Viðskipti innlent

Phoenix Sea­food og Eðal­fang sam­einast

Atli Ísleifsson skrifar
Andri Gunnarsson, stjórnarformaður Eðalfangs og Svavar Þór Guðmundsson, verðandi forstjóri Eðalfangs.
Andri Gunnarsson, stjórnarformaður Eðalfangs og Svavar Þór Guðmundsson, verðandi forstjóri Eðalfangs.

Eðalfang ehf. hefur undirritað samkomulag um sameiningu við Phoenix Seafood ehf., markaðs- og sölufyrirtæki í sjávarútvegi.

Í tilkynningu segir að við samrunann verði Phoenix sjálfstætt dótturfélag Eðalfangs, sem sé móðurfélag Norðanfisks, Borg Salmon og 101 Seafood. 

„Áætluð samanlögð velta félaganna á árinu 2026 er um 18 milljarðar króna. Um 60 starfsmenn munu starfa innan samstæðunnar og er gert ráð fyrir að 75-80% veltunnar verði á erlendum mörkuðum.

Svavar Þór Guðmundsson, aðaleigandi Phoenix Seafood, verður einn af stærstu hluthöfum Eðalfangs við viðskiptin og tekur við sem forstjóri samstæðunnar. Viðskiptin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Phoenix Seafood var stofnað árið 2020 og selur sjávarafurðir eingöngu á erlenda markaði. Ársvelta félagsins nemur tæpum 10 milljörðum króna. Félagið er stór söluaðili á hvítfiski og laxi til Bandaríkjanna, Frakklands, Bretlands og landa í Asíu.

Tækifæri í aukinni sölu laxaafurða erlendis

Markmið samrunans er að byggja upp sterkari samstæðu sem leggur áherslu á markaðs- og sölustarf með breiða vörulínu í sjávarfangi, bæði innanlands og erlendis. Phoenix hefur verið mikilvægur samstarfsaðili Eðalfangs undanfarin ár og starfsmenn félagsins búa yfir áratuga reynslu auk víðtækra viðskiptatengsla á erlendum mörkuðum,“ segir í tilkynningunni. 

Haft er eftir Andra Gunnarssyni, stjórnarformanni Eðalfangs, að félagið hafi hafið vegferðina með Eðalfang fyrir nokkrum árum með kaupum á Norðanfiski, Borg Salmon og 101 Seafood. „Félögin hafa öll vaxið umtalsvert á liðnum árum og stutt hvert við annað. Næsta skref er að efla sölu á erlendum mörkuðum, sérstaklega á laxaafurðum. Öflug vinnsla og breið vörulína félaganna, ásamt traustum viðskiptasamböndum og reynslumiklu söluteymi Phoenix, skapa enn betri grundvöll fyrir áframhaldandi vöxt á erlendum mörkuðum. Sameiningin gerir okkur kleift að tengja starfsemi félaganna enn betur saman. Það er jafnframt mikið ánægjuefni að fá Svavar til að leiða næsta vaxtarskeið félagsins,“ segir Andri.

Svavar Þór tekur við sem forstjóri

Um Svavar Þór segir að hann hafi 25 ára reynslu af sölu sjávarafurða og hafi starfað hjá Phoenix Seafood frá stofnun félagsins árið 2020.

„Við sjáum mikil tækifæri í að bjóða viðskiptavinum okkar um allan heim íslenskan lax samhliða hvítfiskinum sem þeir þekkja vel. Enn er mikil vinna fram undan við að kynna íslenskan eldislax á erlendum mörkuðum. Með því að sameina krafta okkar með Borg Salmon og Norðanfiski, dótturfélögum Eðalfangs, stöndum við sterkari að þeirri kynningu. Við, ásamt 101 Seafood, getum boðið viðskiptavinum okkar frábærar vörur þessara félaga, hvort sem um er að ræða fersk flök, bita eða reyktar afurðir,“ er haft eftir Svavari Þór, verðandi forstjóra Eðalfangs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×