„Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Lovísa Arnardóttir skrifar 28. september 2026 08:54 Hrannar og Bóas voru til viðtals í Bítinu á Bylgjunni um stöðuna. Bylgjan Hrannar Björn Arnarsson, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna og Bóas Valdórsson, varaformaður samtakanna og framkvæmdastjóri Sjónarhóls, ráðgjafamiðstöðvar, kalla eftir viðbrögðum og plani frá stjórnvöldum til að bregðast við löngum biðlistum barna eftir greiningu vegna ADHD. Þúsundir barna og fullorðinna bíða og vandinn þyngist bara á meðan biðin lengist.
Greint var frá því fyrir helgi að yfir 2500 börn hafa beðið í meira en þrjá mánuði eftir greiningu hjá Geðheilsumiðstöð barna. Nýjustu tölur umboðsmanns barna um biðlista sýna að staðan hefur víða versnað. Í samantekt embættisins í síðustu viku kom fram að hjá Geðheilsumiðstöð barna bíða 2705 börn eftir greiningu og hafa 2591 þeirra beðið lengur en þrjá mánuði. Frá því í febrúar hafa 252 börn bæst á listann en börnum sem hafa beðið lengur en þrjá mánuði hefur fjölgað um 691. 744 börn eru á biðlista hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð, 697 þeirra hafa verið á lista í yfir þrjá mánuði. „Maður upplifir stundum að maður sé að góna upp í vindinn,“ segir Hrannar Björn Arnarsson, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna, um viðbrögð stjórnvalda við þessum biðlistum. Rætt var við hann í Bítinu á Bylgjunni. Hann segir samtökin hafa bent á aukna ásókn í greiningar vegna aukinnar meðvitundar og þekkingar á snemmtækri greiningu og íhlutun. Þá hafi samtökin einnig bent á að afkastageta stjórnvalda sé eins og lítil trilla en það þurfi skuttogara. Afkastagetan of lítil Hann segir þetta ekki endilega snúast um manneklu, heldur þurfi fjármagn til að ráða fólk til að ráðast að vandanum og auka afkastagetu. „Í rauninni skilst okkur að þau fái sirka 100 til 150 beiðnir á mánuði en geti greint svona 50 til 60, þannig að þessi vandi er auðreiknanlegur og fyrirsjáanlegur,“ segir Hrannar Björn og að stærsta vandamálið sé lítil afkastageta til að sinna hópnum. „Vandinn hefur bara verið látinn drabbast, ekki í ár eða tvö, heldur í áratugi. Þetta hefur verið vitað mál og við höfum horft á þetta vaxa ár frá ári undanfarinn áratug,“ segir hann og að sömu biðlista sé að sjá hjá fullorðnum en þar bíði um þrjú þúsund manns eftir greiningu. „Við erum að tala um að það séu svona fimm þúsund fjölskyldur sem bíða eftir greiningu, og miðað við biðtímann sem afkastagetan býður upp á í dag er þetta bið upp á tvö, þrjú eða tíu ár og það segir sig sjálft að það bíður enginn svo lengi eftir þjónustu,“ segir hann og að eðlilega leiti fólk annað þegar biðin sé svo löng. Hrannar segir ADHD-samtökin hætt að benda á úrræði stjórnvalda og benda frekar á einkaaðila þar sem þjónustan kostar „helling“ en biðin er ekki jafn löng. Flöskuhálsinn hjá Geðheilsuteymi barna Bóas segir flöskuhálsinn þannig að þegar grunur leikur á að barn sé með ADHD fari frumgreining fram innan skólans og skólarnir og sveitarfélögin séu dugleg og næm að meta grun um ADHD og þegar rökstuddur grunur sé kominn þá sé send tilvísun á Geðheilsumiðstöð barna og þar liggi flöskuhálsinn. „Þar er biðlistinn sem við erum að tala um,“ segir hann og að þegar aðeins sé fjallað um börn með ADHD séu um 1.700 börn. Á meðan fólk bíði eftir formlegri greiningu komist