Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 25. október 2026 20:25 Vučić hefur verið viðloðinn stjórn landsins í hálfan annan áratug. Getty Kjörsókn stefnir í að verða sú mesta í þingkosningunum í Serbíu frá upplausn Júgóslavíu þar sem stúdentahreyfing freistar þess að binda enda á rúmlega áratugarlanga valdatíð Aleksandars Vučić og Serbneska framfaraflokksins, SNS.
Kjörstöðum var lokað klukkan átta að staðartíma í kvöld. Klukkustund fyrr höfðu 67,6 prósent kjósenda þegar greitt atkvæði samkvæmt umfjöllun Reuters. Það er mesta kjörsókn á þeim tíma dags frá því Júgóslavía liðaðist í sundur árið 1992. Langar raðir mynduðust við kjörstaði víða um land frá því þeir opnuðu í morgun. Um 46,5 prósent höfðu greitt atkvæði þegar klukkan var tvö, samanborið við mun minni þátttöku á sama tíma í síðustu þingkosningum árið 2023. Úrslitin gætu mögulega legið fyrir seint í kvöld. Tveggja ára mótmælahreyfing kórónast Kosningarnar marka hápunkt tæplega tveggja ára mótmælaöldu sem hófst eftir að steypt skyggni við lestarstöðina í Novi Sad hrundi í nóvember 2024 með þeim afleiðingum að sextán létust. Kjörsókn hefur verið sú mesta í manna minnum.Getty Slysið varð að tákni fyrir það sem mótmælendur telja útbreidda spillingu, frændhygli og ábyrgðarleysi í serbneskum stjórnmálum. Stúdentar tóku forystu í mótmælunum og lokuðu um tíma háskólum og götum víða um land. Í kosningunum býður hreyfingin fram lista 250 frambjóðenda sem voru valdir á fundum stúdenta við háskóladeildir landsins. Þeirra á meðal eru háskólakennarar, læknar, leikarar og aðrir einstaklingar utan hefðbundinnar flokkspólitíkur. Vučić vill aftur í forsætisráðuneytið Helsti andstæðingur hreyfingarinnar er SNS undir forystu Vučić. Vučić hefur verið ráðandi afl í serbneskum stjórnmálum í fjórtán ár, fyrst sem forsætisráðherra og síðar forseti. Hann sagði af sér forsetaembættinu fyrir kosningarnar og hyggst nú snúa aftur í embætti forsætisráðherra nái SNS að mynda ríkisstjórn. Stuðningsmenn Vučić líta margir á hann sem sterkan leiðtoga sem standi vörð um serbneska hagsmuni. Andstæðingar hans saka stjórn hans aftur á móti um spillingu, pólitísk afskipti af fjölmiðlum og sífellt alræðislegri stjórnarhætti. Serbía hefur jafnframt fetað vandrataðan milliveg í utanríkismálum undanfarin ár. Serbía er umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu en hefur viðhaldið nánum tengslum við bæði Rússland og Kína og ekki tekið þátt í refsiaðgerðum ESB gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Óttast kosningasvindl Stúdentahreyfingin sendi að minnsta kosti tvo eftirlitsmenn á hvern kjörstað af ótta við kosningasvindl. Breska ríkisútvarpið greindi frá myndböndum úr borginni Niš sem sögð voru sýna fyrirfram útfyllta kjörseðla. Einnig bárust fregnir af árásum á kosningaeftirlitsmenn og blaðamenn. Alls eru rúmlega 6,45 milljónir manna á kjörskrá og kosið var á 8.392 kjörstöðum innan lands og utan. Síðustu skoðanakannanir bentu til mjög jafnrar stöðu. Könnun sem birt var fimm dögum fyrir kosningar mældi Stúdentalistann með 44,5 prósenta stuðning meðal ákveðinna kjósenda en lista SNS með 42,7 prósent. Góð kjörsókn hefur almennt verið talin líklegri til að hjálpa stúdentahreyfingunni.
Serbía Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Sjá meira