Við vitum nú þegar nógu mikið til að geta tekið upplýsta ákvörðun um að segja Nei ESB hefur með of mikilli reglugerðarvæðingu heft nýsköpun og aukið viðskiptakostnað verulega og þannig dregið úr verðmætasköpun og efnahagslegum lífsgæðum íbúa. Umræðan 28. ágúst 2026 06:37
Almenningur hafi aldrei átt séns Í fjórða og síðasta Pallborði Vísis í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag mættu fyrst stjórnmálafræðingarnir og þáttastjórnendur Skuggavaldsins þau Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir. Þau snertu á upplýsingaóreiðu og hafði Eiríkur á orði að almenningur hafi aldrei „átt séns.“ Umræðan sé farin að minna ískyggilega mikið á Brexit umræðu í Bretlandi á sínum tíma. Innlent 27. ágúst 2026 14:38
Stöndum saman um heilög mál Frelsið er fjöregg þjóðarinnar sem okkur ber að varðveita. Þjóð sem hefur lotið erlendu yfirvaldi ætti að þekkja mikilvægi eigin ákvörðunarvalds. Lítil þjóð á ekki að berjast við sjálfa sig þegar grundvallarhagsmunir hennar eru í húfi. Hún á að standa saman um heilög mál eins og réttinn til að stjórna sjálf nýtingu auðlinda sinna til sjós og lands. Umræðan 27. ágúst 2026 07:05
Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti ávarp, söngkonan Bríet tók lagið og uppistandarinn Bergur Ebbi Benediktsson leiddi samtal við salinn í svokölluðum „lýðræðisfögnuði“ í Austurbæ í Reykjavík sem fram fór fyrr í dag vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardaginn. Innlent 26. ágúst 2026 21:00
Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Forsætisráðherra ávarpaði gesti á svokölluðum „lýðræðisfögnuði“ en þar lagði hún mikla áherslu á að það ætti að treysta því að þjóðin viti sínu viti. Undanfarið hafi málflutningur tengdur slagorðinu Já til að sjá snúist um að það sé markaðsbrella en það, líkt og annar málflutningur nei-ara, byggi á sömu forsendunni: um að þjóðin geti bara ekki skilið þetta mál — og geti bara ekki verið fær um að taka svona ákvörðun með þjóðaratkvæði. Innlent 26. ágúst 2026 18:59
Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Landsmenn ganga að kjörborðinu á laugardaginn og greiða atkvæði um hvort að Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Aðeins eru þrír dagar í að kjörstaðir um land allt opni en flestir þeirra opna klukkan níu og verður lokað klukkan 22. Vísir hefur tekið saman nokkur helstu atriðin varðandi atkvæðagreiðsluna og framkvæmd hennar. Innlent 26. ágúst 2026 14:01
Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, hefur þekkst boð um að vera viðstaddur stefnuræðu Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í næsta mánuði. Sambandið og Kanada hafa færst nær hvert öðru í skugga ágreinings við Bandaríkjastjórn. Erlent 26. ágúst 2026 11:22
Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Líklegt er að fyrstu tölur sem birtar verða úr þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn muni sýna fleiri nei. Tölurnar munu líklega fyrst koma af landsbyggðinni þar sem fleiri ætla að segja nei, samkvæmt könnunum. Reykvíkingar eru líklegastir til að segja já. Innlent 26. ágúst 2026 08:54
ESB-kosning á radar erlendra fjárfesta í íslenskum verðbréfum Erlendir sjóðstjórar sem hafa fjárfest í íslenskum verðbréfum undanfarin ár eru farnir að velta fyrir sér mögulegum áhrifum þess á markaði og efnahag ef Íslendingar samþykkja að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Franskur stórbanki nefnir að með aðild skapist hætta á að auðug fiskimið Íslands opnist gagnvart erlendum útgerðum, á meðan einn stærsti erlendi fjárfestirinn á skuldabréfamarkaði telur að verði já-ið ofan á þá gæti það ýtt undir áhuga á íslenskum ríkisbréfum. Innherji 26. ágúst 2026 06:37
„Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vel geta einbeitt sér að mörgum verkefnum í einu. Segi þjóðin já um helgina verði athyglin þar en hún muni ekki gleyma öðrum verkefnum. Tekist var á um þjóðaratkvæðagreiðsluna í pallborði á Vísi í dag en nei-sinnar óttast að of mikill tími og fjárráð fari í viðræður segi þjóðin já. Það séu vandamál og verkefni heima fyrir sem sé brýnna að takast á við. Innlent 25. ágúst 2026 22:01
Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Tugir þúsunda hafa þegar greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fer fram á laugardag. Opnunartími í atkvæðagreiðslu utan kjörfundar hefur verið lengdur nú þegar styttist óðum í kjördag. Innlent 25. ágúst 2026 20:52
Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Í nýjustu könnun Maskínu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið dregur saman milli fylkinga en fulltrúar já og nei-hreyfinga sammælast um það í Pallborði að það verði mjótt á munum. Forsætisráðherra sagði ómögulegt að segja til um það hvernig niðurstaðan verði á laugardag en ríkisstjórnin muni virða hana hvernig sem fari. Innlent 25. ágúst 2026 15:11
Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Greint verður frá niðurstöðum úr glænýrri könnun Maskínu í Pallborðinu nú þegar fjórir dagar eru í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Innlent 25. ágúst 2026 12:01
Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Elkem áætlar að núverandi tollakjör í Bandaríkjunum geti bætt afkomu verksmiðjunnar á Grundartanga um 300 til 350 milljónir króna á ári. Íslenskt kísiljárn, sjávarafurðir og eldisafurðir eru nú tollfrjálsar á Bandaríkjamarkaði á meðan vörur frá nokkrum helstu samkeppnisríkjum bera viðbótartolla. Viðskipti innlent 24. ágúst 2026 16:19
Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, biðlar til Donald Trump Bandaríkjaforseta að bjóða Íslendingum samning sem myndi gera Ísland að 51. ríki Bandaríkjanna. Handbolti 24. ágúst 2026 12:01
Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Fasteignaverð hefur rokið upp í löndum við inngöngu í Evrópusambandið. Fasteignasali segir þó ómögulegt að fullyrða hvað myndi gerast gangi Ísland inn í sambandið og taki upp evru. Viðskipti innlent 23. ágúst 2026 14:22
Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Ég hef verið hugsi síðustu mánuði yfir þeim lýsingarorðum sem maður heyrir um stöðu efnahags Íslands. Annaðhvort heyrir maður að Ísland sé ríkasta og mesta velmegunarland í Evrópu, með einstaka framtíð eða að staðan sé erfið virkilega erfið og það þurfi átak allra til að leysa stöðuna. Hvernig getur það verið að Íslendingar viti ekki hvort það sé frábær eða erfið staða í efnahagi landsins? Skoðun 23. ágúst 2026 07:17
„Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir að engin aðlögun íslenskra laga að evrópsku regluverki muni eiga sér stað segi þjóðin já í atkvæðagreiðslunni í næstu viku. Hún segir ekkert hægt að segja til um mögulegar undanþágur. Það muni samningaviðræður leiða í ljós. Innlent 21. ágúst 2026 20:54
Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu „Ég tel að það sé útilokað að fá varanlega undanþágu frá stefnunni í heild sinni. Hins vegar er spurning um hvort hægt sé að hanna hlutina að innan þannig að við erum de facto með full yfirráð,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingur og fyrrverandi ritstjóri Evrópuvefsins. Innlent 21. ágúst 2026 16:27
„Ég get ekki svarað því“ Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, telur ómögulegt að segja til um hvort Íslendingar geti staðið utan sjávarútvegsstefnu sambandsins. Það muni mögulegar samningaviðræður snúast um. Innlent 21. ágúst 2026 12:17
Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Möguleg Evrópusambandsaðild var rædd frá sjónarhorni ungs fólks í Pallborðinu á Vísi í dag. Þátttakendur minntust meðal annars á hvað myndi gerast yrði íslenskur efnahagur fyrir áfalli og stöðu landbúnaðar. Innlent 20. ágúst 2026 22:01
„Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Nei-arar kölluðu „Já til að sjá“ markaðsbrellu í það minnsta þrisvar sinnum á nokkrum mínútum þegar fulltrúar já- og nei-hliðarinnar mættust í Pallborði þar sem ungt fólk var í brennidepli. Já-ari sagði sérfræðinga tala í kross og það væri eflaust mörgu ungu fólki sem fyndist það vera bestu útkomuna úr atkvæðagreiðslunni í lok ágúst að fá að sjá með eigin augum hvað fælist í samningi. Innlent 20. ágúst 2026 15:34
Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Ráðamenn í Rúmeníu sendu í morgun F-16 orrustuþotu til að granda drónabát sem sást í nokkur hundruð metra fjarlægð frá mikilvægum borpalli á Svartahafi. Rúmenar kenna Rússum um atvikið, sem Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir lið í blönduðum hernaði. Erlent 20. ágúst 2026 14:34
Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Ungt fólk verður í brennideplinum í Pallborðinu á Vísi í dag. Húsnæðismál, atvinnuleysi, efnahagsmál og fleiri mál verða rædd með það að markmiði að ungt fólk sé einhverju nær um hvað það á að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi. Innlent 20. ágúst 2026 12:21
Um peningalegt fullveldi og framsal þess Ljóst er að með inngöngu Íslands í ESB og upptöku evru verður viðbótar framsal okkar svo umfangsmikið að telja verði að Ísland hafi þar með afsalað sér peningalegu fullveldi sínu. Það verður dýru verði keypt og um það verður ekki samið. Umræðan 20. ágúst 2026 07:50
Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Í það minnsta 29 þingmenn ætla að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið þann 29. ágúst. Sumir þingmenn vilja ekki gefa upp afstöðu sína á meðan aðrir svara ekki fyrirspurn. Fleiri segja nei en já af þeim 51 sem svara. Innlent 20. ágúst 2026 07:29
„Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ „Þessi vegferð hefst eiginlega ekki raunverulega fyrr en í upphafi tuttugustu aldar, þegar virkilega koma fram stjórnmálahreyfingar og stjórnmálahugmyndir um að það væri best fyrir Íslendinga að slíta samstarfinu við Dani,“ segir Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur sem er gestur dagsins í hlaðvarpinu Vísir að viðræðum. Innlent 19. ágúst 2026 12:30
Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Forsvarsfólk bæði já- og nei- hreyfinga saka hina hliðina um að hafa farið með rangt mál frá því að kosningabarátta hófst. Þau mættust í Pallborði Vísis í dag. Fréttamaður sem stýrði Pallborðinu hafði á orði að það væri um stund sem forsvarsmenn væru að ræða hvor sinn hlutinn, svo ólíkar væru áherslurnar. Innlent 18. ágúst 2026 21:03
„Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Málskotsréttur forseta hverfur ekki þó að Ísland myndi ganga inn í ESB en verður þó takmarkaður, að sögn Birgis Ármannssonar fyrrverandi þingforseta. „Salami-aðferð“ Evrópusambandsins í viðræðum gæti að hans mati gert Íslendingum erfiðara fyrir ef þeir vilja hætta við hugsanlega aðildarumsókn. „Flest mannanna verk eru nú þannig að það er hægt að snúa þeim við,“ segir hann samt. Innlent 18. ágúst 2026 19:56
Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Þrýst var á fulltrúa fjögurra hreyfinga að opna bókhaldið, með misjöfnum árangri, í Pallborðinu. Já til að sjá gerir ráð fyrir að eyða allt að 75 milljónum en fátt var um svör frá Áfram Íslandi. Andstæðingar samtakanna áætla að þau hafi úr allt að 300 milljónum að spila. Innlent 18. ágúst 2026 17:11