Bannað að vísa starfsmönnum á dyr Við gerð síðustu kjarasamninga milli Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambands Íslands var gengið frá bókun um leigu húsnæðis í tengslum við ráðningarsamning starfsfólks í ferðaþjónustu. Ákvæðinu er ætlað að tryggja betur öryggi starfsmanna við þessar aðstæður, enda aðkallandi þörf. Skoðun 28. júlí 2022 15:00
Búið að opna útsýnispallinn á Bolafjalli til bráðabirgða Búið er að opna útsýnispallinn á Bolafjalli til bráðabirgða. Vegurinn sem liggur að útsýnispallinum, sem hefur verið í slæmu ásigkomulagi að undanförnu, var heflaður og rykbundinn í sumar svo aðkoman er orðin allt önnur. Innlent 28. júlí 2022 14:14
Litla sveitabúðin hefur slegið í gegn í Svarfaðardal Hjónin á bænum Völlum í Svarfaðardal kalla ekki allt ömmu sína þegar um verslun og viðskipti er að ræða því þau eru með litla sveitabúið á hlaðinu hjá sér þar sem hægt er að fá allskonar sælkeravörur úr ræktun þeirra. Bleikja er líka ræktuð í tjörn á bænum. Innlent 26. júlí 2022 20:03
22 ára og rekur einn vinsælasta veitingastaðinn á Ströndum Hún er ekki nema tuttugu og tveggja ára en á og rekur einn vinsælasta veitingastað á Ströndum, Café Riis á Hólmavík. Hér erum við að tala um Guðrúnu Áslu Atladóttur, sem hefur auk þessa lokið BA-gráðu í arkitektúr. Innlent 26. júlí 2022 14:05
Vitlaust að gera á Norðurlandi við að þjónusta ferðamenn Norðlendingar eru í skýjunum með það hvað ferðasumarið hefur gengið vel fram að þessu og þeir reikna með að það verði allt fullt af ferðamönnum á svæðinu fram á haust. „Það er allt vitlaust að gera“, segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands. Innlent 25. júlí 2022 15:03
Seyðisfjörður – Ferðamenn elska að koma þangað Það er fallegt á Seyðisfirði og fossinn við bæinn, Búðarárfoss er ótrúlega flottur. Mjög mörg falleg hús er á staðnum, menningar og mannlíf er gott að bæjarandinn er til fyrirmyndar. Íbúar staðarins eru allavega mjög ánægðir með að búa á Seyðisfirði. Innlent 24. júlí 2022 09:03
Ótrúleg svaðilför Chris Burkard meðfram allri Suðurströndinni Ævintýraljósmyndarinn Chris Burkard hefur verið á heldur óhefðbundnu ferðalagi um suðurströnd landsins síðustu vikuna. Suðurströndina þræddi hann á fjallahjóli, frá Djúpavogi til Þorlákshafnar, milli þess að skella sér á uppblásinn kajak til að komast yfir ótal árnar sem renna í Atlantshafið. Chris segir ferðalagið eitt það erfiðasta sem hann hefur tekist á við hér á landi. Lífið 23. júlí 2022 08:00
Brjálað að gera hjá Kidda vídeóflugu með sjálfsalann sinn Það hefur sjaldan eða aldrei verið eins mikið að gera hjá Kidda vídeóflugu eins og í sumar í sjálfsalanum hans fyrir ferðamenn, sem er staddur á milli Egilsstaða og Borgarfjarðar eystri. Ferðamenn eru líka duglegir að skilja eftir miða í sjálfsalanum og þakka Kidda fyrir framtakið. Innlent 22. júlí 2022 21:05
Sér fram á eitt besta ferðamannasumar á Austurlandi til þessa Hótel víða um land eru uppbókuð vegna stríðs straums erlendra ferðamanna. Hótelstjóri á landsbyggðinni segir þetta vera eitt besta ferðamannasumar sem hann muni eftir. Innlent 20. júlí 2022 22:30
