Bandaríkin

Bandaríkin

Höfuðborg: Washington DC. Mannfjöldi: 347,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.833.517 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Fann ástina á Tinder og endaði í Texas

Þegar Eydís Helga Gunnarsdóttir rakst á bandarískan hermann sem hafði „lækað“ hana á Tinder gerði hún ekki ráð fyrir miklu, í mesta lagi einum aukafylgjanda á Instagram. Raunin varð þó önnur. Á þessum tíma var hún einhleyp stelpa í Mosfellsbæ sem sinnti tveimur vinnum og var í krefjandi háskólanámi. Í dag, fjórum árum seinna, er hún orðin gift húsmóðir í Texas. Eitt „læk“, sem hún næstum því hunsaði, átti sem sagt eftir að breyta öllu.

Lífið
Fréttamynd

Nýr leki á rúss­neskum hluta geimstöðvarinnar

Rússneskir geimfarar ætla sér að framkvæma viðgerðir á rússneskum hluta Alþjóðlegu geimstöðvarinnar sem hefur lekið um árabil. Nýir lekar hafa greinst en geimfarar NASA áttu að leita sér skjóls um borð í geimfari sem er við geimstöðina á meðan viðgerðirnar yrðu framkvæmdar en hætt var við að gera þær í dag.

Erlent
Fréttamynd

Breyttu fóstur­vísum af meiri ná­kvæmni en áður

Vísindamönnum við Columbia-háskólann í Bandaríkjunum hefur tekist að breyta erfðamengi fósturvísa af fordæmalausri nákvæmni. Afrekið þykir geta leitt til þess að hægt verði að gefa börnum ákveðin einkenni og getu eftir pöntunum en tilhugsunin um slíkt hefur verið verulega umdeild um árabil.

Erlent
Fréttamynd

James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar

Leikarinn James Handy var stunginn til bana á heimili sínu Los Angeles á miðvikudag. Sonur kærustu Handy gaf sig fram á vettvangi glæpsins og var handtekinn vegna gruns um að hafa myrt leikarann. Leiklistarferill Handy spannaði hálfa öld og er hann þekktastur fyrir leik sinn í Jumanji, Arachnophobia og Top Gun: Maverick.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Kjarnorkuknúinn kaf­bátur í þjónustuheimsókn

Kjarnorkuknúinn bandarískur kafbátur verður í þjónustuheimsókn við Ísland í dag. Varðskipið Þór mun fylgja kafbátnum við Reykjanes og munu þar fara fram áhafnaskipti og önnur þjónusta við kafbátinn, sem ber nafnið USS Oregon.

Innlent
Fréttamynd

Segir Kúbu næsta á eftir Íran

Bandaríkin beittu í gær Miguel Díaz-Canel, forseta Kúbu, refsiaðgerðum. Auk hans voru eiginkona hans og þrír aðrir einnig beittir refsiaðgerðum en Bandaríkjamenn hafa sett verulegan þrýsting á nágranna sína og hefur Donald Trump hótað hernaðaraðgerðum gegn eyríkinu.

Erlent
Fréttamynd

Repúblikanar unnu kjör­dæma­stríðið

Útlit er fyrir að Repúblikanar geti grætt um tíu þingsæti í fulltrúadeildinni vegna breytinga á kjördæmum fyrir þingkosningarnar vestanhafs í nóvember. Það er að segja, ef allt fer eftir væntingum þeirra. Demókratar þurfa einungis nokkur sæti til að ná meirihluta í fulltrúadeildinni og bæði kannanir og sagan gefa Demókrötum byr undir báða vængi.

Erlent
Fréttamynd

Pelley látinn fjúka og ó­vissa uppi um fram­tíð 60 mínútna

Óvíst er um framtíð fréttaskýringaþáttarins 60 mínútur eftir að blaðamanninum Scott Pelley var sagt upp störfum í vikunni. Víst þykir að framleiðslu þáttarins verði haldið áfram en óttast er um veg hans og virðingu nú þegar lykilstarfsmenn eru horfnir á braut. 

Erlent
Fréttamynd

Maður sem tók tíu í gíslingu í Kali­forníu skotinn til bana

Maður sem tók tíu skólastarfsmenn í gíslingu í Kaliforníu í gær var skotinn til bana af lögregluþjónum. Eftir tæplega sextán klukkustunda umsátur um bygginguna þar sem maðurinn hélt fólkinu réðust starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) til atlögu og felldu hann.

Erlent
Fréttamynd

Biðst af­sökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“

Leikarinn Ted Danson hefur aftur beðist afsökunar á því að hafa notað „blackface“ og farið ítrekað með kynþáttaníð í uppistandsgrilli á leikkonunni Whoopi Goldberg árið 1993. Goldberg, sem átti á þeim tíma í alræmdu ástarsambandi með Danson, hafði skrifað mikið af gríninu sem fór hins vegar öfugt ofan í áhorfendur.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Taívanar líta til Úkraínu og Íran

Yfirvöld í Taívan ætla að fjölga verulega eldflaugum sem ætlað er að granda skipum. Markmiðið er að styrkja varnir eyríkisins gegn mögulegri innrás Kínverja á komandi árum og stendur til að fjölga eldflaugum og flugskeytum verulega. Ráðamenn í eyríkinu vilja læra af átökunum í bæði Úkraínu og Persaflóa, þar sem ríki hafa varist árásum mun öflugri andstæðinga.

