Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Magnús Jochum Pálsson skrifar 27. október 2026 15:33 Hermann Stefánsson er skráður sem höfundur Páfagaukagarsðins í lista yfir fyrri verk höfundar í nýútkomnu skáldsögunni Sauðburði. Samt vildi Hermann ekki kannast við verkið þegar blaðamaður heyrði í honum. Rithöfundurinn Hermann Stefánsson virðist gangast við því að hafa skrifað glæpasöguna Páfagaukagarðinn sem kom út sumarið 2025 og var skrifuð undir dulnefninu Akörn. Glæpasagan er á lista yfir fyrr verk Hermanns í nýútkomnu skáldsögunni Sauðburði. Hermann kannaðist hins vegar ekki við að hafa sett verkið þar og vísaði á umbrotsmann sem vísaði á útgefanda sem vísaði aftur á Hermann.
Páfagaukagarðurinn kom út við dularfullar aðstæður sumarið 2025 en ekki nóg með að höfundurinn kæmi fram undir dulnefni heldur var útgefandinn, Bannaðar bækur – Edisjón Pósthúmus, einnig óþekktur semog umbrotsmaðurinn sem kom fram undir dulnefninu Tvífygli. Útgáfa bókarinnar var óhefðbundin að því leyti að bókin barst í pósti til útvalinna einstaklinga í bókmenntaheiminum. Aðeins eitt eintak bókarinnar fór í almenna sölu en það barst sem gjöf til bóksalans Einars Björns Magnússonar í Skáldu með leiðbeiningum um að bókin ætti að kosta þrjátíu þúsund krónur og yrði áfram til sýnis í búðinni í þrjá mánuði þó búið væri að selja hana „Ég veit ekkert meira. Ég er ekki búinn að lesa bókina en það stendur á bakkápunni að um sé að ræða glæpasögu og höfundurinn sé þjóðþekktur,“ sagði Einar Björn á sínum tíma. Bókin væri sú dýrasta í búðinni og hafði enginn enn boðið í hana þegar blaðamaður ræddi við Einar. Leiðbeiningarnar sem Einari bárust. Þó nokkur fjöldi fólks úr bókmenntaheiminum fékk bókina senda til sín, þar á meðal Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur sem sagði um að ræða hörkusögu um alþjóðlega glæpi með tengsl við Ísland, spillta auðmenn, afundnar löggur, hátæknimorð, tegundadauða, kynusla og lærdóm fyrir spilltan heim. „Akörn (flott dulnefni!) er greinilega alvöruhöfundur sem kann til verka. Við þekkjum það frá útlöndum að þekktir höfundar vilja prófa eitthvað nýtt, þar með líka nýtt höfundarsjálf, rífa sig frá því vörumerki sem höfundarnafn þeirra er,“ sagði Guðmundur Andri á sínum tíma. Rannsökuðu málið Skömmu eftir útgáfu bókarinnar hófu dagskrárgerðarmennirnir Jóhannes Ólafsson og Tómas Ævar Ólafsson formlega rannsókn á málinu í þættinum Bara bækur á Rás 1 og reyndu að komast til botns í málinu. Þeir sem voru orðaðir við gjörninginn voru meðal annars fyrrnefndur Guðmundur Andri Thorsson, Bragi Páll Sigurðarson, Steinar Bragi, Eiríkur Örn Norðdahl, Jón Örn Loðmfjörð og Hermann Stefánsson sem þótti líklegastur. Jóhannes og Tómas ræddu meðal annars við málfarsráðgjafana Guðrúnu Línberg Guðjónsdóttur og Önnu Sigríði Þráinsdóttur sem töldu báðar ólíklegt að um gervigreindarskrif væri að ræða. Guðrún giskaði þó á að um ungan höfund væri að ræða út frá undirliggjandi enskum áhrifum í setningagerð og uppsetningu. Eiríkur Örn taldi sig vissan um það hver Akörn væri. Þeir ræddu einnig við rithöfundinn Eirík Örn Norðdahl sem var einn þeirra sem fékk sent eintak af bókinni og var jafnframt viss um það hver hefði skrifað bókina. „Ég ætla ekki að gefa það upp en ég veit alveg hver skrifaði þessa bók,“ sagði Eiríkur Örn og bætti við: „Ég held að ef maður les hana og þekkir höfundinn þá finnur maður alveg út úr því.