Gífurlegt álag á heilbrigðisstofnunum vegna ferðamanna og Covid-smita Heilbrigðisstofnanir landsins hafa verið undir miklu álagi undanfarið, erfiðara hefur reynst að manna vaktir og ferðamannastraumur hefur bætt gráu ofan á svarta Covid-bylgju. Forsvarsmenn heilbrigðisstofnana eru sammála um að mjög þungt sé að sinna aðsókninni nú í sumar. Innlent 20. júlí 2022 12:32
Íslendingar of seinir að bóka til að fá hótelherbergi á sumrin Tæplega 180 þúsund erlendir ferðamenn ferðuðust um Ísland í síðasta mánuði, nærri þrefalt fleiri en á sama tíma í fyrra. Hótelstjórar um land allt hafa tekið eftir aukningunni og segja nánast uppbókað í allt sumar. Innlent 20. júlí 2022 12:30
Sóðaskapur aukist mikið á ferðamannastöðum Varaformaður félags leiðsögumanna segir sóðaskap á ferðamannastöðum hér á landi hafa aukist til muna. Hann segir það vera staðarhaldara að halda náttúruperlum hreinum. Innlent 20. júlí 2022 08:26
Evrópskir ferðamenn fegnir að komast í svalann á Íslandi Greinilegt er að margir þeirra evrópsku ferðamanna sem komnir eru hingað til lands eru fegnir að vera lausir undan ofurhitanum á meginlandinu og í Bretlandi. Við hittum nokkra þeirra fyrir í miðbæ Reykjavíkur í dag. Innlent 19. júlí 2022 21:01
Eins og Íslendingar hafi farið til sólarlanda þetta sumarið Mun færri Íslendingar hafa sést á tjaldsvæðum Austfjarða í ár en í fyrra og þar spyrja menn sig hvort sólarlandafrí hafi orðið ofan á hjá landsmönnum þetta sumarið. Tímabil erlendra ferðamanna virðist hins vegar vera að lengjast. Innlent 19. júlí 2022 09:30
Tók saman kort með andlátum ferðamanna á Íslandi undanfarin ár Kristján Hlynur Ingólfsson hefur undanfarin tvö ár tekið saman upplýsingar um dauðsföll ferðamanna á Íslandi og er núna búinn að búa til kortasjá sem sýnir hvar á landinu ferðamenn hafa dáið. Hann segir þrjá staði á Suður- og Suðvesturlandi vera stærstu álagssvæðin. Innlent 18. júlí 2022 15:40
Fjallaböðin á lokastigi hönnunar Fjallaböðin í Þjórsárdal eru á lokastigi hönnunar, en stefnt er að því að byggingarnar verði með þeim allra umhverfisvænstu í Evrópu. Heilt hverfi starfsmannaíbúða mun jafnframt rísa í Árnesi í Gnúpverjahreppi sem unnið er að með heimamönnum. Viðskipti innlent 18. júlí 2022 13:22
Að gangast við hinu ósanna - leiðin til ábyrgðar? „Af hverju að skrifa núna?“ „Til hvers að segja frá og leiðrétta?“ „Nú þegar rykið er sest og umræðan fallin í gleymsku.“ Þetta sagði ég þegar ég var hvattur til að stíga fram og nota röddina sem við öll höfum. Svarið er þó ekki flókið. Á meðan árasir, ofbeldi, sögusagnir og lygar grassera í minn garð fæ ég ekki rými til að halda áfram með líf mitt. Og hingað erum við komin. Skoðun 17. júlí 2022 14:02
Með nóg á prjónunum en einbeitir sér að sjóböðunum í bili Sjóböðin í Hvammsvík í Hvalfirði voru formlega opnuð í dag en böðin eru byggð í kringum gömlu náttúrulaugina í fjöruborðinu í Hvammsvík og samanstanda af átta misheitum laugum. Innlent 16. júlí 2022 20:42
Icelandair færst of mikið í fang og þurfi samkeppni Kári Jónasson, leiðsögumaður og fyrrverandi fréttamaður, segir að Icelandair þurfi samkeppni á innanlandsflugsmarkaði þar sem félagið hafi færst of mikið í fang. Samkeppni sé öllum til góðs. Innlent 15. júlí 2022 22:26
