Viðskipti erlent

Tölvu­þrjótarnir hafi ekki komist yfir korta­númer

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Þeir sem eru með ASOS-forritið í símanum fengu tilkynningu.
Þeir sem eru með ASOS-forritið í símanum fengu tilkynningu. Getty

Tískurisinn ASOS hefur til rannsóknar tilkynningu sem barst í síma notenda í gær. Tilkynningin var frá meintum tölvuþrjótum sem hótuðu að leka upplýsingum notenda.

Í tilkynningu segja forsvarsmenn ASOS að þeir telji óþekktan þriðja aðila hafa komist yfir upplýsingar líkt og nafn og samskiptaupplýsingar. Hins vegar telja þeir að hinir meintu tölvuþrjótar hafi ekki komist yfir upplýsingar á við kortanúmer og lykilorð.

Sjá nánar: Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum

„Við erum að rannsaka óheimila virkni sem tengist kerfum þriðja aðila sem við notum til samskipta við viðskiptavini. Við gripum samstundis til aðgerða til að takmarka aðgang að tilkynningakerfunum og vinnum með sérstökum ráðgjöfum okkar, auk allra viðeigandi yfirvalda,“ segir í yfirlýsingu frá ASOS sem The Guardian greindi frá.

Vefsíðan þeirra og símaforritið virki án nokkurra vandræða. Í lokin biðjast þau afsökunar á tilkynningunni. 

Í tilkynningunni frá meintu tölvuþrjótunum, sem íslenskir notendur forritisins fengu einnig, er vísað beint til öryggisstjóra og tæknistjóra fyrirtækisins. 

Þessi skilaboð blöstu við íslenskum notanda.Aðsend

Meintu tölvuþrjótarnir segjast þar hafa komist yfir Snowflake en um er að ræða gagnageymslufyrirtæki sem tugir fyrirtækja nota til að geyma og greina gögn. Þá sér fyrirtækið einnig um tilkynningar í síma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×