Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar 2. október 2026 11:03 Það er auðvelt að tala um verðstöðugleika. Það er auðvelt að hvetja aðra til hófsemi og kalla eftir sameiginlegu átaki. Það er auðvelt að segja að heimilin eigi að geta þolað sársaukann. Hitt er erfiðara: að láta verkin tala. Í Ölfusi höfum við ekki beðið eftir því að aðrir ryðji brautina. Við höfum þegar tekið ákvarðanir sem skipta heimilin raunverulegu máli. Við höfum lækkað álögur, aukið þjónustu og byggt upp innviði fyrir eitt hraðast vaxandi sveitarfélag landsins, án þess að senda reikninginn beint til fjölskyldnanna. Það er árangur sem við megum og erum stolt af. Meiri þjónusta – lægri álögur Frá 1. mars 2026 hefur leikskóladvöl í Ölfusi verið gjaldfrjáls í allt að 36 stundir á viku, óháð tekjum foreldra og án álags á seinustu 4 tímana. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir hafa verið í boði frá upphafi skólaársins 2024–2025 og frístundastyrkur nemur 56.300 krónum á hvert barn á þessu ári. Hann gildir frá fæðingu til 18 ára. Þetta eru ekki innantóm fyrirheit. Þetta eru mælanlegar aðgerðir sem létta undir með barnafjölskyldum í hverjum einasta mánuði. Við höfum líka lækkað álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði úr 0,38% árið 2018 í 0,20% árið 2026. Við undirbúning fjárhagsáætlunar næsta árs er gert ráð fyrir að ganga enn lengra og lækka hlutfallið í 0,19%. Með því höfum við helmingað álagningarhlutfall fasteignaskatts á innan við áratug. Það gerist ekki af sjálfu sér. Það gerist vegna þess að reksturinn hefur verið traustur, forgangsröðunin skýr og pólitíski viljinn fyrir hendi. Við trúum því einfaldlega að góður rekstur sveitarfélags eigi að skila sér til íbúanna, ekki safnast upp í kerfinu. Drög að fjárhagsáætlun 2027 gera jafnframt ráð fyrir að gjaldskrár hækki aðeins um 2,5%. Ölfus er því reiðubúið að taka þátt í sameiginlegu átaki um að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5%. Við getum sagt það með fullri vissu vegna þess að við höfum þegar sýnt það í verki. Við höfum byggt brú yfir umönnunarbilið Víða um land standa foreldrar frammi fyrir erfiðu bili frá lokum fæðingarorlofs þar til barn fær dagvistun eða leikskólapláss. Í Ölfusi höfum við ekki látið nægja að ræða vandann. Við höfum byggt brú yfir bilið. Foreldrar geta fengið heimgreiðslur, allt að 108.500 krónur á mánuði, frá lokum fæðingarorlofs þar til dagvistun eða leikskóladvöl hefst. Samhliða höfum við byggt upp þjónustuna. Nýr fjögurra deilda leikskóli, Hraunheimar, var tekinn í notkun árið 2025 og fjórða deildin opnuð haustið 2026. Hjá okkur er ekki biðlisti eftir leikskólaplássi. Þetta er það sem ábyrg sveitarstjórn á að gera: sjá vandann, finna lausnina og framkvæma hana. Vöxturinn er ekki tilviljun Íbúðum í Ölfusi hefur fjölgað um 36% á aðeins fimm árum og þegar þessi orð eru skrifuð eru á þriðja hundrað íbúða í byggingu. Slíkur vöxtur verður ekki fyrir tilviljun. Hann krefst lóðaframboðs, skipulagsvinnu, gatnagerðar, leikskóla, skóla og annarra innviða. Hann krefst þess líka að sveitarfélagið hafi kjark til að fjárfesta áður en vandinn vex okkur yfir höfuð. Við höldum úti skýru yfirliti um lausar lóðir, vinnum að skipulagi nýrra íbúðarsvæða og leggjum áherslu á að úthlutaðar lóðir fari hratt í uppbyggingu. Markmiðið er einfalt: Fólk sem vill byggja sér framtíð í Ölfusi á að hafa raunhæft tækifæri til þess. Við höfum lagt okkar af mörkum Afstaða okkar í Ölfusi er skýr. Við erum reiðubúin að leggja okkar af mörkum til að ná verðbólgu og vöxtum niður. Raunar höfum við þegar gert það. Ef önnur sveitarfélög, svo ekki sé talað um ríkið, myndu fylgja okkur eftir væri staðan að öllum líkindum önnur. Sameiginlegt átak verður að vera raunverulega sameiginlegt. Hófsemi getur ekki aðeins verið krafa sem ríkið og aðrir aðilar beina að sveitarfélögunum. Ríkið, atvinnulífið og opinberar stofnanir verða að fylgja sömu viðmiðum. Það gengur ekki að sveitarfélög haldi aftur af gjaldskrám á sama tíma og ríkið hækkar sín gjöld eða veltir nýjum verkefnum og kostnaði yfir á sveitarfélögin. Við í Ölfusi ætlum að halda áfram á sömu braut. Við ætlum að verja þjónustu við börn og viðkvæma hópa, halda álögum í skefjum og láta góðan rekstur skila sér beint til íbúanna. Það er ekki loforð um að gera eitthvað síðar. Það er lýsing á því sem við erum að gera núna. Höfundur er formaður bæjarráðs í Ölfusi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ölfus Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun