Erlent

Mikill við­búnaður eftir að ó­þekktur hlutur fannst í sjónum

Agnar Már Másson skrifar
Farþegi um borð í Viking XPRS vakti athygli á því að skipinu hefði verið meinuð brottför vegna þess að aðgerðir stæðu yfir á svæðinu.
Farþegi um borð í Viking XPRS vakti athygli á því að skipinu hefði verið meinuð brottför vegna þess að aðgerðir stæðu yfir á svæðinu. Viking Line

Lögreglan í Finnlandi hefur lokað fyrir skipaumferð á svæði í nágrenni við Helsinki eftir að óþekktur málmhlutur fannst í sjónum. Mikill viðbúnaður er á svæðinu og lögreglan óskar eftir aðstoð finnska hersins.

Lögreglan í finnsku höfuðborginni skrifar í yfirlýsingu að lögreglunni hafi borist tilkynning upp úr klukkan 19 að staðartíma (kl. 16 að íslenskum tíma) um að trektlaga hlutur hefði fundist í sjónum suður af eyjunni Kustaanmiekka.

Yfirvöld rannsaki hvað hluturinn kunni að vera.

Lögreglan segir að farþegaskip ferðist reglulega um svæðið og hafa viðbragðsaðilar nú girt svæðið af í samvinnu við strandgæslu Finnlands. Þá segist lögreglan hafa óskað aðstoðar frá hernum vegna málsins.

Farþegi um borð í skipinu Viking Xprs, sem átti að leggja af stað frá Helsinki til Tallinn, sagði við miðilinn Ilta-Sanomat fyrr í kvöld að ekki hefði verið hægt að leggja af stað vegna aðgerða sem stæðu yfir í nágrenni við Helsinki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×