Innherji

Brýtur tíu pró­senta múrinn í Skaga og fær heimild til virks eignar­hlutar

Hörður Ægisson skrifar
Fyrir kaupin í dag átti Bjarni Ármannsson 9,99 prósenta hlut í Skaga en áður en hann fór yfir tíu prósenta múrinn þurfti hann að óska eftir heimild frá Seðlabankanum til að fara með virkan eignarhlut.
Fyrir kaupin í dag átti Bjarni Ármannsson 9,99 prósenta hlut í Skaga en áður en hann fór yfir tíu prósenta múrinn þurfti hann að óska eftir heimild frá Seðlabankanum til að fara með virkan eignarhlut. Iceland Seafood

Fjárfestingafélag Bjarna Ármannssonar hefur fengið heimild frá Seðlabankanum til að fara með yfir tíu prósenta eignarhlut í Skaga, sem á meðal annars VÍS og Fossar fjárfestingabanka, eftir að hafa stækkað enn frekar stöðu sína í félaginu. Bjarni er eini einkafjárfestirinn í dag með heimild til að fara með virkan eignarhlut í einu af stærri fjármálafyrirtækjum landsins.


Tengdar fréttir

Telur stjórnar­menn þurfa að út­skýra fyrir hlut­höfum breytta af­stöðu til sam­runa

Fjárfestirinn Bjarni Ármannsson segist „ekki trúa öðru“ en að stjórnir Íslandsbanka og Skaga muni á aðalfundi félaganna í komandi viku gera efnislega grein fyrir því gagnvart hluthöfum af hverju samrunaviðræðum var slitið og kallar eftir því að lífeyrissjóðir hafi skoðun á slíkum „strategískum ákvörðunum.“ Þá er Bjarni, annar stærsti hluthafi Skaga, afar gagnrýninn á að ekki hafi verið upplýst um hvaða fjárfestar voru í samfloti með Heiðari Guðjónssyni þegar óskað var eftir hluthafafundi í Íslandsbanka í því skyni að efna til stjórnarkjörs og segir slíka „leyndarhyggju ekki vera í lagi“ þegar um sé að ræða kerfislega mikilvægan banka.

Hluta­fé Fossa aukið um 300 milljónir til að styðja við vöxt á efna­hag bankans

Á meðan afkoman hjá Skaga var dræm af fjármálastarfsemi og fjárfestingum, meðal annars talsvert rekstrartap hjá Fossum, þá náði að vega á móti að áfram var góður gangur í tryggingarekstrinum á öðrum fjórðungi. Í lok síðasta mánaðar stóð móðurfélagið að baki hlutafjáraukningu í Fossum upp á þrjú hundruð milljónir sem á að styðja við aukna lánastarfsemi fjárfestingabankans.

Gengishækkun bréfa ISB vegna mikilla endur­kaupa var „ekki for­sendu­brestur“

Þegar samið var um helstu skilmála samruna Íslandsbanka og Skaga í október, meðal annars með því að festa gagngjaldið til hluthafa Skaga í tilteknum fjölda hluta, var gert ráð fyrir áframhaldandi kaupum bankans á eigin bréfum sem hafði „óhjákvæmilega áhrif til hækkunar“ á hlutabréfaverðinu, að sögn stjórnarformanns Skaga. Hann segir það hafa verið „veruleg vonbrigði“ þegar Íslandsbanki setti fram kröfur um mikla lækkun á gagngjaldinu á grundvelli ólíkrar þróunar á markaðsvirði félaganna sem hafi ekki átt sér stoð sem ein forsenda breytinga á samkomulaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×