Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar 7. október 2026 08:15 „Finnst þeim bandaríska málið um nauðgarana sjö í háskólabandalaginu ekki tengjast sér?“ Svo spyr Diljá Ámundadóttir Zoëga, varaþingmaður Viðreisnar, í grein sem birtist á Vísi 5. október undir fyrirsögninni „Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir?“ Nauðgarana sjö. Ekki mennina sjö sem ásakaðir eru um nauðgun né meinta gerendur. Heldur nauðgarana. Þar með er málið afgreitt. Sektin staðfest. Dómurinn fallinn. Það er aðeins eitt smávægilegt vandamál. Samkvæmt þeim upplýsingum sem fyrir liggja hafa mennirnir ekki einu sinni verið ákærðir fyrir nauðgun, hvað þá sakfelldir. En Diljá lætur ekki slíka smámuni þvælast fyrir sér. Varaþingmaðurinn sem kveður upp dóma Hvernig getur manneskja sem tekur þátt í löggjafarstarfi vogað sér að lýsa mönnum sem nauðgurum áður en sekt þeirra hefur verið sönnuð? Skilur hún ekki þá grundvallarreglu réttarríkisins að allir eru saklausir uns sekt þeirra er sönnuð? Eða telur hún að sakleysisreglan eigi aðeins við um suma, eftir því hvort þeir eru karlar eða konur? Sakleysisreglan er ekki úrelt kurteisisvenja sem má leggja til hliðar þegar tilfinningarnar bera skynsemina ofurliði. Hún er ein af undirstöðum réttarríkisins sem ver einstaklinginn þegar almenningsálitið hefur þegar ákveðið að hann sé sekur. Það þarf ekkert sérstakt hugrekki til að verja réttindi saklauss manns sem allir elska. Hið raunverulega próf á réttlætiskenndinni er hvort við erum tilbúin að verja réttindi þess sem er sakaður um viðurstyggilegan glæp. Jafnvel þegar við trúum ásökununum og höfum samúð með þeim sem bera þær fram. Já, og jafnvel þegar sá sakaði er karlmaður. Réttarríki eða rétttrúnaðarríki? Í grein sinni veltir Diljá fyrir sér hvers vegna íslenskir karlmenn hafi ekki tekið meiri þátt í umræðunni um Cornell 7-málið. Hún spyr hvers vegna þeir láti sig málið ekki varða og gefur í skyn að þögn þeirra endurspegli skort á samstöðu með konum. En hvers konar samstöðu er hún að krefjast – samstöðu um að fordæma kynferðisofbeldi eða um að dæma sjö menn seka áður en þeir hafa fengið að verja sig fyrir dómstólum? Það er réttmætt að krefjast þess að ásakanir um kynferðisbrot séu rannsakaðar af fyllstu alvöru, en þeir sem bornir eru ásökununum eiga einnig að njóta viðeigandi verndar og réttlátrar málsmeðferðar. Undanfarna áratugi hefur okkur verið kennt að jafnrétti kynjanna sé eitt af helstu forsendum réttláts samfélags. Konur eigi að njóta sömu réttinda og karlar, sömu tækifæra, sömu áhrifa og sömu virðingar. En jafnrétti felur líka í sér ábyrgð. Það er óþolandi að konur geti krafist jafnrar aðildar að öllum valdastofnunum samfélagsins en telji sig jafnframt undanþegnar öllum kröfum um hlutlægni, sanngirni og réttláta málsmeðferð sem valdinu fylgja. Þetta á sérstaklega við um þá sem koma að löggjafarstarfi. Lögin eiga ekki að vera tæki til að staðfesta hugmyndafræðilega sannfæringu. Þau eiga að vernda borgarana, líka gegn þeim sem fara með vald. Það á ekki að þurfa að minna kjörna fulltrúa eins og Diljá á þessar staðreyndir. Hvað verður um réttarríkið ef þeir sem eiga að setja lögin líta á sakleysisregluna sem óþægilega hindrun á leiðinni að þeirri niðurstöðu sem þeir hafa þegar ákveðið? Það er athyglisvert að í grein Diljá er sjónum beint að því hvers vegna karlmenn tali ekki nógu mikið um kynferðisofbeldi. En ég vil spyrja annarrar spurningar: Hvers vegna heyrist svo lítið frá þeim sem segjast berjast fyrir mannréttindum þegar réttindi sakaðra karlmanna eru í húfi Hvar eru allar raddirnar sem tala fjálglega um mannlega reisn, jafnræði og réttlæti? Gilda þessi hugtök aðeins þegar þolandinn er kona? Engin þörf fyrir réttarríki–Diljá hefur þegar kveðið upp dóminn Diljá lýkur grein sinni á því að spyrja hvers vegna karlmenn forðist að ræða Cornell 7-málið. Ég vil frekar spyrja hvers vegna varaþingmaður íslensks stjórnmálaflokks telur sig geta kallað menn nauðgara án þess að sekt þeirra hafi verið sönnuð. Bandaríski rithöfundurinn Helen Andrews vakti gríðarleg viðbrögð á síðasta ári með ritgerð sinni The Great Feminization. Þar setti hún fram þessa fullyrðingu: Réttarríkið mun ekki lifa af verði lögfræðistéttin að meirihluta skipuð konum. Grein Diljár styður staðhæfingu Andrews. En það sem hún sagði næst skiptir meira máli. Réttarríki, skrifaði hún, felst ekki einfaldlega í því að hafa reglur á blaði. Það felst í því að fylgja reglunum jafnvel þegar niðurstaðan stríðir gegn tilfinningum okkar eða samúð okkar er öll með öðrum málsaðilanum. Hún nefndi sérstaklega meðferð kynferðisbrotamála innan bandarískra háskóla, þar sem réttindi sakaðra stúdenta voru skert í nafni þess að standa með meintum þolendum. Ég hugsaði um orð Andrews þegar ég las grein Diljár. Varaþingmaður tekur sjö menn, sem ekki hafa verið sakfelldir, ekki einu sinni ákærðir — og breytir þeim með einu pennastriki úr mönnum sem sakaðir eru um nauðgun í „nauðgarana sjö“? Sérhver maður er saklaus þar til sekt hans er sönnuð. Sakleysisreglan er hvorki karlréttindi né kvenréttindi. Hún er mannréttindi. Ef við ætlum að fórna henni á altari hugmyndafræði skulum við að minnsta kosti hafa manndóm til að viðurkenna hvað við erum að gera. Það þarf enga dómara, enga saksóknara og engin réttarhöld í samfélagi þar sem hugmyndafræði Dijlár hefur þegar kveðið upp dóminn. Höfundur er fjölmiðlafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hópnauðgun við Cornell-háskóla Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
„
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun