Innlent

Með gaddakúlu og sprautunálakylfu

Bjarki Sigurðsson skrifar
Frá Akureyri.
Frá Akureyri. Vísir/Vilhelm

Akureyringur á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, vopnalagabrot, þjófnað og fleira. Við húsleit heima hjá manninum fannst gaddakúla í bandi og kylfa með álímdum sprautunálum. 

Ákæran er birt í Lögbirtingablaðinu þar sem ekki hefur tekist að birta honum ákærurnar. 

Í fyrstu ákærunni er honum gefið að sök að hafa veist að manni með ofbeldi sumarið 2024. Hann hafi slegið hann í nokkur skipti í höfuðið með útdraganlegri kylfu og hlaut brotaþoli tvo skurði á höfði. 

Tveimur dögum eftir árásina fundust vopn heima hjá honum sem lögregla lagði hald á, gaddakúla í bandi og kylfa með álímdum sprautunálum. 

Í annarri ákærunni er hann sagður hafa stolið tveimur ilmvatnsglösum úr Lyf og heilsu að verðmæti fjörutíu þúsund króna. Þá hafi hann um svipað leyti stolið fimm ilmvatnsglösum, fjórum matarvínsflöskum og hleðslusnúru að andvirði 111 þúsund króna. 

Þriðja ákæran snýr að broti á ávana- og fíkniefnalögum þegar hann var tekinn með 0,26 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni. Málin verða öll tekin fyrir 2. nóvember næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×