Lífið

Karl Th. jarð­sunginn í dag

Jakob Bjarnar skrifar
Karl Th. Birgisson verður jarðsunginn í dag.
Karl Th. Birgisson verður jarðsunginn í dag. skjáskot úr sálmaskrá

Ritstjórinn Karl Th. Birgisson verður jarðsunginn í dag klukkan 15. Útförin verður gerð frá Hallgrímskirkju en séra Davíð Þór Jónsson syngur yfir hinum látna.

Ríkisútvarpið vinnur nú að endurflutningi rómaðra útvarpsþátta hans, Orð skulu standa, en Illugi Jökulsson rithöfundur greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni þar sem hann ritar stutt minningarorð:

„Þess varð vart þegar hann dó á dögunum að margir vildu fá að heyra á ný hina frábæru útvarpsþætti sem hann hélt úti í mörg ár ásamt góðu fólki, Orð skulu standa, og það vill svo til að ég veit að fólk hjá Ríkisútvarpinu er einmitt núna að undirbúa endurflutning á þeim og verður af því fyrr en síðar. Það er þó eitthvað að hlakka til þótt við kveðjum hann sjálfan.“

Flóð minningarorða um Kalla féllu á samfélagsmiðlum í kjölfar andlátsfregnar og tók Vísir saman það helsta sem til féll.

Í Morgunblaðinu í dag má sjá fjölda minningargreina. Meðal annarra ritar Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis grein þar sem hún minnist Kalla:

„Kalli var sérvitur og sjarmerandi, hrifnæmur og viðkvæmur. Hann reyndi auðvitað að fela það á bak við brynju kúlsins en tókst það sjaldnast. Fíknin markaði líf hans djúpum sporum og síðasta áratuginn stjórnaði hún ferðinni. Hann missti föður sinn á unglingsaldri og frásögn hans af þeim missi nístir inn að beini. Kalli var miðbæjarrotta sem leitaði reglulega í heimahagana austur á fjörðum. Bjó um tíma á Stöðvarfirði og ritstýrði góðu héraðsblaði,“ skrifar Þórunn.

Annar sem ritar um Karl er Flosi Eiríksson framkvæmdastjóri sem meðal annars rifjar upp að hann hafi á sínum tíma, einn manna í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar, lagst gegn því að Karl yrði ráðinn framkvæmdastjóri hreyfingarinnar. Þetta reyndist upphaf ævilangrar vináttu og stýrði Kalli fræknasta kosningasigri Samfylkingarinnar 2003; hlaut 31 prósent atkvæða og 20 þingmenn.

„… þar sem Kalli sat í reykfylltu bakherbergi, í orðsins fyllstu merkingu, og hélt utan um alla þræði. Á stöðufundum í þeirri kompu skipti litlu hvort maður hélt á sígarettu eða ekki – allir önduðu að sér ómældu magni af Viceroy.“

Karl fæddist 8. október 1963 en andaðist 16. september 2026. Hann lætur eftir sig þrjú börn og barnabörn.


Tengdar fréttir

Karl Th. Birgisson er látinn

Karl Th. Birgisson, stjórnmálafræðingur, ritstjóri, útvarpsmaður og rithöfundur, er látinn 62 ára að aldri. Hann andaðist í nótt 16. september en Karl hafði átt við veikindi að stríða undanfarin ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.