Fótbolti

Dag­skráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal

Sindri Sverrisson skrifar
Hákon Arnar Haraldsson spilar við Arsenal í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Hákon Arnar Haraldsson spilar við Arsenal í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Getty/Robbie Jay Barratt

Meistaradeild Evrópu snýr aftur í kvöld með afar áhugaverðum leikjum og má þar nefna leik Arsenal og Lille sem er með Skagamanninn Hákon Arnar Haraldsson í stóru hlutverki. Körfuboltakvöld Extra snýr líka aftur og 3. umferðin í Bónus-deild kvenna verður gerð upp í beinni útsendingu.

Það er nóg um að vera á sportrásum Sýnar í dag því auk íslensks körfubolta og fótbolta í bestu deild heims þá er Lokasóknin á Sýn Sport klukkan 21:45 þar sem allt það helsta úr NFL-deildinni er til umræðu.

Fjöldi leikja er í Meistaradeild Evrópu í kvöld og hægt að fylgjast með öllum leikjunum samtímis í Meistaradeildarmessunni þar sem jafnan er mikil stemning. Hún hefst klukkan 18:30 og leikirnir sjálfir hálftíma síðar en þar má nefna leik Arsenal og Lille á Sýn Sport 2, Atlético Madrid og Manchester United á Sýn Sport Viaplay, og Galatasaray og Barcelona á Sýn Sport 3.

Fyrr í dag eða klukkan 16:45 mætast Lens og Sporting á Sýn Sport Viaplay og nýliðarnir í Sabah taka á móti Slavia Prag á Sýn Sport 2.

Þriðju umferð Bónus-deildar kvenna lýkur með leik Ármanns og Vals á Sýn Sport Ísland klukkan 19:15 og umferðin verður svo gerð upp í Bónus Körfuboltakvöldi kvenna að leik loknum.

Þá er fyrsti þáttur af Körfuboltakvöldi Extra á dagskránni í kvöld klukkan 20 á Sýn Sport Ísland 2 en þar fjalla Stefán Árni Pálsson og hans menn um Bónus-deild karla á laufléttum nótum.

Upplýsingar um allar beinar útsendingar Sýnar má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×