Land rís hratt við Svartsengi Bylgjuvíxlmynd Veðurstofu Íslands sýnir aukin hraða í landrisi á svæðinu umhverfis Svartsengi. Myndir sýna landris allt að 30 mm á einum sólarhring á milli dagana 18.-19. nóvember. Innlent 19. nóvember 2023 19:54
Myndir úr Grindavík: Mikið tjón blasir við sjónum Grindvíkingar eru í óðaönn við að koma verðmætum sínum úr bænum og við þeim blasir gríðarmikið tjón. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, fangaði stöðuna á filmu í dag. Innlent 19. nóvember 2023 17:16
„Inn í miðjum storminum sér maður ekki neitt“ Konráð Guðjónsson hagfræðingur segir að óvissan í Grindavík muni ekki hafa góð áhrif á verðbólguna. Þó séu þau háð því hvernig mál þróast á Reykjanesi. Viðskipti innlent 19. nóvember 2023 15:48
Samverustund fyrir Grindvíkinga í Keflavíkurkirkju Séra Elínborg Gísladóttir mun leið samverustund fyrir Grindvíkinga í Keflavíkurkirkju klukkan fimm í dag. Agnes M Sigurðardóttir, biskup Íslands, Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Fannar Jónasson, bæjarstjórinn í Grindavík munu flytja ávörp. Innlent 19. nóvember 2023 14:22
Frekari aðgerðir fyrir Grindvíkinga til skoðunar Aðgerðir til að koma til móts við Grindvíkinga eru til skoðunar hjá Landsbankanum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Samskipti við stjórnvöld um næstu skref séu hafin. Innlent 19. nóvember 2023 13:37
„Það þarf að finna lausn á lánamálum Grindvíkinga“ Þingmenn af Suðurnesjum segja nauðsynlegt að finna lausn á lánamálum Grindvíkinga svo íbúar þurfi ekki að hafa fjárhagsáhyggjur. Bankarnir hafi svigrúm til þess að leggja sitt af mörkum. Ef þeir taki ekki af skarið sjálfir þurfi stjórnvöld að grípa til aðgerða. Innlent 19. nóvember 2023 12:18
Söfnun fyrir Grindvíkinga gengur vel Söfnun Rauða krossins til stuðnings Grindvíkingum og til þess að efla viðbragð samtakanna við náttúruhamförunum á Reykjanesskaganum hefur gengið vel. Innlent 19. nóvember 2023 12:10
Íbúar og fyrirtæki mega fara til Grindavíkur Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að hleypa íbúum ríflega eitt hundrað heimila í Grindavík inn í bæinn í dag. Þá verður starfsfólki fyrirtækja leyft að fara inn í bæinn eftir klukkan 15. Innlent 19. nóvember 2023 08:18
Öflugur skjálfti talsvert langt frá kvikuganginum Jarðskjálfti af stærðinni 3,7 mældist klukkan 05:35 í morgun, um þrjá kílómetra vestur af Kleifarvatni. Skjálftinn fannst víða á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 19. nóvember 2023 07:13
Safna dósum svo grindvísk börn fái bangsa Síðustu daga hafa fyrirtæki, einstaklingar og verkalýðsfélög lýst yfir stuðningi við Grindvíkinga og boðið fram aðstoð. Nokkrir ungir drengir úr Laugardalnum vildu leggja sitt af mörkum til að aðstoða Grindvíkinga. Þeir safna nú dósum til að grindvísk börn geti eignast nýjan bangsa. Innlent 18. nóvember 2023 21:47
Aðstæður svipi verulega til upphafs eldgossins í mars 2021 Átta sólarhringar eru síðan innskot ruddi sér leið inn í jarðskorpuna undir Grindavík. Öll gögn þykja benda til þess að kvika sé komin í efstu lög jarðskorpunnar, jafnvel í efstu 500 metrana. Innlent 18. nóvember 2023 20:59
Grindvíkingar ennþá samfélag þrátt fyrir að vera að heiman Fyrr í kvöld fóru fram körfuknattleikir kvenna- og karlaliða Grindavíkur gegn Þór á Akureyri og Hamri í Subway-deildinni í Smáranum í Kópavogi. Grindvískur þingmaður segir þann stuðning sem Grindvíkingar fá frá þjóðinni hvetja þá áfram. Innlent 18. nóvember 2023 20:10
Opna fjölmiðlamiðstöð fyrir erlenda fjölmiðla vegna jarðhræringa Ferðamálastofa mun á morgun opna miðstöð fyrir fjölmiðlafólk sem komið hefur til landsins til þess að fjalla um jarðhræringar og yfirvofandi eldgos á Reykjanesskaga. Almannavarnir eru meðal rekstraraðila og stefnt er á að fulltrúar á vegum stjórnvalda komi daglega við í miðstöðinni til þess að svara spurningum. Innlent 18. nóvember 2023 18:41
Matarboð með fyrirvara um eldgos Grindvíkingarnir Hallgrímur Hjálmarson og maðurinn hans Geir Andersen neita að leyfa neikvæðninni að ráða og efna til matarboðs á heimili sínu í Grindavík í janúar næstkomandi. Lífið 18. nóvember 2023 16:41
Úrræði fyrir grindvísk skólabörn tekin í gagnið í næstu viku Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, segir að fyrstu formlegu úrræði grindvískra skólabarna verði tekin í gagnið í skólum í Reykjavík á miðvikudaginn. Þetta segir hann á upplýsingafundi Almannavarna sem haldinn var í Skógarhlíð í dag. Innlent 18. nóvember 2023 14:00
