Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar 5. október 2026 08:46 Um daginn hélt Þorgerður Katrín, utanríkisráðherra okkar Íslendinga, magnaða ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Ræðan var rökföst, staðföst og endurspeglaði gildi okkar íslendinga á alþjóðavettvangi. Þegar fréttir af ræðunni birtust á samfélagsmiðlum fjölmiðla hér á Íslandi gerðist það sem gerist nær undantekningarlaust í dag, athugasemdakerfi fylltust af skaðlegri orðræðu og hatursorðræðu. Þetta vekur óneitanlega upp spurninguna: ,,Hvar er ábyrgð fjölmiðla þegar þeir leyfa skaðlegri orðræðu að sitja óáreittri á sínum samfélagsmiðlasíðum?” Við búum við tjáningarfrelsi á Íslandi og eigum að standa vörð um það. En tjáningarfrelsi er ekki það sama og frelsi til þess að rakka fólk og minnihlutahópa niður. Tjáningarfrelsinu fylgir ábyrgð og það þýðir sannarlega ekki að hver sem er megi skrifa hvaða steypu eða hatur sem er undir greinum á fréttamiðlasíðum. Tjáningarfrelsið veitir þér rétt til að hafa þínar skoðanir, en það veitir þér ekki sjálfkrafa rétt á að nota umræðugrunn fjölmiðla sem ruslahaug fyrir hatursorðræðu. Flest okkar eiga frænda eða frænku sem skrifar óþægilegar og óviðeigandi athugasemdir á samfélagsmiðlum. Hægt er að velta því fyrir sér hvort ,,Siggi óþægilegi frændi” sem leyfir sér að skrifa hatur á athugasemdakerfið, hvort hann myndi treysta sér að standa frammi fyrir hæstvirtum utanríkisráðherra og ausa úr skálum reiði sinnar á sama hátt og hann gerir á bak við skjáinn? Flest vitum við að samskipti fólks er miklu meira en bara hið ritaða mál, oft er hægt að misskilja auðveldlega skrifuð skilaboð. Rannsóknir sýna að hið ritaða orð telur einungis um 7% af samskiptum okkar, afgangurinn er tóntegund og líkamstjáning. Í samfélagi dagsins í dag verður manneskja vör við vaxandi skautun í umræðu, stjórnmálum, skólaumhverfinu og á samfélagsmiðlum. Fólk lokast inni í sínum eigin bergmálshellum þar sem reiknirit (algorithmar) matar það af röngum upplýsingum sem magnar upp innri reiði fólks. Þegar þetta sama fólk mætir svo á athugasemdakerfi er það oft vopnað staðleysum sem það trúir af vafasömum YouTube-rásum eða öðrum samfélagsmiðlum sem eru ekki mikið fyrir að sannreyna staðreyndir. Það er kominn tíma til að kalla eftir skýrri ábyrgð fréttamiðla. Ef miðlarnir ráða ekki við að ritskoða eða halda athugasemdakerfunum lausum við skaðlega orðræðu og hreinni hatursorðræðu, eiga þeir auðvitað að loka á þau. Netverjar geta eftir sem áður endurbirt fréttir á sínum eigin samfélagsmiðlasíðum og rætt þær þar, en fréttamiðlar eiga ekki að bjóða upp á ókeypis pallborð fyrir hatursfullt þvaður. Lokum athugasemdum fréttamiðla á Facebook, takk! Mehrabian, A., & Ferris, S. R. (1967). Inference of attitudes from nonverbal communication in two channels. Journal of Consulting Psychology, 31(3), 248–252.https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/6046577/ Reykjavíkurborg. (2024, júlí). Hatursorðræða og skaðleg orðræða: Fræðsluefni.https://reykjavik.is/sites/default/files/2024-07/4.hatursordraeda_og_skadleg_ordraeda_fraedsluefni.pdf Höfundur er pistlahöfundur er kennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfélagsmiðlar Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun