Rannsókn á Stím að ljúka Rannsókn sérstaks saksóknara á Stím-málinu er á lokastigi og á henni að ljúka í næstu viku, samkvæmt heimildum. Þegar rannsókn lýkur fær saksóknari málið á sitt borð og tekur ákvörðun um saksókn eða niðurfellingu málsins. Viðskipti innlent 17. mars 2013 13:03
Í sjö ára fangelsi fyrir að ræna úrsmið Hæstiréttur dæmdi í dag pólskan karlmann, Pawel Jerzy Podburaczynski, í sjö ára fangelsi fyrir að hafa ásamt öðrum mönnum ráðist með ofbeldi og hótunum á starfsfólk úra- og skartgripaverslunarinnar Michelsen og tekið þaðan 49 armbandsúr, auk þess að hafa tekið fjóra bíla í heimildarleysi til þess að nota við ránið. Pawel var dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur og því ljóst að Hæstiréttur þyngir dóminn um tvö ár. Innlent 14. mars 2013 16:45
Bankamaður í fangelsi fyrir innherjasvik Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær Friðfinn Ragnar Sigurðsson, fyrrverandi forstöðumann hjá Glitni, í eins árs fangelsi fyrir innherjasvik. Innlent 12. mars 2013 06:00
Skiptastjóri Milestone í mál við saksóknara Sérstakur saksóknari neitar að afhenda skiptastjóra Milestone öll rannsóknargögn sem tengjast fyrirtækinu. Skiptastjórinn telur að þau geti nýst honum í málaferlum gegn Wernersbörnum og öðrum. Hann hefur því stefnt saksóknara fyrir dóm. Innlent 21. febrúar 2013 07:00
Lárus áfrýjar til Hæstaréttar Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, áfrýjaði í síðustu viku Vafningsdómnum svokallaða til Hæstaréttar. Þetta staðfesti Óttar Pálsson verjandi hans við Vísi. Guðmundur Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá bankanum sem einnig var dæmdur, hefur ekki áfrýjað. Innlent 29. janúar 2013 13:43
Ákæra gegn Jóni Ásgeiri og Lárusi Welding þingfest í fyrramálið Ákæra gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Lárusi Welding og tveimur öðrum fyrrverandi starfsmönnum Glitnis verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrramálið. Viðskipti innlent 6. janúar 2013 13:20
Meint brot lögreglumanna enn í rannsókn hjá Ríkissaksóknara Rannsókn á máli tveggja fyrrverandi starfsmanna Sérstaks saksóknara, þeirra Jóns Óttars Ólafssonar og Guðmundar Hauks Gunnarssonar, stendur enn yfir. Hún er á lokastigi segir Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, sem fer með rannsókn málsins. Innlent 3. janúar 2013 14:37
Glitnismenn geta tekið refsinguna út með samfélagsþjónustu Þeir Lárus Welding og Guðmundur Hjaltason munu ekki þurfa að sitja af sér refsingu vegna Vafningsdómsins í fangelsi. Í staðinn munu þeir geta tekið út refsinguna með samfélagsþjónustu. Þeir voru í dag dæmdir í níu mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna. Þrír mánuðir eru því óskilorðsbundir hjá hvorum þeirra. Innlent 28. desember 2012 14:49
Ríkið greiðir 20 milljónir vegna rannsakenda sem voru kærðir Íslenska ríkið þarf að greiða helminginn af málskostnaði lögfræðinga Lárusar Weldings og Guðmundar Hjaltasonar, sem voru dæmdir fyrir umboðssvik í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag með lánveitingu upp á rúma tíu milljarða til handa Vafningi sem var í raun lán til þess að greiða upp skuldir Milestone. Innlent 28. desember 2012 14:32
Hátt reitt til höggs "Það er alveg ljóst að það var hátt reitt til höggs,“ segir Þórður Bogason, verjandi Guðmundar Hjaltasonar í Vafningsmálinu. Guðmundur og Lárus Welding, forstjóri Glitnis, fengu í dag níu mánaða fangelsisdóm, þar af sex mánuði skilorðsbundna. Guðmundur Hjaltason var ekki viðstaddur dómsuppsögu. Það var hins vegar Lárus Welding en hvorki hann né Óttar Pálsson, verjandi hans, vildu tjá sig um dómsuppsöguna. Þórður Bogason segir að niðurstaðan sýni að sérstakur saksóknari þurfi að fara í naflaskoðun á því hvernig hann vinnur hlutina. Viðskipti innlent 28. desember 2012 14:23
