Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar 2. október 2026 13:45 Miklar væntingar hafa verið til þess að lög um farsæld barna sem tóku gildi árið 2022, myndu leiða til bættrar þjónustu við börn, sérstaklega þau sem þarfnast aðstoðar. Megintilgangur laganna gengur út á að grípa börn sem glíma við náms,- sálrænan,- eða félagslegan vanda nógu snemma og veita þeim viðeigandi aðstoð. Áherslan er á að kerfin sem sinna börnum, einkum innan sveitarfélaganna, vinni vel saman. Lögin áttu að tryggja að foreldrar þyrftu ekki sjálfir að reka á eftir málum og flakka á milli stofnana í leit að lausnum fyrir barnið sitt. Innleiðingarferli laganna hefur tekið lengri tíma en gert var ráð fyrir og stendur enn yfir, amk í stærstu sveitarfélögum landsins. Ríkisendurskoðandi birti í sumar stjórnsýsluúttekt á stöðu innleiðingar laganna. Niðurstaða hennar er að innleiðingin sé ófullnægjandi og henni ólokið. Í lögunum var kveðið á um að ríkinu bæri að tryggja sveitarfélögunum fjármagn þar til innleiðing væri yfirstaðin. Nú blasir við að einn af fáum niðurskurðarliðum í fjárlagafrumvarpi næsta árs beinist að börnum. Þeim 1,1 milljarði króna sem ætlað var til innleiðingarferilsins er kippt út af fjárlögum. Þetta eru ekki stóru upphæðirnar í fjárlagafrumvarpinu en nógu háar til að skipta sköpum fyrir þá sem veita þjónustuna, sveitarfélögin. Og viðbrögðin hafa öll verið á einn veg, miklar áhyggjur eru af því að það samstarf sem verið er að reyna að koma á milli skóla-, félags- og heilbrigðiskerfisins rofni og bitni beint á börnunum. Jaðrar við sýndarmennsku Mennta- og barnamálaráðherra, Inga Sæland, hefur fullyrt opinberlega í kjölfarið að fjármunirnir verði veittir áfram en eftir öðrum leiðum. Þar sem svörin eru óskýr og þjónustuveitendurnir telji þau jaðra við sýndarmennsku, hef ég óskað eftir því að fá skrifleg svör ráðherrans við þeim atriðum sem brenna heitast. Það er brýnt að fá formleg svör við eftirfarandi spurningum: ,,Hvort ráðherra hafi metið stöðu innleiðingarinnar, hvort niðurskurðurinn samræmist samkomulagi við sveitarfélögin um að ríkið tryggi fjármagn á meðan á innleiðingunni stendur og hvort ráðherra hafi eða hyggist bregðast við ábendingum ríkisendurskoðanda og áhyggjum sveitarfélaganna um þjónusturof?“ Það hefur alls ekki verið nægilega rökstutt af hálfu ráðherra hvernig sveitarfélögin eigi að geta uppfyllt skyldur sínar gagnvart farsæld barna. Ég held ég geti fullyrt að hæstvirtur ráðherra sé sammála því að breiðu bökin í samfélaginu séu ekki börnin sem þarfnast aðstoðar. Því skýtur það óneitanlega skökku við að sjá þennan málaflokk skorinn niður svo um munar í tilraun til að skila hallalausum fjárlögum. Það þurfa að koma skýrari svör og þess verður krafist að staðið verði við stóru orðin um hug ráðamanna til umræddra barna. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í Velferðarnefnd Alþingis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rósa Guðbjartsdóttir Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun