Feyenoord í Meistaradeildinni í gær. Blaðamenn á leikvanginum fengu heldur betur að finna fyrir veðrinu þegar vatn tók að flæða inn á fjölmiðlasvæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×