Reykjarmökkur líklega ekki eldgos Ólíklegt er að reykur sem streymir úr hrauni við Litla-Hrút sé eldgos. Líklega sé um að ræða gas eða hita sem sé að losna úr nýlegu hrauni vegna jarðhræringanna sem hafa orðið í dag. Innlent 10. nóvember 2023 16:43
„Þunn lína á milli þess að fræða og hræða“ Almannatengill segir þunna línu á milli þess að fræða fólk og hræða á óvissutímum sem þessum. Hann telur suma jarðvísindamenn hafa farið yfir þá línu síðustu daga. Misvísandi skilaboð geti valdið fólki miklu hugarangri og skapað upplýsingaóreiðu. Innlent 10. nóvember 2023 15:58
Annar stór skjálfti Annar mikill jarðskjálfti fannst rétt sunnan við Sýlingarfell tuttugu mínútum eftir klukkan þrjú í dag. Samkvæmt fyrstu mælingum Veðurstofu er stærð hans 4,3. Innlent 10. nóvember 2023 15:44
Gerir ekki lítið úr alvarleikanum en segir alls ekki tímabært að rýma Grindavík Magnús Tumi Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði segist ekki vilja gera lítið úr alvarleika þess sem á sér nú stað á Reykjanesi en að flestir vísindamenn telji að taka þurfi á þessum atburðum með ró og yfirvegun. Á þessari stundu sé ekkert sem bendi til þess að gjósi bráðlega. Innlent 10. nóvember 2023 14:47
Öflugur jarðskjálfti Nokkuð öflugur jarðskjálfti reið yfir á suðvesturhorninu um korter í eitt. Skjálftinn var af stærðinni 4,1. Innlent 10. nóvember 2023 12:48
Öflug skjálftahrina hófst í morgunsárið eftir rólegheitin í nótt Fremur öflug skjálftahrina tók sig upp að nýju í morgun eftir tiltölulega rólega nótt á Reykjanesinu. Nokkrir stærri skjálftar hafa riðið yfir frá því um átta leytið í morgun, sjö þeirra voru yfir 3 að stærð. Náttúruvársérfræðingur segir að íbúar svæðisins megi áfram að búast við öflugum skjálftum allt að fimm að stærð. Innlent 10. nóvember 2023 12:19
Leggja fram frumvarp um byggingu varnargarða Ríkisstjórn mun leggja fram frumvarp um byggingu varnargarða í Svartsengi. Frumvarpið er byggt á tillögu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Næst fer málið fyrir þing. Rætt verður við formenn allra flokka í dag. Innlent 10. nóvember 2023 12:13
Enn skelfur jörð með fjórum skjálftum yfir þremur Ný skjálftahrina hófst í morgun á Reykjanesi. Fjórir skjálftar yfir þremur að stærð hafa mælst síðan klukkan sjö. Náttúruvásérfræðingur býst við að staðan verði eins næstu daga. Innlent 10. nóvember 2023 10:58
Rólegt yfir mælum í nótt og enginn skjálfti yfir 2,0 stig eftir miðnætti Það var rólegt yfir mælum Veðurstofunnar í nótt og enginn skjálfti verið yfir 2,0 stig eftir miðnætti. Innlent 10. nóvember 2023 07:02
Norðurljósavegi við Svartsengi lokað fyrir almennri umferð Lögreglan á Suðurnesjum hefur tekið þá ákvörðun að loka Norðurljósavegi við Svartsengi, þar sem Bláa lónið og Northern Light Inn hótelið eru til húsa, fyrir almennri umferð. Innlent 9. nóvember 2023 22:10
„Íbúar í Grindavík geta verið rólegir“ HS orka undirbýr nú varnargarða vegna mögulegs eldgoss nærri Grindavík. Yfirlögregluþjónn almannavarna segir mjög litlar líkur á að gos sem hæfist núna hefði áhrif í Grindavík með stuttum fyrirvara, því geti íbúar Grindavíkur verið rólegir. Innlent 9. nóvember 2023 21:15
Vinna hafin við undirbúning varnargarða í Svartsengi Ummerki eftir skjálftana í nótt sjást víða. Á Grindavíkurvegi eru sprungur í malbiki sem Vegagerðin vaktaði í dag og í orkuverinu í Svartsengi eru víða sprungur. Þar er hafin vinna við undirbúning varnargarða. Innlent 9. nóvember 2023 20:30
Enginn hafi sofið af sér erfiða og langa jarðskjálftahrinu Íbúar í Grindavík lýsa erfiðri nótt og einhverjir pökkuðu jafnvel í töskur. Bláa lóninu var lokað eftir mikla og tíða skjálftavirkni á svæðinu, sá stærsti var 4,8 að stærð Innlent 9. nóvember 2023 19:22
Lokun Northern Light Inn: Fjölmiðlaumfjöllun „ekki í neinu samræmi við raunveruleikann“ Hótelið Northern Light inn, sem staðsett er við Svartsengi hefur farið að frumkvæði Bláa lónsins og verður lokað næstu vikuna. Eigandi hótelsins segir lokunina þó einungis stafa af umfjöllun fjölmiðla um ástandið á Reykjanesskaga vegna jarðhræringa. Innlent 9. nóvember 2023 19:01
Hægt að nota pastavatn til að hita upp eldhúsið HS Veitur hafa birt ábendingar til íbúa á Suðurnesjum vegna mögulegs langtíma þjónusturofs veitukerfa vegna náttúruhamfara. Fólki er meðal annars bent á að lágmarka notkun þvotta-, og uppþvottavéla og draga fyrir glugga þegar ekki er sólskin. Innlent 9. nóvember 2023 14:56
