Viðskipti innlent

Eitt greiðir arð en annað með nei­kvætt eigið fé

Bjarki Sigurðsson skrifar
Þessi bíóhús lifa góðu lífi þrátt fyrir fækkun síðustu ár.
Þessi bíóhús lifa góðu lífi þrátt fyrir fækkun síðustu ár. Vísir/Anton Brink/Vilhelm

Tekjur tveggja stærstu kvikmyndahúsafyrirtækja landsins drógust saman milli ára. Eigið fé félagsins sem rekur kvikmyndahús Sambíóa er orðið neikvætt en stjórn Smárabíós leggur til að eigendur félagsins fái allan hagnað síðasta árs greiddan í arð. Eigendur Laugarásbíós virðast vera að ná að snúa rekstrinum við. 

Sambíóin

Sambíóin reka kvikmyndahús í Egilshöll, Kringlunni og á Akureyri í gegnum félagið Sam-félagið ehf. sem hefur verið í rekstri síðan 1969. Félagið er í eigu Ásberg-systkinanna Alfreðs, Björns og Elísabetar Árnabarna. Öll eiga þau þriðjung. 

Í ársreikningi félagsins fyrir árið 2025 kemur fram að tekjur hafi numið tæplega 1,2 milljörðum króna og drógust þær saman um rúmar hundrað milljónir milli ára. Öll helstu rekstrargjöld drógust einnig saman milli ára. Þó var félagið rekið með tapi sjöunda árið í röð og tapaði 65 milljónum í ár samanborið við 38 milljónir 2024. Félagið skilaði síðast hagnaði árið 2018.

Eigið fé félagsins var tæpar fimmtíu milljónir í byrjun árs 2025 en er nú neikvætt upp á tæpar sextán milljónir. 

Bíó Sambíóa í Kringlunni hefur fengið andlitslyftingu. Vísir/Anton Brink

Smárabíó

Smárabíó er rekið í gegnum samnefnt félag sem er í 79 prósent eigu Draupnis fjárfestingafélags og 21 prósent eigu KOI ehf. Draupnir er í eigu Jóns Diðriks Jónssonar sem er stjórnarmaður og stærsti eigandi Senu. KOI er í eigu Konstantíns Mikaels Mikaelssonar, sem er jafnframt framkvæmdastjóri Smárabíós. Félagið sér einnig um rekstur skemmtisvæðis Smárabíós og Fótboltalands.

Tekjur félagsins námu 929 milljónum króna, samanborið við rétt rúman milljarð árið á undan. Hagnaður ársins nam 45 milljónum, samanborið við 46 milljónir 2024. Stjórn félagsins leggur til að allur hagnaðurinn verði greiddur í arð til hluthafa. Í fyrra greiddi félagið fjörutíu milljónir af 46 milljón króna hagnaði til hluthafa. 

Eigið fé félagsins stóð í 123 milljónum króna undir lok 2025 og jókst um fimm milljónir milli ára. 

Smárabíó er í Smáralind.Vísir/Anton Brink

Laugarásbíó

Laugarásbíó er rekið í gegnum félagið Kvikmyndahúsið ehf. sem er í jafnri eigu Gunnars Gunnarssonar, Magnúsar Geirs Gunnarssonar og Snorra Hallgrímssonar. Félagið skilaði hagnaði án fjármagnsliða en eftir skatta og gjöld varð hagnaðurinn að tapi upp á 457 þúsund. 

Árið á undan skilaði félagið tapi upp á 11,6 milljónir og reksturinn því umtalsvert skárri þetta árið. Félagið hefur ekki skilað hagnaði síðan árið 2019. Hlutafé félagsins var aukið um sex milljónir á árinu. Eigið fé félagsins stendur í þrettán milljónum. 

Laugarásbíó er eitt rótgrónasta bíó landsins. Þar er enn hægt að fá popp og kók. Vísir/Anton Brink

Bíó Paradís

Bíó Paradís er rekið í gegnum sjálfseignarstofnunina Heimili kvikmyndanna - Bíó Paradís ses. og skilaði ársreikningi 17. september síðastliðinn en hann hefur enn ekki verið birtur á vef Ríkisskattstjóra. Félagið skilaði hagnaði árið 2024 upp á 9,5 milljónir. 

Bíó Paradís við Hverfisgötu sýnir gjarnan kvikmyndir sem hin bíóhúsin eru ekki með sýningu.Vísir/Vilhelm





Fleiri fréttir

Sjá meira


×