Fótbolti

Fyrrum leik­maður Stjörnunnar tekst á við at­vinnu­leysi

Andri Broddason skrifar
Steven Caulker spilaði fyrir Stjörnuna á síðasta tímabili.
Steven Caulker spilaði fyrir Stjörnuna á síðasta tímabili. Stjarnan

Steven Caulker, fyrrum leikmaður Stjörnunnar, er atvinnulaus en ætlar ekki að láta það stoppa sig. Hann ætlar að halda ótrauður áfram þrátt fyrir að hann fái mikla höfnun frá störfum sem hann sækir um.

Caulker gekk til liðs við Stjörnuna á síðasta tímabili og skrifaði undir samning sem átti að gilda út árið 2026. Stjarnan og Caulker komust þó að samkomulagi eftir tímabilið að rifta samningnum hans og náði hann því ekki að klára allan samninginn.

Það er ekki oft sem leikmenn með sömu ferilskrá og Caulker ganga í Bestu deildina en hann lék með Tottenham, Liverpool og Cardiff ásamt fleiri enskum liðum á ferli sínum.

Þessa stundina virðist hann vera milli starfa en hann ætlar ekki að hætta að reyna að finna starf. Hann horfir á bandarískar stórstjörnur sem innblástur.

„Walt Disney var hafnað yfir 300 sinnum; höfnun er hluti af sögu flestra. Það sem er þó erfiðast er að hafna störfum sem manni eru boðin manni sem henta ekki markmiðum mínum,“ skrifaði Caulker á samfélagsmiðlinum LinkedIn.

Hann tekst þó við á stressið sem fylgir atvinnuleysinu með því að fara út að hlaupa og losa þannig um orku og líða betur. Eftir að hafa starfað hjá Stjörnunni var hann að þjálfa Konyaspor í Tyrklandi en hann entist ekki lengi þar en hann starfaði þar aðeins í sjö mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×