“ Sagðist ekki þekkja manninn Loks ræddi Jóhannes við Hermann Stefánsson sem var talinn líklegastur til að hafa skrifað bókina en hann hafði einmitt fengið eintak af bókinni. „Ég þekki ekki manninn en ég hef fengið bók. Ég hef ekki lesið hana, byrjaði aðeins á henni og þetta er gott,“ sagði Hermann sem bætti við að hann fengi reglulega sendingar undir dulnefni eða engu nafni. Kápa Páfagaukagarðsins. „Ég hef fengið alls konar sendingar. Fólk sendir mér dulnefnt, sem er smá krípí en samt bara skemmtilegt ef það er ekki einhver brjálæðingur. Nú veit ég ekkert hvort þetta er brjálæðingur eða ekki,“ sagði hann um höfund Páfagaukagarðsins sem hann hafði haft gaman af. Haustið 2025 bættist við nýr kafli í sögunni af Páfagaukagarðinum en þá barst Skáldu fullur kassi af annarri prentun þessarar umtöluðu skáldsögu. Það eina sem fylgdi sendingunni var miði sem á stóð „Útsöluverð 3.333 kr.“ og hefur hún verið til sölu í Skáldu síðan þá. Höfundur vísar á umbrotsmann sem vísar á útgefanda Blaðamaður sló á þráðinn til Hermanns sem var á leið á fund með manni á kaffihúsi. Þegar blaðamaður nefndi Akörn og Páfagaukagarðinn á nafn vildi Hermann ekki kannast við það. „Þetta hlýtur að vera einhver prentvilla, umbrotsmenn gera alls konar sem maður veit ekkert um. Hringdu í Aðalstein Svan umbrotsmann, ég hugsa að þetta sé á hans ábyrgð,“ sagði Hermann hlæjandi. Þú kannast ekki við þetta? „Ég svara þessari spurningu hvorki játandi né neitandi,“ sagði höfundurinn þá. Hermann Stefánsson. Algleymi kemur út í Þýskalandi í haust. Blaðamaður heyrði þvínæst í Aðalsteini Svani sem kom af fjöllum þegar Páfagaukagarðurinn var borinn undir hann. „Ég man ekkert hvaðan þessi texti kom, ég sem ekki textana á bókakápur. Ég man ekkert hvaðan það kom, ef það er ekki Hermann þá er það örugglega útgefandinn,“ sagði Aðalsteinn og átti þá við Jakob F. Ásgeirsson hjá Uglu. „Hermann er náttúrulega ólíkindatól eins og sést á kvótunum fyrir þessa nýju bók, þau eru mjög skemmtileg. Ég firra mig því allavega að hafa sett þetta þarna sjálfur óbeðinn. Það gerði ég aldrei, ábyrgðin er útgefandans,“ sagði Aðalsteinn. Þá heyrði blaðamaður í Jakobi hjá Uglu sem var jafn forviða og Aðalsteinn. „Ég man ekkert eftir þessu,“ sagði Jakob og bætti við: „Þetta hlýtur að vera frá Hermanni komið, hann hlýtur að vera að segja frá þessu sjálfur.“ „Ég get hvorki staðfest né neitað þessari sögusögn og vísa til Hermanns,“ sagði Jakob að lokum.
Bókmenntir Íslensk tunga Reykjavík Bókaútgáfa Tengdar fréttir H.M.S. Hermann ekki Hermann Stefánsson nema síður sé Guðni Elísson rithöfundur og prófessor segir það hreina og klára dellu að ein aðalpersónan í bók hans Ljósgildrunni, H.M.S Hermann sé byggður á Hermanni Stefánssyni rithöfundi. 27. október 2021 09:59 Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Hilmir Snær svarar gagnrýnendum „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Tímamót hjá Árna Má Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Stella í orlofi á stóra sviðið Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira
H.M.S. Hermann ekki Hermann Stefánsson nema síður sé Guðni Elísson rithöfundur og prófessor segir það hreina og klára dellu að ein aðalpersónan í bók hans Ljósgildrunni, H.M.S Hermann sé byggður á Hermanni Stefánssyni rithöfundi. 27. október 2021 09:59