Íbúar Feneyja mótmæla brúðkaupi Bezos
Íbúar í Feneyjum hafa mótmælt í aðdraganda brúðkaups bandaríska auðmannsins Jeff Bezos og unnustu hans Lauren Sanches sem ætla að gifta sig í borginni í lok þessa mánaðar. Fjöldi íbúa, sem hafa lengi lýst áhyggjum af ofurtúrisma í borginni, er ósáttur við áformin og segja þarfir íbúa þurfa að víkja fyrir ferðamönnum.