Fótbolti

Karó­lína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-um­spilið

Sindri Sverrisson skrifar
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði úr víti í dag.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði úr víti í dag. Getty/Inaki Esnaola

Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir mæta með fullt sjálfstraust til móts við landsliðið í leikina mikilvægu við Króatíu í HM-umspilinu, eftir 2-0 sigur með Inter gegn Como á Ítalíu í dag.

Cecilía hélt marki Inter hreinu rétt eins og í fyrstu umferð þegar Inter vann einnig 2-0, gegn Fiorentina, í ítölsku A-deildinni í fótbolta.

Karólína kom Inter yfir í leiknum í dag með marki úr vítaspyrnu á 63. mínútu áður en Haley Bugeja skoraði seinna markið tuttugu mínútum síðar.

Karólína hafði þá reyndar fengið tækifæri til að skora aftur úr víti á 78. mínútu en sú spyrna var varin.

Eins og fyrr segir hefur Inter því unnið fyrstu tvo leiki sína í deildinni og þá er liðið þegar komið með fjögur stig í Meistaradeild Evrópu eftir að hafa komist þangað með fræknum sigri gegn Wolfsburg í undankeppninni.

Nú taka landsleikirnir við hjá Cecilíu og Karólínu sem báðar verða væntanlega á sínum stað í byrjunarliði Íslands á föstudaginn í Króatíu. Seinni leikurinn við Króata er svo 13. október á Laugardalsvelli. Sigurliðið í einvíginu mætir sigurliðinu úr einvígi Portúgals og Norður-Írlands í tveimur leikjum um sæti á HM í Brasilíu næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×