Allt fullt við höfnina og þurftu að kasta akkeri á Pollinum Þrjú skemmtiferðaskip höfðu boðað komu sína á Akureyri í dag en aðeins var pláss fyrir tvö þeirra við bryggjuna. Því þurfti eitt skipið að kasta akkeri á Pollinum. Innlent 15. júlí 2022 20:47
Taktu þátt í gönguleik UMFÍ og Optical Studio Göngum um Ísland er stórskemmtilegt átaksverkefni UMFÍ og Vísis í samstarfi við Optical studio. Átakið hefst 15. júlí og gengur út á að njóta íslenskrar náttúru í botn. Lífið samstarf 14. júlí 2022 12:10
Ísland ekki uppselt þrátt fyrir að eftirspurn fari fram úr væntingum Þrátt fyrir mikla eftirspurn eftir gistingu hér á landi í sumar telur framkvæmdastjóri Edition hótelsins, Ísland samt ekki uppselt. Mjög erfiðlega gengur hins vegar að finna starfsfólk til að vinna í ferðaþjónustunni víðast hvar. Innlent 13. júlí 2022 21:35
Ísland heldur áfram að heilla ferðamenn upp úr skónum: „Þetta er yndislegur staður, alveg yndislegur“ Ferðamenn streyma nú til landsins eftir kórónuveirufaraldurinn. Fréttastofa náði tali af nokkrum þeirra en íslenska náttúran virtist heilla þá hvað mest. Allir voru sammála um að vilja koma aftur, sumir fyrr en aðrir. Innlent 12. júlí 2022 23:22
Ferðamennirnir áfram færri en fyrir faraldur en virðast gera meira úr fríinu Ferðamönnum hér á landi fjölgar áfram en nær þó ekki sama fjölda og árin fyrir faraldur. Sérfræðingur hjá Ferðamálastofu segir að horfa þurfi til þess að ferðavenjur hafi breyst. Kortavelta hafi til að mynda aldrei verið meiri og fólk dvelji lengur hér á landi. Innlent 12. júlí 2022 20:42
Kortavelta erlendra ferðamanna aldrei meiri Kortavelta erlendra ferðamanna hér á landi var 28,3 milljarðar króna í júní. Það er aukning um 27,4 prósent á milli ára og hefur veltan aldrei mælst hærri í júnímánuði frá því mælingar hófust árið 2012. Viðskipti innlent 12. júlí 2022 11:10
Gestabók á afgreiðsluhúsi hellanna á Hellu Ein stærsta gestabók landsins, ef ekki sú stærsta er utan á húsi á Hellu. Innlent 11. júlí 2022 08:00
Gisting úti á Fjallsárlóni Á Fjallsárlóni er nú hægt að bóka ævintýraferð sem inniheldur siglingu um lónið og eftir hana er dvalið í húsbát á lóninu. Eigandi húsbátanna segir fólk ekki þurfa að hafa áhyggjur af kulda. Innlent 9. júlí 2022 08:29
Tíu ferðamannastaðir verði áhættumetnir Verkefnastjórn um öryggismál stjórnvalda og ferðaþjónustu aðila hefur óskað eftir því Fimmvörðuháls, Laugavegur, Þingvellir, Stuðlagil, Reynisfjara, Sólheimasandur, Sólheimajökull, Hvannadalshnjúkur, Reykjadalur og Djúpalónssandur verði öll áhættumetin fyrir ferðamenn. Einnig þurfi að útbúa viðbragðsáætlanir fyrir svæðin. Innlent 8. júlí 2022 13:01
Sóttu áttatíu manns á Laugaveginn Ferðaskrifstofan South Coast Adventure sótti um áttatíu manns frá Emstrum, þriðja áfanga gönguleiðarinnar um Laugaveginn, í gær. Veðrið var slæmt og höfðu tveir ofkælst, þar af annar þeirra verulega. Innlent 8. júlí 2022 11:29
Erfið nótt hjá ferðamönnum í Laugardalnum Vonskuveður gekk yfir landið í dag og útlit fyrir áframhaldandi lægðagang næstu daga. Hundruð ferðamanna sátu föst í skálum á hálendinu og hér á höfuðborgarsvæðinu var allt á floti á tjaldstæðinu í Laugardal eftir nóttina. Innlent 7. júlí 2022 21:00
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent