Erlent

Flug­sam­göngur í lama­sessi vegna öflugs felli­byls

Bjarki Sigurðsson skrifar
Veiðimenn í Keelung í norðurhluta Taívan bíða veðrið af sér.
Veiðimenn í Keelung í norðurhluta Taívan bíða veðrið af sér. AP/Chiang Ying-ying

Fellibylurinn Champi gerir íbúum Austur-Asíu lífið leitt. Einn er látinn á Taívan og Japanir hafa aflýst hundruðum flugferða vegna byljarins. 

Champi er kraftmikill hitabeltisfellibylur og hafa ríki í austurhluta Asíu undirbúið sig vel síðustu daga, meðal annars hafa allar flugsamgöngur legið niðri á Taívan í dag og búið er að rýma svæði sem bylurinn gæti haft áhrif á. Hafnir eru yfirfullar af fiskveiðibátum og strandir ríkja á svæðinu sem venjulega iða af lífi eru mannlausar. 

Kínverjar gera einnig ráð fyrir vondu veðri vegna Champi. Mynd frá Ruoshan-höfn við Shitang þar sem fiskveiðimenn gera ráð fyrir því að geta ekki veitt vegna veðurs.Getty/Zhou Xuejun

Einn lést í Taívan í nótt eftir að alda greip hann og tugir hafa slasast. Champi er á vesturleið en búist er við því að auga stormsins muni taka beygju til austurs í átt að Japan í kvöld. 

Japanir hafa frestað fjölda flugferða vegna Champi og vonast er til þess að stormurinn nái ekki að landi, þó svo að spár geri ráð fyrir því. Íbúar Okinawa undirbúa sig undir rafmagnsleysi og hefur forsætisráðherra landsins hvatt fólk til að sýna mikla gát. 

Hér má sjá spá um hvernig leið Champi verður.Getty/Yasin Demirci



Fleiri fréttir

Sjá meira


×