Skoðun

Ræktum sam­taka­mátt ASÍ

Arnaldur Grétarsson skrifar

Fjöldahreyfingar lifa á tengslum við grasrótina. Þær sækja styrk sinn í fólkið, reynslu þess, kröfur og samtakamátt. Um leið og fjöldahreyfing verður of upptekin af eigin formi, verkferlum og stofnanalegu skipulagi er hætta á að hún fjarlægist þann veruleika sem hún á að spretta úr. Formfesta er mikilvæg upp að vissu marki; hún skapar nauðsynlega umgjörð og ferla. Formfestan má hins vegar aldrei verða svo fyrirferðarmikil að hún kæfi frumkvæði eða geri leiðina frá grasrót til forystu of langa.

Þekking sem verður til með samvinnu

Alþýðusamband Íslands (ASÍ) er vettvangur þar sem 44 stéttarfélög, með fleiri en 140.000 félaga, koma saman til að móta sameiginlega stefnu um grundvallaratriði vinnumarkaðar og samfélags.

Í nýlegri grein minni fjallaði ég um mikilvægi öflugrar hagsmunabaráttu fyrir hönd launafólks og þar kom ég einnig inn á mikilvægi þess að ASÍ nýti betur þann þekkingarbrunn sem er til staðar innan hreyfingarinnar. Aðildarfélögin þekkja raunveruleikann á vinnustöðunum, sjá breytingarnar oft fyrst og vita hvar skórinn kreppir.

Hlutverk ASÍ er að safna þeirri reynslu saman, greina hana og umbreyta henni í sameiginlegan slagkraft.

Samband aðildarfélaganna og skrifstofu ASÍ á að vera tvístefnugata. Innan skrifstofu ASÍ býr verðmæt og fágæt þekking og færni sem þarf að nýtast aðildarfélögunum og félagsfólki þeirra í daglegri baráttu þeirra. Þar sækja félögin greiningar, gögn, sérfræðiráðgjöf og stuðning við stefnumótun og undirbúning krafna. Að sama skapi þarf reynsla og þekking úr starfi félaganna að skila sér inn í greiningar, stefnumótun og hagsmunagæslu ASÍ.

Samtal í báðar áttir

Í samtölum mínum við formenn stéttarfélaga um land allt undanfarið hef ég heyrt og skynjað sterkt ákall um meira og reglulegra samtal. Félögin vilja að forseti sambandsins sé aðgengilegur og sýnilegur, að boðleiðir séu styttri og að tengsl skrifstofunnar við daglegt starf félaganna séu sterkari.

Slíkt gerist ekki af sjálfu sér. Í aðdraganda 47. þings ASÍ hef ég talað við formenn allra aðildarfélaga ASÍ og heimsótt mörg þeirra þvert um landið. Hljóti ég kjör til forseta mun ég gera það að forgangsmáli mínu að halda þessu samtali áfram og láta það ekki slitna.

Ég býð mig fram til forseta ASÍ vegna þess að ég tel mig hafa þann kraft sem þarf til að hreyfa við hlutunum. Ég ber mikla virðingu fyrir sögu og sigrum verkalýðshreyfingarinnar. Á þeim grunni eigum við að byggja en við þurfum líka að hafa þor og áræðni til að uppfæra baráttuaðferðirnar.

Höfundur gefur kost á sér til embættis forseta ASÍ á 47. þingi sambandsins.




Skoðun

Skoðun

23?

Björg Magnúsdóttir skrifar

Sjá meira


×