Allt bendi til þess að það verði ekki haldin venjuleg jól í Grindavík Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn Almannavarna, segir að Grindvíkingar þurfi að búa sig undir það að búa annars staðar en heima hjá sér næstu mánuðina. „Því miður bendir allt til þess að það verði ekki haldin venjuleg jól í Grindavík.“ Innlent 18. nóvember 2023 13:53
Þurfi ekki mikil átök til að kvikan nái til yfirborðs Kristín Jónsdóttir, hópstjóri í náttúruváreftirliti hjá Veðurstofu Íslands, segir að staðan á Reykjanesi í dag sé svipuð og hún hefur verið. Það dragi úr aflögun og skjálftavirkni með hverjum degi sem líður. Innlent 18. nóvember 2023 13:30
„Bankarnir eru að pissa í skóinn sinn“ Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Grindvíkingur, segist enn ekki búinn að meðtaka fyllilega aðstæðurnar sem upp eru komnar. Hann vill að því verði komið í kring að Grindvíkingar geti keypt nýbyggt húsnæði á höfuðborgarsvæðinu og húsnæðislán þeirra í Grindavík verði fryst að fullu. Innlent 18. nóvember 2023 13:01
Bein útsending: Upplýsingafundur almannavarna Upplýsingafundur almannavarna vegna ástandsins á Reykjanesskaga verður haldinn í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð í dag. Fundinn má sjá í beinni útsendingu hér á Vísi. Innlent 18. nóvember 2023 12:50
Frír fiskur og franskar handa Grindvíkingum Hjálparsamtökin World Central Kitchen ætla að bjóða Grindvíkingum upp á ókeypis fisk og franskar í Smáranum í Kópavogi í dag. Þar fara fram leikir karla- og kvennaliðs Grindavíkur í körfubolta. Innlent 18. nóvember 2023 11:49
Stuðningur vegna launa fólks sem starfar í Grindavík Grindvíkingar takast nú á við nýjan veruleika fjarri heimilum sínum. Verkefnin fram undan eru mörg og snúa meðal annars að húsnæðismálum, skólagöngu barna, afkomu fólks og sálrænum stuðningi. Sveitarstjórn Grindavíkur er leiðandi í að halda utan um málefni íbúa sinna og nýtur stuðnings og aðstoðar annarra sveitarfélaga, ríkisins og ríkisstjórnarinnar. Skoðun 18. nóvember 2023 10:31
Ekki sjálfsögð krafa að fara inn á hættusvæði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa afmörkuðum hópi Grindvíkinga inn í bæinn í dag. Búið er að hafa samband við alla þá sem mega fara að sækja verðmæti. „Vakin er athygli á því að það er ekki sjálfsögð krafa að fara inn á hættusvæði sem hefur verið rýmt af öryggisástæðum.“ Innlent 18. nóvember 2023 08:38
Tæplega fimm hundruð skjálftar frá miðnætti Frá miðnætti í dag hafa mælst rúmlega 470 jarðskjálftar yfir kvikuganginum á Reykjanesi. Innlent 18. nóvember 2023 07:46
Upplýsingafundur Almannavarna á morgun Klukkan 13:00 á morgun, laugardaginn 18. nóvember verður haldinn upplýsingafundur almannavarna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Innlent 17. nóvember 2023 21:51
„Við bíðum bara eftir gosi“ Ólöf Helga Pálsdóttir íbúi í Grindavík segir óvissuna erfiðasta. Fjölskyldan sé örugg og það sé mikilvægast. Hún segir áríðandi að Grindvíkingar fái aðstoð með lán, leigu og afkomu. Innlent 17. nóvember 2023 18:17
Verðlaunaljósmyndari gáttaður á takmörkunum við Grindavík Verðlaunaljósmyndarinn Carsten Peter, sem myndað hefur náttúruhamfarir um heim allan, er staddur á Íslandi til að mynda atburðina á Reykjanesskaga. Hann kveðst gáttaður á skorti á upplýsingum frá íslenskum stjórnvöldum og takmörkunum gegn fjölmiðlum en honum hefur ekki verið hleypt inn til Grindavíkur og fær engin svör frá lögreglu. Innlent 17. nóvember 2023 16:32
„Ástandið er að breytast úr sorg í reiði“ Maður úr Grindavík segir íbúa bæjarins tifandi tímasprengju. Fólki sé að verða ljóst að það sé ekki á leiðinni heim til sín á næstunni og að bankarnir muni ekki koma því til aðstoðar. Innlent 17. nóvember 2023 14:54
Ekki líkamlega erfið verkefni en reyna mjög á andlega Aðgerðarstjóri björgunarsveitarinnar Suðurnes segir verkefnin í Grindavík síðustu daga hafa reynt mikið á björgunarsveitafólk. Verkefnin séu ekki erfið líkamlega en reyni mikið á andlegu hliðina. Hann á von á að ástandið verði viðvarandi næstu mánuðina. Innlent 17. nóvember 2023 13:57
Fyrirtæki sem þiggi stuðning greiði ekki út arð Forsætisráðherra segir að frumvarp um laun til handa Grindvíkingum sé sambærilegt lögum um laun í sóttkví sem notuð voru í heimsfaraldri. Verið sé að kortleggja laust húsnæði. Fyrirtæki sem þiggi stuðning geti ekki greitt út arð nema að þau endurgreiði ríkinu. Innlent 17. nóvember 2023 13:55
Stofnun viðbragðsteymis við vá Samkvæmt almannavarnalögum er það Ríkislögreglustjóri sem fer með málefni almannavarna í umboði ráðherra og lögreglan ber ábyrgð á leitar- og björgunaraðgerðum á landi en óumdeilt er að Slysavarnafélagið Landsbjörg (SL) gegnir lykilhlutverki í öllum vegameiri leitar- og björgunarstörfum hérlendis. Skoðun 17. nóvember 2023 13:01