Vonast til að ný ríkisstjórn verði kynnt í næstu viku Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist sjá fyrir sér að hægt verði að kynna nýja ríkisstjórn í næstu viku, að því gefnu að tímaáætlun um afgreiðslu tillagna kjörbréfanefndar, um hvort staðfesta skuli kjörbréf þingmanna gefin út á grundvelli endurtalningar í Norðvesturkjördæmi, standist. Innlent 23. nóvember 2021 21:02
Meirihluti að myndast í kjörbréfanefnd en minnihlutinn vil ganga mislangt Fulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingar í kjörbréfanefnd Alþingis telja tilefni til ógildingar Alþingiskosninganna í Norðvesturkjördæmi, og þar með uppkosningar, vegna ágalla á framkvæmd kosninganna. Fulltrúi Pírata í nefndinni gengur lengra og telur að kjósa eigi aftur á landinu öllu. Innlent 23. nóvember 2021 20:00
Vonar að nýju þingi takist betur til við stjórnarskrárbreytingar Forseti Íslands vonar að nýju þingi takist betur til við breytingar á stjórnarskránni en á síðasta kjörtímabili. Meirihluti fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Flokks fólksins í kjörbréfanefnd leggur til að öll kjörbréf sem Landskjörstjórn gaf út að lokinni endurtalningu í Norðvesturkjördæmi verði samþykkt. Innlent 23. nóvember 2021 18:09
Meirihluti telur ekki forsendur til ógildingar kosninganna Formaður kjörbréfanefndar segir að meirihluti nefndarmanna telji ekki forsendur til að ógilda kosningarnar í Norðvesturkjördæmi. Ekkert hafi komið fram um að gallar hafi haft áhrif á úrslit kosninganna. Fulltrúi Pírata skrifar ekki undir greinargerð undirbúningskjörnefndar sem rannsakaði málið. Innlent 23. nóvember 2021 16:07
„Full ástæða til að fara yfir málefni Hjalteyrarheimilisins“ Forsætisráðherra bendir á að athugasemdir hafi verið gerðar nokkrum sinnum gegnum tíðina við Hjalteyrarheimilið án þess að hjónin þar hafi verið stöðvuð. Hún telur fulla ástæðu til að rannsaka heimilið eftir það sem nú er komið fram. Það sé þó dómsmálaráðuneytið sem ákveði að taka upp slíka rannsókn. Innlent 23. nóvember 2021 15:32
„Frelsi til að sýkja aðra er rangsnúinn réttur“ Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hvatti þingmenn til dáða er hann ávarpaði Alþingi við setningu þings í dag. Ræddi hann viðbrögð íslensk samfélags við kórónuveirufaraldrinum auk þess sem hann bað þingmenn að ræða kosti þess og galla að halda næstu Alþingiskosningar að hausti til. Þá sagðist hann vonast til þess að betur gengi nú að ráðast í umbætur á stjórnarskránni. Innlent 23. nóvember 2021 15:11
Bein útsending: Rætt við þingmenn í kjörbréfanefnd Alþingi kemur saman klukkan hálf tvö í dag eftir eitt lengsta þinghlé síðari ára. Undirbúningskjörbréfanefnd birtir greinargerð sína vegna framkvæmdar kosninga í Norðvesturkjördæmi einnig í dag en reikna má með tveimur og jafnvel fleiri álitum frá nefndarfólki. Innlent 23. nóvember 2021 14:39
Bein útsending: Alþingi sett eftir langt hlé Nýtt löggjafarþing verður sett í dag og hefst þingsetningarathöfn klukkan 13:30 með guðþjónustu í Dómkirkjunni. Innlent 23. nóvember 2021 13:02
Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og Flokkur fólksins mynda meirihluta í undirbúningskjörbréfanefnd Búist er við að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Flokks fólksins myndi meirihluta í undirbúningskjörbréfanefnd um að leggja til að niðurstaða seinni talningar í kosningunum í Norðvesturkjördæmi verði látin gilda. Stjórnarflokkarnir verða því ekki samferða í málinu. Innlent 23. nóvember 2021 11:47
Þing kemur saman eftir óvenjulangt hlé Nýtt löggjafarþing kemur saman í dag, það 152. í röðinni, og hefst að vanda með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan 13:30, áður en gengið verður yfir í þinghúsið og þingið sett. Innlent 23. nóvember 2021 07:52
Allt of langt hlé og skaðlegt fyrir lýðræðið Lengsta hlé á störfum þingsins í rúma þrjá áratugi tekur enda á morgun. Stjórnarandstöðuþingmenn óttast afleiðingar svo langs hlés fyrir lýðræðið en eru langt í frá spenntir að takast á við fyrsta verkefni komandi þings - kjörbréfamálið. Innlent 22. nóvember 2021 22:01
Hanna Katrín áfram þingflokksformaður og Sigmar varaformaður Hanna Katrín Friðriksson mun áfram gegna stöðu formanns þingflokks Viðreisnar. Innlent 22. nóvember 2021 11:05
Segir Staksteinahöfund hafa alist upp við olíulampa og frábiður sér hrútskýringar „Alþingi mun eiga síðasta orðið og þar við situr. Ef skandallinn fær að standa þá er það endanlegt. Það þarf enginn að hrútskýra það neitt frekar. Það kunna fleiri að lesa sér til gagns en þeir sem ólust upp við olíulampa.“ Innlent 22. nóvember 2021 09:16
Varaþingmaður VG í Norðvestur: „Er nokkuð annað en uppkosning í boði?“ Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaþingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi, vill að Alþingi velji þá leið að halda uppkosningu í kjördæminu. Hún segir traust á framkvæmd kosninga verða að vera hafna yfir allan vafa. Innlent 21. nóvember 2021 22:07
Martröðin á barnaheimilinu á Hjalteyri Kynferðislegt, líkamlegt og andlegt ofbeldi tíðkaðist árum saman gagnvart börnum sem dvöldu hjá hjónum sem ráku barnaheimili á Hjalteyri í Hörgársveit á áttunda áratug síðustu aldar. Fólk sem þar var sem börn hefur ítrekað, án árangurs, reynt að ná eyrum yfirvalda til að fá heimilið rannsakað. Prestar sem voru í barnaverndarnefndum á sínum tíma gáfu heimilinu samþykki sitt þrátt fyrir að hafa fengið ábendingar um að þar væri ekki allt með felldu. Innlent 21. nóvember 2021 19:56
Þingmenn sendir í hraðpróf Þeim tilmælum hefur verið beint til allra sem verða viðstaddir þegar nýtt þing kemur saman í fyrsta sinn á þriðjudaginn að fara í hraðpróf við kórónuveirunni. Um er að ræða ráðstöfun sem ætlað er að koma í veg fyrir að hópsmit komi upp á Alþingi. Innlent 20. nóvember 2021 09:07
Þingmenn sem voru ekki í framboði fengu 1,6 milljón í greiðslur í september Aðrar kostnaðargreiðslur, utan fastra launa og kostnaðar, til þingmanna sem ekki voru í framboði í Alþingiskosningunum nam tæpri 1,6 milljón króna fyrir septembermánuð. Innlent 19. nóvember 2021 06:31
Undirbúningsnefnd skili af sér tillögum til kjörbréfanefndar á þriðjudag Undirbúningskjörbréfanefnd átti langan fund í dag en nú eru aðeins fimm dagar þar til Alþingi kemur saman til að leysa úr þeirri óvissu sem ríkir um útgáfu kjörbréfa þingmanna í Norðvesturkjördæmi. Innlent 18. nóvember 2021 22:22
Gagnrýnir seinagang ríkisstjórnarmyndunar og skort á fjárlögum Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir seinagang ríkisstjórnarmyndunar vekja upp spurningar um verkstjórn. Verkefnin framundan séu brýn og ríkið megi ekki við því að fjárlög frestist fram í desember. Innlent 18. nóvember 2021 20:52
„Það hringir enginn með feita bitann“ Guðmundur Andri Thorsson fráfarandi þingmaður er byrjaður aftur á Forlaginu, sínum gamla vinnustað. Innlent 18. nóvember 2021 12:54
