Handbolti

Vals­menn með þriðja sigurinn í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnar Róbertsson kom að átján mörkum í kvöld.
Gunnar Róbertsson kom að átján mörkum í kvöld. Vísir/Anton Brink

Valur vann átta marka sigur á ÍBV, 36-28, í Olís deild karla í handbolta á Hlíðarenda í kvöld.

Valsmenn voru komnir sex mörkum yfir í hálfleik, 19-13, og unnu sannfærandi sigur.

Þetta var þriðji deildarsigur Vals í röð og liðið komst upp að hlið KA í öðru sætinu. Eyjamenn áttu möguleika á því að ná Val með sigri.

Gunnar Róbertsson var með 13 mörk og 5 stoðsendingar fyrir Val en þeir Tjörvi Týr Gíslason og Bessi Teitsson skoruðu fimm mörk hvor. Björgvin Páll Gústavsson varði 26 skot og var frábær.

Atli Steinn Arnarson skoraði sex mörk fyrir ÍBV og Sveinn José Rivera var með fimm mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×