Fótbolti

Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hál­staki: „Þetta er bara rautt“

Aron Guðmundsson skrifar
Mahmutovic slapp með skrekkinn
Mahmutovic slapp með skrekkinn Vísir

Enes Mahmutovic, leikmaður Lúxemborgar, getur talist heppinn að hafa sloppið bara með gult spjald í leiknum gegn Íslandi í kvöld eftir að hafa tekið Brynjólf Darra Willumsson hálstaki seint í leiknum. Sérfræðingar Sýn Sport telja að um brot sem verðskuldi rautt spjald hafi verið að ræða.

Atvikið átti sér stað í uppbótartíma venjulegs leiktíma í leik sem Ísland vann sannfærandi 3-0. Með sigrinum tyllir liðið sér í toppsæti síns riðils. Frábær frammistaða sem liðið sýndi í kvöld.

Frammistaða Mahmutovic var ekki jafn frábær. Hann sýndi mikinn fautaskap undir lokinn er hann tók harkalega á Brynjólfi Darra sem hafði komið inn á sem varamaður þegar að um stundarfjórðungur eftir lifði leiks.

Klippa: Slapp með skrekkinn eftir ljótt brot gegn Íslandi

Guðmundur Benediktsson og Kjartan Henry Finnbogason lýstu leiknum á Sýn Sport og töldu Mahmutovic heppinn að hafa sloppið með gult spjald. Sérfræðingar Sýn Sport í setti voru sammála eftir leik. 

„Þetta er bara rautt spjald,“ sagði Aron Elís Þrándarson, fyrrvernandi landsliðsmaður Íslands í setti eftir leik. „Bara rugl þarna í lokin. Heppinn að sleppa með gult.“

Umrætt atvik má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni.


Tengdar fréttir

„Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“

Það var léttir fyrir landsliðsþjálfarann Arnar Gunnlaugsson að Ísland skyldi hafa unnið 3-0 sigur á Lúxemborg ytra í Þjóðadeild karla í fótbolta í kvöld. Arnar tognaði hins vegar í upphitun fyrir leik og finnur aðeins fyrir því.

„Get ekki beðið um mikið meira“

Andri Lucas Guðjohnsen skoraði og lagði upp fyrir íslenska landsliðið í knattspyrnu er liðið vann öruggan 0-3 sigur gegn Lúxemborg í 4. riðli C-deildar Þjóðadeildarinnar í kvöld.

„Langt síðan við unnum fótboltaleik“

Guðlaugur Victor Pálsson skoraði þriðja mark íslenska landsliðsins er liðið vann sterkan 3-0 sigur gegn Lúxemborg í 4. riðli C-deildar Þjóðadeildarinnar í knattspyrnu í kvöld.

„Frá morgunmat fram á 90. mínútu“

„Mér líður vel. Ekki nógu vel samt. Það eru tveir leikir eftir í þessum glugga. Við erum ennþá hungraðir,“ segir landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson eftir 3-0 sigur Íslands á Lúxemborg í Þjóðadeild karla ytra í kvöld.

Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxem­borg

Það var út á fáa leikmenn að setja eftir góðan 3-0 sigur Íslands á Lúxemborg í Þjóðadeild karla í fótbolta ytra í kvöld. Flestir, ef ekki allir, stóðu sína pligt en Andri Lucas Guðjohnsen fremstur meðal jafningja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×