Lárus Welding og Guðmundur Hjaltason sakfelldir Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Guðmundur Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis, voru báðir dæmdir í níu mánaða fangelsi fyrir stórfelld umboðssvik í Heraðsdómi Reykjavíkur í dag. Viðskipti innlent 28. desember 2012 14:06
Dómurinn kveðinn upp í Vafningsmálinu á morgun Dómur verður kveðinn upp í Vafningsmálinu svokallað á morgun, 28. desember. Ákærðir í málinu eru Guðmundur Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis, og Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis. Þeir eru sakaðir um umboðssvik, í tengslum við 10 milljarða peningamarkaðslán til Milestone hinn 8. febrúar 2008. Viðskipti innlent 27. desember 2012 16:12
Lárus og Magnús Arnar ákærðir sem aðalmenn Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur fjórum mönnum í Aurum-málinu svokallaða, þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Lárusi Welding, Magnúsi Arnari Arngrímssyni og Bjarna Jóhannessyni. Þeir eru ákærðir fyrir umboðssvik í tengslum við sex milljarða lánveitingu Glitnis í maí 2008. Viðskipti innlent 13. desember 2012 17:26
Þráspurt um hæfi rannsakendanna Verjendur í Vafningsmálinu spurðu ítrekað um athugun sem gerð var á því hvort rannsókn málsins hefði spillst þegar rannsakendurnir fóru að vinna fyrir þrotabú Milestone. Vitnaleiðslum lauk í gær. Innlent 7. desember 2012 00:01
Vitnaleiðslum lokið í Vafningsmálinu Vitnaleiðslum í Vafningsmáli sérstaks saksóknara er nú lokið. Alls komu 33 vitni fyrir dóminn þá þrjá daga sem vitnaleiðslur hafa staðið. Innlent 6. desember 2012 11:55
Þráspurt um hæfi rannsakenda Verjendur Lárusar Welding og Guðmundar Hjaltasonar í Vafningsmálinu hafa kallað fjóra starfsmenn sérstaks saksóknara fyrir dóminn sem vitni í morgun og þráspurt þá um rannsókn málsins, augljóslega í því skyni að finna á henni höggstað. Innlent 6. desember 2012 11:10
Karl var upptekinn á þriðjudag Karl Wernersson, fyrrverandi stjórnarformaður og aðaleigandi Milestone mætti fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun sem vitni í Vafningsmáli sérstaks saksóknara gegn Lárusi Welding og Guðmundi Hjaltasyni. Innlent 6. desember 2012 09:16
Vildu vita hvernig ákvörðun var tekin um risa peningamarkaðslán Símon Sigvaldason og Skúli Magnússon, dóimarar við Héraðsdóm Reykjavíkur, hafa ítrekað spurt vitnii í dag um formhlið lánasamninganna sem gerðir voru vegna 10 milljarða króna láns sem Milestone fékk frá Glitni. Lánið kom í gegnum fyrirtækið Vafning og líka í gegnum Svartháf. Innlent 3. desember 2012 14:43
Guðmundur neitar ásökunum: Segir málið hafa haft mikil áhrif á fjölskylduna Guðmundur Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóri Glitnis, hafnaði öllum ákæruatriðum þegar hann gaf skýrslu í Vafningsmálinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Hann ásamt Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, eru ákærðir fyrir umboðssvik með lánveitingum til Milestone í gegnum félagið Vafning. Guðmundur sagði fyrir dómi að málið hefði verið unnið eftir hefðundnum leiðum hjá Glitni, og skjalagerðin verið framkvæmd á nokkrum dögum. Innlent 3. desember 2012 11:00
Lárus segist ekki hafa ákveðið lánin til Milestone Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis banka, segir að ákvarðanir um lánveitingar til Milestone hafi verið teknar að sér fjarstöddum. Þetta sagði hann í skýrslutöku fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þegar Vafningsmálið hófst í morgun. Innlent 3. desember 2012 09:50
