Handbolti

Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Birgir Steinn Jónsson er á sínu öðru ári með IK Sävehof.
Birgir Steinn Jónsson er á sínu öðru ári með IK Sävehof. IK Sävehof

Sävehof vann sannfærandi ellefu marka sigur á Kristianstad í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og er áfram með fullt hús.

Birgir Steinn Jónsson og félagar í Sävehof urðu þá fyrstir til að vinna Kristianstad í sænsku deildinni á þessu tímabili en Kristianstad var fyrir leikinn á toppnum með fullt hús eftir fjóra leiki.

Birgir Steinn nýtti bæði skotin sín í kvöld og gaf þrjár stoðsendingar að auki.

Einar Bragi Aðalsteinsson var með sex mörk og fimm stoðsendingar fyrir Kristianstad og

Baldur Fritz Bjarnason skoraði fjögur mörk úr fimm skotum. Andri Erlingsson skoraði eitt mark en Ólafur Guðmundsson komst ekki á blað.

Sävehof hefur unnið þrjá fyrstu deildarleiki sína en er bara í þriðja sætinu þar sem liðin fyrir ofan, Kristianstad og Amo, hafa bæði leikið tveimur leikjum meira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×