Lög brotin við framleiðslu „túrbókjúklings“ í Danmörku Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 28. október 2026 07:53 Myndefnið úr földu myndavélinni sýnir bágborið ástand dýranna í danska búinu. EPA/CJ GUNTHER Eitt stærsta kjúklingabú Danmerkur brýtur reglur er varða hvíldartíma dýra til þess að hraða framleiðslu á kjúklingakjöti. Þetta sýnir umfjöllun danska miðilsins TV2 sem nýtti faldar myndavélar til þess að opinbera að dýrin fá einungis þrjár klukkustundir af myrkri í dag en dönsk lög kveða á um að klukkustundirnar verði að vera sex. Danskur ráðherra vill banna framleiðslu þess sem kallað er „túrbókjúklingur“ í dönskum miðlum.
Umfjöllun miðilsins snýst um starfsemi kjúklingabús í Norður-Jótlandi sem er í eigu danska bóndans Christian Tvergaard. TV2 setti falda myndavél á starfsmann búsins sem starfaði þar frá 19. maí 2025 til 8. júlí sama ár. Bóndinn segir á myndbandsupptöku TV2 að hann nýti skemmri birtutíma til þess að fá dýrin til þess að borða meira svo þau bæti hraðar á sig þyngd. Þá segir miðillinn að upptökurnar sýni einnig bágborið ástand þó nokkurra fugla í búi bóndans. Vísir hafði eftir dönskum miðlum árið 2023 að hinn svokallaði „túrbókjúklingur“ væri frekar keyptur í Danmörku heldur en venjulegur kjúklingur. Kjúklingurinn er ræktaður til þess að stækka hraðar en venjulegur kjúklingur og er dýrið orðið tvö kíló að þyngd 33 dögum eftir fæðingu. Til samanburðar eru venjulegar hænur um 46 til 63 daga að stækka svo þær séu tilbúnar til slátrunar. Fram kemur í umfjöllun danska miðilsins Berlingske að bann við slíkri ræktun njóti æ meira fylgis á danska þinginu og að svo virðist vera sem pólitískur meirihluti sé við það að myndast. TV2 hefur eftir Christian Rabjerg Madsen, ráðherra náttúru- og dýravelferðar, að hann vilji vinna að banni á framleiðslu „túrbókjúklings“. Kanna þurfi málið til hlýtar. „Ég er reiður út af þessu myndefni og við sjáum að þessari ræktun fylgja vandamál varðandi velferð kjúklinganna, því þeir vaxa einfaldlega of hratt til þess að líkaminn geti fylgt þeim eftir,“ segir ráðherrann við TV2.
Danmörk Dýr Matvælaframleiðsla Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Sjá meira