Skoðun

„Raf­lítri“ Hvað kostar bensín­lítraí­gildi?

Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar

Það hefur lengi legið ljóst fyrir að rafbílar eru með lægri rekstrarkostnað en sambærilegir bensín- og dísilbílar. Framan af var þó erfitt að fá góða heildarmynd af hagkvæmni fyrir neytendur þar sem samanburður var býsna flókinn. Rafbílar voru á sínum tíma talsvert dýrari í innkaupum og veggjöld voru einungis rukkuð í gegnum sértæk olíugjöld á dælu sem rafbílar borguðu ekki. Nú er myndin orðin mun skýrari þar sem kílómetragjald hefur tekið við af olíugjaldi á dælu. Þetta þýðir einfaldalega að allir bílar borga eins fyrir afnot af vegum og rekstur rafbíla nýtur engra ívilnana frá stjórnvöldum. Eins hefur verðþróun rafbíla þróast með þeim hætti að rafbílar eru í dag á svipuðu verði eða ódýrari en sambærilegir bensín- og dísilbílar. Það þarf ekkert lengur að pæla í hvað lægri rekstrarkostnaður rafbíla er lengi að borga upp verðmuninn við innkaup.

Orkuverð

Það eru fáar vörur hér á landi sem almenningur hefur jafngóða verðvitund fyrir og bensínlítrinn. Ótrúlega margir ökumenn geta sagt með lítilli skekkju hvað bensínlítri kostar hverju sinni og eru duglegir að leita upp ódýrasta lítrann. Með kílómetragjaldinu varð verðlagning örlítið skýrari þar sem lokaverð samanstendur nú einungis af heimsmarkaðsverði, kolefnisgjaldi, álagningu og virðisaukaskatti. Bensínverð er síbreytilegt en hér verður notað 250 kr/lítrann sem viðmið.

Raforkuverð samanstendur af orkuverði, flutningi, dreifingu, jöfnunargjaldi og virðisaukaskatti. Sem sagt aðeins flóknari samsetning en hinsvegar miklu minni verðsveiflur en fyrir bensín. Fyrir rafbíla eru tvær megin leiðir til að kaupa raforku þ.e. í gegnum heimahleðslu og svo í gegnum hraðhleðslustöðvar þar sem raforkan er eðlilega dýrari. Hér verður notast við 25 kr/kWst fyrir heimilisrafmagn og 65 kr/kWst fyrir hraðhleðslustöðvar.

Einfaldur samanburður

Hvernig breytum við verði á kWst í verð á bensínlítraígildi, sem við skulum kalla raflítra, sem auðvelt er að bera saman við bensínverð? Jú, í einum bensínlítra eru nefnilega rétt tæplega 9 kWst af orku. Rafbílar eru hinsvegar um 3,5 sinnum orkunýtnari en bensínbílar. Ef við notum töluna 3,5 þá getum við breytt raforkuverði í raflítraverð með eftirfarandi formúlu:

Raflítraverð = kWh-verð × 9 / 3,5

Þetta gefur 65 kr/lítrinn fyrir heimilisrafmagn og 167 kr/lítrinn fyrir hraðhleðslustöð. Þetta er í raun ekki samanburður á orkueiningum heldur akstursgetu. Raflítrinn sýnir einfaldlega hvað raforkan kostar miðað við sömu akstursvegalengd og lítri af bensíni myndi skila sem er auðvitað þjónustan sem þú ert raunverulega að kaupa.

Ef við hugsum bara um bíla óháð orkugjafa sem kaupa lítra af orku til að keyra þá valið alveg augljóst. Ef bensínstöð myndi auglýsa verð á lítra sem væri 65 krónur eða jafnvel 167 krónur þá myndi biðröðin við þær dælur verða ansi langar. Með öðrum orðum kostar orkan til að keyra rafbíl yfirleitt aðeins fjórðung til tvo þriðju af því sem sambærilegur bensínbíll þarf í eldsneyti. Þótt hleðsla taki lengri tíma en bensín dæling þá er erfitt að finna dælu þar sem lítrinn kostar 65 krónur.

Höfundur er sviðsstjóri á sviði orkuskipta og hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og orkustofnun. 




Skoðun

Skoðun

Glassúrfólkið

Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar

Sjá meira


×