Innlent

Undir­skriftasöfnun hafin og ríkis­sakóknari í­hugar á­frýjun

Smári Jökull Jónsson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir

Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja nauðgunardómi Landsréttar þar sem maður var sýknaður eftir að hafa verið dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi. Verkefnastjóri í Háskóla Íslands segir dómara í málinu í andstöðu við eigin rökstuðning.

Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en undirskriftasöfnun er hafin í kjölfar dómsins sem þykir umdeildur.

Íslenskur kennari í París segir óeirðirnar í borginni um helgina ekkert eiga skylt við mótmæli stúdenta sem farið hafa fram undanfarnar vikur. Hann segir að mótmælin hafi haft áhrif á kennsluna sem og nemendur sína.

Reykjavíkurborg ætlar að útvista rekstri Húsdýra- og fjölskyldugarðsins sem rekinn hefur verið með halla síðustu ár. Rætt verður við forseta borgarstjórnar sem segir að staða garðsins verði greind og hún vilji efla garðinn með aðstoð atvinnulífsins.

Þrír hlauparar eru enn að í landsliðskeppninni í bakgarðshlaupum sem fram fer í Elliðaárdalnum. Við verðum í beinni þaðan í fréttatímanum og ræðum við Garp Elísabetarson um stöðu mála.

Breiðablik getur orðið Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu í kvöld en nágrannarnir úr Garðabæ standa í vegi fyrir þeim grænklæddu. Þá verður farið yfir stöðu mála í enska boltanum.

Allt þetta og meira til í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×