börnin þó ekki í formleg úrræði til að fá læknisfræðilega meðferð. Kerfið sé ekki búið að viðurkenna vandann og börn bíði á meðan. „Við gerum mjög háa kröfu á Íslandi um mjög góð vinnubrögð, að greiningarvinna AHDH sé eins og best sé kostið í heiminum,“ segir hann og að það taki vinnu að vinna slíka vinnu. Það sé vel að vera með góð vinnubrögð en það krefjist þess að það sé hægt. Það sé ekki góð þjónusta að bið sé talin í árum. „Það er hökt og það er stór hluti í lífi barna að vera með eitthvað mögulegt. Börnum er ekki vísað í greiningu að ástæðulausu, það eru einhverjir erfiðleikar og barnið á einhvern vanda,“ segir hann og að í tilfelli barna með ADHD sé mjög áríðandi að bregðast snemma við. Börnin séu í alvarlegum vanda Hrannar segir þetta mikilvægan punkt, biðlistinn hjá Geðheilsuteymi, um tvö þúsund börn, sé að verða þrjú ár en áður hafi börnin beðið í tvö eða þrjú ár hjá sveitarfélaginu eftir að komast á þennan lista. „Þessi börn eru í alvarlegum vanda og þess vegna vísar skólakerfið þeim áfram. Þau eru oft búin að bíða í fimm eða sex ár eftir að fá einhverja lausn sinna mála,“ segir hann og að það segi sig sjálft að skólagangan gangi ekki vel á þeim tíma. „Þetta er hálf skólagangan,“ segir hann og að þau séu oft eftir á í námi eða félagslega og oft þrói börn með sér aðrar fylgiraskanir og það sé vitað að hvert ár auki á vandann og úrræðin verði þyngri. „Okkur finnst við vera lítil rödd í þessu,“ segir Bóas en að það séu samt sem áður fimm þúsund skráðir í samtökin. Umboðsmaður barna hafi bent á þetta og Embætti landlæknis sé með viðmið um bið eftir heilbrigðisþjónustu, þrjá mánuði, og þessi bið sé langt umfram það. Bóas áréttar að það sé faglegt starf unnið alls staðar en starfsfólki sé sniðinn þröngur stakkur. „Það er ekkert plan hjá hinu opinbera um hvernig á að tækla þetta,“ segir Bóas og að það sé ekki til aðgerðaáætlun um hvernig staðan eigi að vera eftir tvö eða fimm ár. Fordómar enn í samfélaginu Hrannar segir fordóma í samfélaginu gegn þeim sem eru með ADHD og umfangi þess og lyfjunum. Samtökin heyri það ítrekað úr heilbrigðiskerfinu og hann segir sterka áhrifavalda þar sem trúi því ekki að‘ vandinn sé svo umfangsmikill. Hann segir að á Íslandi séum við komin lengra og að innan áratugar verði það viðurkennt að um sjö til tíu prósent séu með ADHD og það þurfi að aðlaga heilbrigðisþjónustuna að þeirri staðreynd. Bóas segir börn of oft mæta afgangi hjá stjórnvöldum og hann vilji sjá afdráttarlausa áætlun um lausn og leiðir til að bregðast við. Það sé ekki hægt að gera átak í eitt ár. Það þurfi að móta sýn til að mæta vandanum og fjöldanum sem er að koma inn. Hrannar segir það á plani hjá ríkisstjórninni að ráðast að biðlistum barna en það sé ekki komið neitt haldbært plan um aðgerðir. „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum.“ Bóas segir gullið tækifæri fyrir metnaðarfullt fólk til að bregðast við og þeir vilji taka þátt í því samtali. „Þetta er „win win“ eins og maður segir, fyrir stjórnmálamenn, fjölskyldur, fyrir börn. Þetta er forvörn til að fólk fái rétta greiningu og meðferð á sem stystum tíma.“
ADHD Heilbrigðismál Geðheilbrigði Börn og uppeldi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Bítið Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Fleiri fréttir Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Sjá meira