Viðskipti innlent

Sig­ríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir hefur látið af störfum hjá Nóa Siríus.
Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir hefur látið af störfum hjá Nóa Siríus. Aðsend

Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir hefur látið af störfum sem forstjóri Nóa Siríusar. Hún hefur fengið annað starf en bíður í bili með að greina frá því hvort hún hafi sagt skilið við sælgætisbransann.

Sigríður Hrefna tilkynnti starfsmönnum um brotthvarf sitt á fundi í dag. Aðspurð hvað taki við hjá henni slær hún á forvitni blaðamanns í bili.

„Þú færð allar fréttir um það á morgun,“ svarar Sigríður Hrefna hlæjandi.

Hún bætir við að hún sé full tilhlökkunar varðandi það sem fram undan er og skilur við Nóa Siríus full þakklætis.

„Ég tók við þessu félagi í miklum vandræðum. Félagið var varla gjaldfært en er núna skuldlaust. Þannig að ég get ekki verið annað en sátt og glöð.“


Sigríður Hrefna tók við stöðu forstjóra fyrir tæpum þremur árum eftir að hafa starfað hjá Íslandsbanka þar sem hún var framkvæmdastjóri einstaklingssviðs. Hún er með embættispróf í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands og MBA-gráðu frá Copenhagen Buisness School. Áður en hún starfaði hjá Íslandsbanka var Sigríður Hrefna framkvæmdastjóri smásölusviðs Olís.


Tengdar fréttir

Sigríður Hrefna ráðin forstjóri Nóa Síríusar

Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir hefur verið ráðin nýr forstjóri Nóa Síríusar. Þóra Gréta Þórisdóttir sem verið hefur tímabundið starfandi forstjóri mun á sama tíma hverfa aftur til fyrri starfa sem fjármálastjóri Nóa Síríusar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×