Bjarni á vitnalista í Vafningsmáli Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er á meðal þeirra sem eru á vitnalista í svokölluðu Vafningsmáli sérstaks saksóknara. Aðalmeðferð í málinu hefst í dag og gert er ráð fyrir að hún taki að minnsta kosti þrjá daga. Innlent 3. desember 2012 08:00
Lögreglan rannsakaði of mikið Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær 29 ára mann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vopnalagabrot, brot gegn valdstjórninni og hylmingu. Innlent 29. nóvember 2012 08:00
Grunaðir um smygl til Íslands í áraraðir „Þetta er eitt stærsta mál sem við höfum unnið að,“ segir Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, um mál átta Íslendinga og fjögurra annarra sem nú sitja inni í Kaupmannahöfn og Noregi. Innlent 28. september 2012 08:00
Kröfu um frávísun Vafningsmálsins hafnað Kröfu sakborninga í Vafningsmálinu svokallaða var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur núna klukkan tvö. Úrskurðurinn, sem Símon Sigvaldason héraðsdómari kvað upp, er ekki kæranlegur til Hæstaréttar. Það voru sakborningar í málinu, þeir Lárus Welding og Guðmundur Hjaltason, sem fóru fram á að málinu yrði vísað frá dómi vegna ágalla á málsmeðferð þegar í ljós kom að tveir lögreglumenn sem störfuðu hjá sérstökum saksóknara höfðu unnið skýrslu fyrir þrotabú Milestone sem byggðu á gögnum frá embætti sérstaks saksóknara. Viðskipti innlent 17. september 2012 14:08
Lánveitingin gat ráðið úrslitum um rekstrarhæfi Glitnis "Rannsókn er haldin slíkum annmörkum að úr því verður ekki bætt undir rekstri málsins,“ sagði Óttar Pálsson, verjandi Lárusar Welding, í málflutningi um frávísunarkröfu ákæru á hendur Lárusi og Guðmundi Hjaltasyni í Vafningsmálinu. Viðskipti innlent 31. ágúst 2012 12:50
Lárus Welding fyrir rétti í dag Sakborningar í Vafningsmálinu svokallaða, þeir Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Guðmundur Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans, mæta fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í dag, þegar málflutningur fer þar fram. Viðskipti innlent 31. ágúst 2012 09:39
Í sextán ára fangelsi fyrir morð Hlífar Vatnar Stefánsson var dæmdur í sextán ára fangelsi í morgun fyrir morðið á Þóru Eyjalín Gísladóttur í Hafnarfirði fyrr á árinu. Það var Héraðsdómur Reykjaness sem kvað dóminn upp. Hlífar Vatnar var jafnframt dæmdur til að greiða aðstandendum hennar samtals fjórar milljónir í miskabætur. Innlent 6. júlí 2012 09:58
Hæstiréttur staðfestir úrskurð í Vafningsmálinu Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð héraðsdóms að hafna kröfu verjenda í Vafningsmálinu. Þeir höfðu krafist þess að embætti sérstaks saksóknara fengi ekki að leggja fram greinargerð um innanhússrannsókn á rannsakendum málsins. Innlent 4. júlí 2012 17:27
Telur rannsóknina ekki í uppnámi Saksóknari hjá embætti sérstaks saksóknara segist ekki líta svo á að rannsóknin á Vafningsmálinu sé í uppnámi þrátt fyrir að rannsakendur málsins hafi verið kærðir fyrir brot á lögum um þagnarskyldu. Lögmaður ákærða segir drátt málsins bagalegan. Viðskipti innlent 27. júní 2012 19:54
Kröfu verjenda í Vafningsmálinu hafnað Kröfu verjenda Lárusar Welding og Guðmundar Hjaltasonar, sem ákærðir eru í Vafningsmálinu svokallaða fyrir meint umboðssvik, um að greinargerð embættis sérstaks saksóknara um innanhúsrannsókn á rannsakendum málsins, verði ekki tekin gild var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur. Símon Sigvaldason dómari kvað upp úrskurð þess efnis klukkan 14:00 í dag. Viðskipti innlent 27. júní 2012 15:00