Undirbúningskjörbréfanefnd vinnur að tveimur tillögum Undirbúningskjörbréfanefnd vinnur í sameiningu að gerð tveggja tillagna til Alþingis um hvernig skuli afgreiða kjörbréf þingmanna í Norðvesturkjördæmi. Önnur færir rök fyrir því að útgefin kjörbréf verði samþykkt og hin ekki, sem hefði í för með sér að boðað yrði til uppkosningar í kjördæminu. Innlent 18. nóvember 2021 11:11
Alþingi kemur saman á þriðjudag og greiðir atkvæði um kjörbréf á fimmtudag Alþingi kemur saman á þriðjudag og atkvæði verði greidd um niðurstöður undirbúningskjörbréfanefndar á fimmtudag í næstu viku. Þar með gæti ný ríkisstjórn litið dagsins ljós fyrir aðra helgi. Innlent 17. nóvember 2021 17:38
Tekur við stöðu formanns þingflokks Samfylkingarinnar Helga Vala Helgadóttir hefur tekið við formennsku þingflokks Samfylkingarinnar. Hún tekur við stöðunni af Oddnýju G. Harðardóttur sem gegndi embættinu á síðasta kjörtímabili. Innlent 17. nóvember 2021 13:12
Telur ekkert hafa komið fram sem sýni að önnur talning í NV-kjördæmi eigi ekki að gilda Inga Sæland telur að ekkert hafi komið fram í rannsókn undirbúningskjörbréfanefndar á talningu atkvæða í Alþingskosningunum í Norðvesturkjördæmi sem sýni að endurtalningin sem þar var framkvæmd eigi ekki að gilda. Innlent 16. nóvember 2021 20:02
Alþingi jafnvel kallað saman fyrir lok vikunnar Forsætisráðherra segir formenn stjórnarflokkanna langt komna með texta að nýjum stjórnarsáttmála en ekki sé farið að ræða verkaskiptingu. Kynnig á sáttmálanum muni bíða þar til endanleg niðurstaða liggi fyrir í Norðvesturkjördæmi. Innlent 16. nóvember 2021 13:17
Horfast þurfi í augu við efnahagslegar afleiðingar kjarasamninga Þorsteinn Víglundsson fyrrverandi félagsmálaráðherra og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins situr nú í forstjórastóli BM Vallár og horfir á pólítíkina og vinnumarkaðinn utan frá. Hann segir íslenska vinnumarkaðslíkanið ónýtt. Ekki hjálpi til að aukin harka hafi færst í samskipti milli aðila vinnumarkaðarins undanfarin ár, ekki síst með tilkomu nýrrar forystu í verkalýðsfélögunum. Innherji 16. nóvember 2021 09:30
Reiknar með að þing komi saman í næstu viku Formaður undirbúningskjörbréfanefndar smíðar nú drög að tveimur mögulegum leiðum sem nefndarmenn munu síðan taka afstöðu til. Þingmenn eru bjartsýnir á að fá niðurstöðu í málið á allra næstu dögum og er sitjandi forseti Alþingis þegar farinn að undirbúa þingfund í næstu viku. Innlent 15. nóvember 2021 18:32
MMR: Fylgi Vinstri grænna eykst og Framsóknar dregst saman milli mælinga Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 22,2 prósent og mælist flokkurinn sem fyrr stærstur samkvæmt nýrri könnun MMR. Fylgi flokksins er nær óbreytt frá síðustu fylgismælingu og rúmum tveimur prósentustigum minna en við síðustu Alþingiskosningar. Innlent 15. nóvember 2021 13:22
„Menn verða að kunna að sleppa“ Fannar Sveinsson elti þrjá einstaklinga áður en þeir stigu á svið í þættinum Framkoma á Stöð 2 í gærkvöldi. Lífið 15. nóvember 2021 13:00
Óttast að sala Mílu fái litla umfjöllun vegna starfa kjörbréfanefndar Þingmaður Samfylkingarinnar í þjóðaröryggisráði hefur áhyggjur af því að þingið fái ekki nægan tíma til að fjalla um söluna á Mílu vegna starfa undirbúningskjörbréfanefndar. Frestur til að stöðva söluna rennur út eftir mánuð Innlent 15. nóvember 2021 11:52