Viðskipti innlent

Skýr merki um kólnandi vinnu­markað og hægari um­svif

Kjartan Kjartansson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Vísir/Vilhelm

Skýr merki eru um kólnandi vinnumarkað og hægari efnahagsumsvif samhliða háum vöxtum, að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Alþjóðlegur óróleiki, viðvarandi verðbólga og háir vextir hér á landi samhliða minnkandi efnahagsumsvifum segir hún geta reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins.

Yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans var birt nú í morgun. Hún segir fjármálakerfið hér á landi traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum. Fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka sé sterk og aðgengi þeirra að markaðsfjármögnun greitt.

Alþjóðlegar verðbólguhorfur hafi versnað og seðlabankar helstu iðnríkja hækkað vexti. Áhyggjur af sjálfbærni opinberra fjármála hafi aukist, langtímavextir ríkisskuldabréfa hækkað skarpt og skapað umrót á fjármálamörkuðum.

Hér á landi hafa óverðtryggðir vextir lengri ríkisskuldabréfa ekki hækkað að sama marki og gengi krónunnar haldist tiltölulega stöðugt, m.a. vegna mikils þjóðhagslegs sparnaðar og hóflegrar skuldsetningar þjóðarbúsins.

„Alþjóðlegur óróleiki, viðvarandi verðbólga og háir vextir hér á landi samhliða minnkandi efnahagsumsvifum geta reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins,“ segir í yfirlýsingunni.

Nefndin gerir grein fyrir yfirlýsingunni klukkan 9:30. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá viðburðinum í spilaranum hér fyrir neðan.

Halda sveiflujöfnunarauka óbreyttum

Aukinn kaupmáttur og lítið atvinnuleysi er sagt hafa stutt við efnahag heimila síðustu ár. Lánþegaskilyrði hafi styrkt viðnámsþrótt heimila, skuldahlutföll þeirra séu almennt lág og vanskil lítil. 

Skýr merki séu þó um kólnandi vinnumarkað og hægari efnahagsumsvif samhliða háum vöxtum. Húsnæðisverð hafi lækkað að raunvirði, íbúðum á sölu fjölgað og sölutími lengst, sérstaklega á nýjum íbúðum. 

„Þessi þróun getur reynt á fyrirtæki í byggingariðnaði og aukið vanskil í greininni,“ segir nefndin.

Nefndin telur framþróun gervigreindar geta aukið hraða, umfang og flækjustig netárása. Brýnt sé að aðilar á fjármálamarkaði efli varnir í takt við þróun netógna. Mikilvægt sé að styrkja áfram viðnámsþrótt og samhæfa viðbúnað innan fjármálakerfisins við alvarlegum rekstraratvikum. Nú þegar sé komin til framkvæmdar notkun greiðslukorta í netleysi sem sé þýðingarmikill þáttur í viðnámsþrótti greiðslumiðlunar.

Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5% í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. Nefndin mun sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×