Fótbolti

Dómur í Maradona-málinu fellur í desem­ber

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Diego Maradona lyftir hér heimsbikarnum eftir sigur Argentínu á HM í Mexíkó 1986.
Diego Maradona lyftir hér heimsbikarnum eftir sigur Argentínu á HM í Mexíkó 1986. Getty/Paul Bereswill

Dómur í réttarhöldunum vegna andláts knattspyrnugoðsagnarinnar Diegos Maradona verður kveðinn upp 22. desember, að sögn dómstólsins.

Sjö manns eru á sakamannabekknum, þar á meðal einkalæknir Maradona, geðlæknir hans og hjúkrunarfræðingar. Þau eru ákærð fyrir stórfellt gáleysi sem kunni að hafa átt þátt í dauða knattspyrnugoðsins. Öll neita þau sök.

Maradona, sem talinn er einn besti knattspyrnumaður allra tíma, lést í nóvember 2020, sextugur að aldri. Hann lést á meðan hann var að jafna sig eftir blóðsöfnun í heila. Dánarorsökin var hjartabilun og bráð vökvasöfnun í lungum.

Við lokamálflutning í réttarhöldunum, sem staðið hafa yfir síðan í apríl, krafðist saksóknari fangelsisdóma á bilinu fjögur til tólf ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×