Erlent
Fréttamynd

Sam­þykkja að koma á vopna­hléi

Leiðtogar Ísraels og Líbanon hafa samþykkt að vopnahléi verði komið á landanna á milli. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu Ísraels, Líbanon og Bandaríkjanna sem send var út í nótt. Samkvæmt samkomulaginu þarf Hezbollah að hætta öllum árásum á Ísrael og flytja alla liðsmenn sína frá suðurhluta Líbanon.

Erlent
Fréttamynd

Peabo Bryson er látinn

Söngvarinn Peabo Bryson er látinn 75 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir að hafa sungið Óskarsverðlaunadúettinn „Beauty and the Beast“ með Celine Dion úr samnefndri kvikmynd og  „A Whole New World“ með Reginu Belle úr Aladdin.

Tónlist
Fréttamynd

Sami flug­maðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit

Bandaríski flugmaður F-15E herþotunnar sem skotin var niður yfir Íran í vor var einnig skotinn niður yfir Kúveit, nokkrum vikum áður. Hann var því tvisvar sinnum skotinn niður á rétt rúmum mánuði, sem fyrrverandi herforingi líkir við að verða tvisvar sinnum fyrir eldingu.

Erlent
Fréttamynd

Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár

Forsvarsmenn geimferða- og tæknifyrirtækisins SpaceX ætla að verðleggja hvern hlut í félaginu, þegar hlutafjárútboð verður haldið, á 135 dali. Stefnt er að því að selja 555,6 milljónir hluta fyrir alls 75 milljarða dala. Það samsvarar um 9,3 billjónum króna.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björns­dóttur

Hildur Björnsdóttir tók formlega við sem borgarstjóri Reykjavíkur í gær en hún hefur verið oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík síðustu fjögur ár og borgarfulltrúi flokksins síðan 2018. Það er þó ýmislegt sem ekki allir vita um nýja borgarstjórann sem á fjögur börn, er með þrjár háskólagráður og ber sérkennilegt gælunafn.

Lífið
Fréttamynd

„Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels munnhjuggust ansi harkalega í símtali sín á milli að sögn heimildarmanna. Trump mun hafa sagt Netanjahú að hann sé „fokking klikkaður“ og að allir hati hann.

Erlent
Fréttamynd

Fjar­lægja mæli­tæki sem fylgist með AMOC nærri Ís­landi

Mælitæki í Grænlandshafi sem hefur nýst vísindamönnum til þess að fylgjast með styrk veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC) er eitt hundraða sem bandarísk stjórnvöld ætla að byrja að fjarlægja á næstunni. Aðgerðin er nýjasti liðurinn í herferð þeirra gegn loftslagsvísindum.

Erlent
Fréttamynd

Skaðabótasjóður Trumps í hættu

Donald Trump ætlar að hætta við stofnun sjóðs sem ætlað er að greiða fólki skaðabætur vegna meintrar vopnvæðingar réttarkerfis Bandaríkjanna gegn því. Ætlanir dómsmálaráðuneytisins um stofnun sjóðsins hafa verið harðlega gagnrýndar af bæði Demókrötum og Repúblikönum og þá meðal annars á þeim grundvelli að með honum vildi Trump gefa bandamönnum sínum peninga skattgreiðenda.

Erlent
Fréttamynd

Sex úr sömu fjöl­skyldu skotnir til bana

Sjö einstaklingar fundust látnir í bænum Muscatine í Iowa í Bandaríkjunum í gær, allir af völdum skotsára. Meðal þeirra var grunaður árásarmaður en fórnarlömbin virðast öll hafa tengst honum fjölskylduböndum.

Erlent
Fréttamynd

Áfram­haldandi á­tök í Líbanon þrátt fyrir sam­komu­lag

Átök héldu áfram í Líbanon í nótt þrátt fyrir að Ísraelar og Hezbollah hafi samþykkt tillögu Bandaríkjamanna um staðbundið vopnahlé. Hezbollah gerði í nótt þrjár árásir á ísraelska skriðdreka og hermenn nærri þorpum í norðurhluta Ísrael og ríkismiðlar í Líbanon hafa greint frá árásum Ísraela í suðurhluta landsins.

Erlent
Fréttamynd

Hafnar á­sökunum um nýtt hernaðar­brölt Japana

Ráðamenn víða um Asíu hyggja á aukna hernaðaruppbyggingu og þá að miklu leyti vegna áhyggja af gífurlegri uppbyggingu í Kína. Kínverjar kalla eftir samstöðu gegn nýju hernaðarbrölti Japana, sem hafna slíkum ásökunum og benda á uppbygginguna í Kína.

Erlent
Fréttamynd

Mót­mæltu flutningi á ebólusmituðum Banda­ríkja­mönnum til Kenía

Hundruð ungmenna mótmæltu fyrir utan bandaríska herstöð í bænum Nanyuki í morgun. Þar hafa Bandaríkjamenn sett upp einangrunarmiðstöð fyrir bandaríska ríkisborgara sem eru smitaðir af ebólu eða gætu hafa smitast. Hæstiréttur Keníu komst nýverið að þeirri niðurstöðu að miðstöðin mætti ekki vera þar í landi.

Erlent