Bygging varnargarða bíði tillögu „Er ekki orðið tímabært að fara að ráðum þessara sérfræðinga og að minnsta kosti, taka einhverja ákvörðun og helst þá að hefja framkvæmdir til að verja byggð og aðra innviði?“ spurði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma í dag. Innlent 9. nóvember 2023 14:40
Nokkuð jafnt landris þó hröðunin sé ólík Stórir skjálftar á Reykjanesinu í nótt þarf ekki að þýða aukinn hraða á kvikusöfnun. Skjálftarnir eru dæmi um hviðakennda skjálftavirkni sem búast má við meðan að kvikusöfnun er í gangi. Landið rís nokkuð jafnt þó hröðun mælist ólík á milli daga. Innlent 9. nóvember 2023 13:52
Engin merki um að kvika sé að færast ofar þrátt fyrir stóru skjálftana Frá miðætti hafa á þriðja tug jarðskjálfta mælst yfir þremur að stærð og þar af hafa sjö mælst fjórir að stærð og jafnvel stærri. Stærsti skjálftinn upp á 4,8 að stærð reið yfir klukkan 0:46 í nótt og svo fylgdi fjöldinn allur af stórum eftirskjálftum. Stóri skjálftinn í nótt er sá stærsti frá upp hafi jarðskjálftahrinunnar 25. október. Innlent 9. nóvember 2023 12:33
Telur að Grindvíkingar ættu að sofa annars staðar en heima hjá sér Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjalla- og bergfræði við Háskóla Íslands segir að réttast væri að rýma Grindavík eins og hægt sé. Hann segir jafnframt að ekki sé seinna vænna að koma upp varnargörðum til að verja bæinn. Innlent 9. nóvember 2023 12:26
„Nóttin var vægast sagt hræðileg“ Hljóðbrot sem Lilja Ósk Sigmarsdóttir, íbúi í Grindavík náði þegar stór skjálfti reið yfir í nótt, sýnir raunveruleikann sem íbúar búa við þessa dagana. Hún segir nóttina hafa verið hræðilega og taugakerfið orðið ansi marið. Innlent 9. nóvember 2023 12:09
Bláa lóninu lokað í viku en starfsmenn fá greitt og gestir endurgreitt Forsvarsmenn Bláa lónsins hafa ákveðið að loka starfstöðvum sínum í Svartsengi í eina viku, þrátt fyrir að viðbúnaðarstig almannavarna hafi ekki verið aukið. Innlent 9. nóvember 2023 07:23
Skelkaðir hótelgestir við Bláa lónið láti sækja sig vegna skjálftanna Leigubílstjórar á Reykjanesskaga ferja nú gesti af hóteli Bláa lónsins sem eru óttaslegnir vegna stórra jarðskjálfta á svæðinu, sem fóru að gera vart við sig upp úr miðnætti. Innlent 9. nóvember 2023 01:50
„Það er líklegra en ekki að það verði ekki svarta myndin“ Víðir Reynisson, sviðstjóri almannavarna hjá Ríkislögreglustjóra, sagði mikilvægt að muna að svartasta sviðsmyndin væri ekki sú líklegasta, þegar hann ræddi jarðhræringar á Reykjanesskaga á íbúafundi í Stapa í Reykjanesbæ í kvöld. Innlent 8. nóvember 2023 21:38
Bein útsending: Upplýsingafundur í Stapa vegna jarðhræringa Upplýsingafundur vegna jarðhræringa á Reykjanesi verður haldinn í Stapa Hljómahöll klukkan 20 í kvöld. Fylgjast má með fundinu í beinni hér á Vísi. Innlent 8. nóvember 2023 19:00
Svona gætu varnargarðar við Svartsengi litið út Starfshópur verkfræðinga og fræðimanna hefur gert greiningu á innviðum og skilað af sér tillögum að varnargörðum vegna mögulegs eldgoss á Reykjanesskaga. Innlent 8. nóvember 2023 18:55
Fimm rúmmetrar streyma í sylluna á hverri sekúndu Um það bil 1200 jarðskjálftar hafa mælst síðasta sólahring, flestir á svæðinu milli Þorbjörns og Sýlingarfells svipað og daginn áður. Stærsti skjálftinn var 3,4 að stærð klukkan 00:31 í nótt skammt sunnan við Þorbjörn. Innlent 8. nóvember 2023 14:55
Upplýsingafundur um jarðhræringarnar í Hljómahöll í kvöld Í hinu sögufræga félagsheimili Stapa, stærsta sal Hljómahallar, verður haldinn upplýsingafundur vegna jarðhræringa og landriss við Grindavík. Fundurinn hefst klukkan átta en einnig verður hægt að fylgjast með honum í beinni útsendingu á fréttavef okkar Vísi og í sjónvarpinu á stöð 2 Vísi. Innlent 8. nóvember 2023 13:40
Flúði skjálftana og komin í hjólhýsi í Árbænum Sigríður Jónasdóttir, íbúi í Grindavík, hefur fengið sig fullsadda af skjálftahrinunni á Reykjanesi og er flutt í borgina. Þar býr hún nú í hjólhýsi í garðinum hjá tengdaforeldrum dóttur sinnar. Innlent 8. nóvember 2023 09:00
Fjörutíu skjálftar í nótt á Reykjanesinu Fremur rólegt er á um að litast á skjálftatöflum Veðurstofunnar þennan morguninn. Innlent 8. nóvember 2023 07:12
„Miklu hraðara innflæði og hraðara landris“ Land heldur áfram að rísa við Þorbjörn. Fagstjóri náttúruvöktunar segir ástandið núna öðruvísi en undanfarin ár þegar gosið hefur á Reykjanesi. Nú flæði kvika mun hraðar og landris sé hraðara. Innlent 7. nóvember 2023 19:36